Morgunblaðið - 19.04.2018, Page 11

Morgunblaðið - 19.04.2018, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018 11FRÉTTIR HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástS s vinnuföt í Af síðum „Ánægja almennings“ og „gleði“ fyrir áhorfendur var meðal þess sem var flaggað sem rekstrarmarkmiðum í síðasta ársfjórðungsuppgjöri Netflix. Er ekki laust við að það minni á frjálsar ástir í sértrúarsöfnuði Bhagwan Shree Rajneesh, sem fjallað er einmitt um í nýjasta smellnum hjá bandarísku streymisveitunni, í heimildarmyndinni Wild Wild Country. Tal um hlýjar og notalegar tilfinningar ætti ekki að koma á óvart. „Faang“-fyrirtækin Facebook, Alphabet og að minna marki Amazon hafa orðið fremur bitlaus upp á síðkastið, að hluta til vegna persónuupplýsinga- hneykslisins hjá Facebook. Netflix tókst að forðast að lenda í sams konar niðursveiflu. Þeir einu sem setja nú upp fýlusvip eru fjárfestar sem hafa tekið skort- stöðu í fyrirtækinu, en þeir eiga um 8% af útistandandi hlutabréfum. Sam- anlagt hafa þeir tapað nærri 3 milljörðum dala á þessu ári, samkvæmt gögn- um S3 Partners. Gildir einu þótt þeir hafi á réttu að standa: Netflix er eitt af þeim stóru hlutafélögum sem er hvað svívirðilegast ofmetið í verði. Það þýðir samt ekki að fyrirtækinu gangi illa, eins og sást vel í rekstrar- tölunum sem birtar voru á mánudag. Er sérstaklega eftirtektarvert hversu mikið tekjurnar hafa aukist á milli tímabila. Það hjálpar til að útskýra hvers vegna Netflix nær að halda dampi á meðan hin Faang-fyrirtækin hafa misst flugið. Tekjur af streymiþjónustu jukust um 43% miðað við sama tímabil í fyrra (upp í 3,6 milljarða dala, eða 97% af heildartekjunum) og er það mesti vöxt- urinn í sögu Netflix frá því árið 2007 þegar fyrirtækið hætti að leggja áherslu á dreifingu DVD-diska og byrjaði að einbeita sér að streymi yfir netið. Góður gangur er í vexti fyrirtækisins á alþjóðlegum mörkuðum og núna spáir Netflix því að tekjur félagsins erlendis muni fara fram úr tekjum í Bandaríkjunum á næsta fjórðungi. Það er næstum því jafn merkilegt hvað félaginu hefur tekist að teygja á því að fullnýta markaðinn heimafyrir. Á fjórðungnum bættust við 2 milljónir greiðandi streymisáskrifenda sem er mesta aukningin í tvö ár, og er áskrifendafjöldinn núna kominn upp í 55 milljónir. Að öllu þessu sögðu, þá birtist áherslan á ánægju áhorfenda í því að félag- ið mun verja 8 milljörðum dala í framleiðslu nýs efnis á þessu ári. Nú tutt- ugu árum eftir að félagið hóf rekstur er Netflix enn með neikvætt sjóð- streymi, upp á u.þ.b. 4 milljarða dala á ári. Matsfyrirtækið Moody‘s sagði á mánudag, skömmu eftir að hafa hækkað lánshæfiseinkunn Netflix, að reikna mætti með að þetta ár verði „öldudal- urinn“ í rekstrinum. Það eina sem hægt er að segja með vissu, í ljósi þess hvernig peningarnir fuðra upp, er að Netflix muni þurfa á meira fé að halda eftir að hafa síðast gefið út skuldabréf upp á 1,6 milljarða dala í október. Ástin getur verið dýr, rétt eins og hún reyndist áhangendum Rajneesh. Hér áður fyrr benti fyrirtækið skuldabréfakaupendum á að góð eiginfjár- staða veitti fyrirtækinu ákveðna vernd. Eftir að hlutabréfin hækkuðu um 5% í viðskiptum eftir lokun markaða á mánudag er þessi vafasami örygg- ispúði stærri en nokkru sinni. Með 140 milljarða dala markaðsviðri, sem nemur nærri níföldum væntum sölutekjum ársins, er ljóst að sértrúarsöfnuðurinn lifir góðu lífi. LEX Netflix: Ástin kostar sitt Þegar upp var staðið þá reyndist leiðin í „límverksmiðjuna“, sem Martin Sorrell hafði iðulega í flimt- ingum að yrði hans endastöð (eins og hesta fyrr á tíð), bæði styttri og hálli en hann hefði getað