Morgunblaðið - 19.04.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.04.2018, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018FRÉTTASKÝRING Tuttugu þúsund heimili, sumarbústaðir, stofn- anir og fyrirtæki eru í viðskiptum við Securitas, stærsta fyrirtæki landsins á sviði öryggisvökt- unar. Hingað til hefur vöktunin gengið út á að Securitas útvegar myndavélar og margvíslega nema inn á staðinn sem á að vakta. Kerfið er svo tengt stjórnstöð Securitas og ef boð koma bregðast starfsmenn Securitas fljótt við og fara á staðinn til að kanna að- stæður. Með nýjum samningi við bandaríska upplýsinga- tækni- og vöktunarfyrir- tækið Alarm.com verður þessi vöktun „snjallari“ og möguleikarnir aukast til mik- illa muna, bæði hvað varðar þjónustuframboð Securitas sem og fær almenningur ým- islegt nýtt fyrir sinn snúð, þar á meðal möguleikann á að stjórna sínu nærumhverfi með margvíslegum hætti heima og heiman. Ómar Svavarsson, for- stjóri Securitas, segir í sam- tali við ViðskiptaMoggann, spurður um aðdraganda þess að Securitas ákvað að „snjall- væðast“ með þessum hætti, að það hafi staðið frammi fyrir þeirri spurningu hvort það ætti sjálft að fara í þróun á þessu sviði og verða hugbúnaðarhús, eða að fókusera áfram á sitt hlutverk og sína kjarnastarfsemi, en leita frekar eftir samstarfi við leiðandi aðila í tækni. „Í mínum huga var algjörlega ljóst að fara síðarnefndu leiðina. Grunnatriði var þá að velja sér til samstarfs aðila sem er töluvert stærri en þú, einhvern sem hefur sannað sig á markaði fyrir viðkomandi vöru, á mun stærri markaði. Við skoðuðum nokkra mögulega samstarfsaðila og gerðum greiningu á þeim, en valið var auð- velt þegar við fengum jákvæð viðbrögð frá Alarm.com í Bandaríkjunum,“ segir Ómar. Hann segir að í kjölfarið hafi reynt á það hvort Securitas stæðist kröfur Alarm.com til samstarfsaðila. „Þeir vildu vinna með fyrirtæki sem væri leiðandi á sínum markaði, eins og Securitas er. Það átti að vera í hefðbundinni öryggisgæslu, með mannafla, stjórnstöð og vera þekkt fyrir gæði á markaðnum. Við gátum hak- að í öll þessi box. Þá var gaman að selja þeim hugmyndina um Ísland og það hve tæknilega móttækileg við erum, og inniviðirnir tilbúnir að taka á móti nýrri tækni. Á skömmum tíma tókst fínn vinskapur á milli félaganna og þau hjá Al- arm.com hafa sýnt það í verki alveg frá upphafi að þau standa þétt við bakið á okkur. Þetta er líka fyrirtæki sem horfir til framtíðar, er með vöruna í stöðugri þróun, og prófar nýjungar á sínum heimamarkaði, sem við getum svo tekið í notkun hér á landi í kjölfarið.“ Fyrirtæki geta líka snjallvæðst Sú staðreynd að Alarm.com er með sex millj- ónir áskrifenda ætti að benda til að þar á bæ sé ekki tjaldað til einnar nætur. „Nei, svo sann- arlega ekki,“ segir Ómar. „Á nýafstaðinni tæknisýningu í Las Vegas kynntu þeir einmitt nýjungar sem munu henta okkur mjög vel. Þar sýndu þeir hvernig þeir ætla að byrja að bjóða lausnina fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki einnig. Það var virkilega ánægjulegt að sjá að þeir ætla í þessa vegferð og gerir þetta samstarf okkar enn áhugaverðara. Það er alltaf gaman þegar samstarfsaðilinn tosar þig áfram og hjálpar þér að taka næstu skref inn í framtíðina.“ Ómar segir að þegar Securitas var að horfa í kringum sig eftir samstarfsaðila hafi fáir boðið jafn heildstætt kerfi og Alarm.com reyndist gera. Hann segir að kerfið sé lokað kerfi, líkt og Apple-fyrirtækið er þekkt fyrir að bjóða, þar sem ekki er boðið upp á tengingar við annan hugbúnað eða kerfi, nema eftir ýtrustu próf- anir. Það eitt séu sterk meðmæli fyrir fyrirtæki sem bjóði öryggislausnir. „En auðvitað eru kostir og gallar á báðum tegundum kerfa, kerf- um sem eru á opnum grunni og lokuðum.“ En hvernig hefur salan á snjalllausnunum gengið það sem af er? „Við höfum aldrei séð önnur eins viðbrögð,“ segir Ómar. „Þetta er líka lærdómsferli hjá okkur. Það er mikill áhugi og það sem er já- kvætt fyrir okkur er að hópurinn sem er áhuga- samastur er yngri markhópur en sá sem við höfum verið með hingað til, því eldri vörnin okk- ar höfðaði ekki eins mikið til þeirra sem vildu vera „tæknilega framarlega“.“ Gáfu öllu starfsfólki kerfið Á meðal þeirra fyrstu sem fá kerfið uppsett eru 500 starfsmenn Securitas, en Alarm.com gaf öllum starfsmönnum kerfið. „Það var hvetj- andi og sýndi ákveðna skuldbindingu gagnvart okkur,“ segir Ómar sem sjálfur er með snjall- lausnina uppsetta og getur fylgst með og stjórnað heimilinu öllum stundum í símanum sínum. „Við vitum öll að eftir því sem tals- mönnum kerfisins fjölgar, því betra. Við erum ákveðinn prufuhópur í leiðinni.