séð fyrir. Innan við tveimur vikum eftir að það spurð- ist út að verið væri að rannsaka ásak- anir í hans garð um ósæmilega hegð- un (sem Sorrell hefur neitað), er búið að setja þrautseigasta, berorðasta, og – vel á minnst – farsælasta jöfur auglýsingageirans út af sakrament- inu. Fékk að skrifa í lokakaflann Lekinn gaf það til kynna að hinn 73 ára forstjóri WPP hefði, í fyrsta skipti síðan hann komst á toppinn fyrir 33 árum, misst tökin á sögu- þræðinum. Hann náði þó aftur stjórn nógu lengi til að auðnast að skifa hluta af handritinu um eigið brott- hvarf. „Starfslokum Sorrells frá WPP verður hagað eins og hann hafi dregið sig í hlé,“ sagði í yfirlýsingu um afsögn hans sem birt var á laug- ardag. Skuggi rannsóknar á vegum stjórnar fyrirtækisins, sem bæði hófst og lauk án þess að upplýst væri í hverju ásakanirnar fælust, hvílir þó enn á atburðarásinni. Í ljósi „þeirra truflana sem við þurfum að sæta um þessar mundir,“ skrifaði Sorrell sjálfur í skeyti til starfsmanna, „tel ég það þjóna best hagsmunum ykkar, hagsmunum við- skiptavina okkar, hagsmunum stórra sem smárra hluthafa, sem og hags- munum annarra hagaðila að ég stigi til hliðar“. Það varð þó ekki ljóst fyrr en við opnun markaða á mánudag að hlut- hafar væru þeirrar skoðunar að skyndilegt brotthvarf Sorrells frá fyrirtækinu sem hann sagði að yrði „alltaf barnið hans“, væri tæpast í þeirra þágu. Gripið til neyðaráætlunar Roberto Quarta, stjórnarformaður WPP, var með þrenns konar áætl- anir tiltækar ef finna þyrfti arftaka: „lenti undir strætisvagni“-áætlun, tveggja ára áætlun og fjögurra ára áætlun. Sú staðreynd að stjórn- arformaðurinn hefur tekið sér for- stjóravald og skipað tvo fyrrverandi undirsáta Sorrells til að skipta með sér framkvæmdastjórninni, bendir til þess að forstjórinn hafi lent undir rauðum tveggja hæða strætó, leið 25 á milli City og Mayfair. Þess vegna er óhjákvæmilegt að einhver röskun og óvissa eigi sér stað. Það er óneitanlega viðeigandi að maðurinn sem byggði upp 15 millj- arða punda samsteypu með leiftur- snjallri og djarfri yfirtökustefnu, skuli telja að eina leiðin til að tryggja að reksturinn lifi af sé að hverfa af braut. Margir gagnrýnendur og keppinautar, sem þrátt fyrir allt bera með semingi virðingu fyrir þessum óþreytandi skapara WPP, telja að það muni ganga illa að halda sam- steypunni saman þegar aðdráttarafls Sorrells nýtur ekki lengur við. Óhjákvæmilegur missir Stuttorð yfirlýsing fyrirtækisins um að maðurinn sem skyndilega er orðinn fyrrverandi forstjóri „verði tiltækur til að aðstoða við um- skiptin“, er klaufaleg leið til að breiða yfir þá viðamiklu og djúpu þekkingu sem gæti glatast, á viðskiptavinum, á viðskiptasamböndum og tengslum innan og utan fyrirtækisins. Það er óhjákvæmilegt að eitthvað af þessari þekkingu sé bundið tilteknum ein- staklingi og verði ekki bætt. Þannig að arfleifð Sorrells mun, þegar allt kemur til alls, ráðast af því hvort uppbygging fyrirtækisins sem hann stýrði muni endast þegar hann er ekki lengur við stjórnvölinn. Eitt er þó ljóst: að þegar kveikt verður á suðupottunum þá mun Martin Sor- rell duga fyrir reiðinnar býsn af lími. Arfleifð Sorrells ræðst af varanleika WPP Eftir Andrew Hill Það kom mörgum í opna skjöldu þegar Martin Sorrell, forstjóri stærstu auglýsinga- og almanna- tengslasamstæðu heims, var látinn fara eftir aldar- þriðjung sem einn áhrifa- mesti maður auglýsinga- iðnaðarins. Hvað það þýðir fyrir framtíð WPP á eftir að koma í ljós. AFP Martin Sorrell hefur löngum verið umdeildur og skyndilegt brotthvarf hans frá WPP fyrr í vikunni dregur ekki úr því.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.