“ Öll gögn úr snjalllausninni streyma í gagna- grunn Alarm.com, en fyrirtækið notar gögnin til að betrumbæta kerfið og veita endursölu- aðilum sínum og samstarfsaðilum víðtækan stuðning við markaðs- og sölustarf. En er ástæða til að hafa áhyggjur af þessari gagna- söfnun í ljósi umræðunnar undanfarnar vikur um gagnaleka og misnotkun tölvugagna? „Þetta hefur auðvitað verið stórt mál upp á síðkastið, en hér eru ýtrustu kröfur til persónu- og gagna- öryggis uppfylltar, enda þarf öryggisfyrirtæki, sem þar að auki er skráð á markað í Bandaríkj- unum, að stíga mjög varlega til jarðar í öllum svona málum. Þeir ætla sér líka stóra hluti í Evrópu á næstu misserum og eru að setja þar upp starfsstöðvar, og lögum og reglugerðum er fylgt í hvívetna.“ Ómar hefur sjálfur reynslu af bæði fjar- skiptageiranum og tryggingageiranum, áður en hann hóf störf sem forstjóri Securitas. Hann segir að reynsla sín ætti að geta nýst einkar vel í framtíðinni, þar sem mikil samlegð sé að verða með þessu þrennu, fjarskiptum, öryggisvöktun og tryggingum. „Til dæmis er hægt að nota snjallforritið til að senda viðvaranir til fólks vegna flóða, eldgosa eða ofviðris, og þannig spil- ar það saman með tryggingum. Sömuleiðis ef rafmagnið fer af húsinu þínu, þá færðu tilkynn- ingu og færð að vita hvort rafmagnið hafi farið af öllu hverfinu, eða bara heima hjá þér.“ Heimili framtíðarinnar David Rimmer, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar fyrir Evrópumarkað hjá Alarm.com, segir í samtali við ViðskiptaMoggann að hlut- verk sitt sé að finna viðskiptavini og samstarfs- aðila eins og Securitas í Evrópu, til lengri tíma, og styðja við alþjóðlegan vöxt fyrirtækisins. Þess ber að geta að Alarm.com sinnir engri beinni sölu til viðskiptavina, heldur vinnur ávallt með samstarfsaðilum sem sjá þá um upp- setningu, markaðssetningu, og þjónustu við áskrifendur. Alarm.com styður hinsvegar sam- starfsaðilana á öllum þessum sviðum, til að tryggja ánægða viðskiptavini. „Megináhersla okkar er á öryggismál og leið okkar að markaðnum er í gegnum heimili fólks. Við bjóðum ólíkar þjónustur undir okkar hatti, þjónustur sem er erfitt og kostnaðarsamt fyrir fólk að taka inn úr mörgum áttum, en það að sameina þær undir þessari einu öryggisregnhlíf og blanda þeim saman gerir þetta mun meira aðlaðandi fyrir viðskiptavini,“ segir Rimmer. Snjöll öryggislausn málar Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Hlutanetið svokallaða, eða Internet of Things (IoT), er smátt og smátt að fikra sig meira inn í líf fólks hér á Íslandi sem og annars staðar. Það sem áður var fjarlæg framtíð er nú þegar orðið raunveruleiki fyrir mjög marga. Eitt stærsta IoT-fyrirtæki í heimi, bandaríska upplýsingatæknifyrirtækið Alarm.com, mun að líkindum á næstu misserum eiga stóran þátt í snjall- væðingu íslenskra heimila eftir að íslenska öryggisfyrirtækið Securitas byrjaði að bjóða lausnir þess hér á landi 1. mars sl. Í höfuðstöðvum Alarm.com starfa um 450 manns. Innanhússhönnunin hefur fengið verðlaun hjá Inc-tímaritinu bandaríska. David Rimmer segir að í heimi þar sem mikil samkeppni ríki um starfsfólk, þar sem fyrirtæki eins og Amazon, Facebook, Google og Apple sogi til sín sífellt meira af besta fólkinu, þá sé nauðsyn að bjóða upp á aðlaðandi starfsumhverfi, og það hefur Alarm.com einsett sér að gera. Þar má nefna sérstakt súrefnisherbergi þar sem súrefni er dælt inn og plöntur breiða úr sér eftir öllum veggjum í skæru ljósi. Sannarlega endurnærandi að heimsækja slíkan klefa, enda er hann afar vinsæll staður til léttra fundahalda meðal starfsfólks og viðskiptavina, að sögn Rimmer. Leynilegt borðtennisherbergi Annað sem er sérstakt við starfsmannaaðstöðuna er áhugavert mosaljós yfir kaffiborði, en einnig geta starfsmenn skellt sér í ýmsa leiki á svæðinu til að lyfta sér upp í erli dagsins, eins og til dæmis að spila borðtennis í herbergi á bak við leynidyr. Á barnum má finna heima- bruggaðan bjór og kaldlagað kaffi, hvorttveggja á krana. Mosavaxið ljós og súrefnisklefi fyrir starfsfólk Vinsælt og endurnærandi er að funda í súr- efnisherberginu í höfuðstöðvunum. Ljósmynd / Ólafur Friðrik Sigvaldason Mosaljósið hangir í loftinu fyrir ofan kaffiborð í starfsmannaaðstöðu fyrirtækisins. David Rimmer Ómar Svavarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.