Morgunblaðið - 21.04.2018, Síða 3

Morgunblaðið - 21.04.2018, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018 Grunnskólinn á Drangsnesi er fámennur skóli þar sem starfa að jafnaði 10- 15 nemendur í tveimur til þremur bekkjardeildum. Auk nemenda starfa við skólann tveir kennarar ásamt skólastjóra. Í skólanum er lögð rík áhersla á fjölbreytt nám sem byggir á mikilli samvinnu og sköpunargleði þar sem leitast er við að koma til móts við þarfir og áhuga hvers og eins. Hér gefst skapandi kennurum einstakt tækifæri til þess að móta og þróa skólastarfið í samvinnu við samstarfsfólk og nemendur. Við óskum eftir öflugum grunnskólakennara í 80-90% starf frá 1. ágúst 2018. Starfsmaðurinn skal hafa leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari, reynslu af teymisvinnu, mótun skólastarfs og því að vinna með fjölbreyttan nemendahóp í samkennslu árganga. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara. Einnig er laus til umsóknar 50% staða stuðningsfulltrúa við skólann frá 1. ágúst 2018. Óskað er eftir starfsmanni með framúrskarandi færni í samskip- tum, lipurð, sveigjanleika og jákvæðni. Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðko- mandi stéttarfélag. Allar nánari upplýsingar um ofangreind störf veitir Marta Guðrún Jóhannesdót- tir skólastjóri í síma 451-3436 eða í gegnum netfangið skoli@drangsnes.is Með umsóknum skal fylgja ferilskrá, meðmæli og stutt greinargerð um ástæðu umsóknar auk upplýsinga um réttindi viðkomandi umsækjanda. Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2018     Laus störf við Grunnskólann á Drangsnesi í Kaldrananeshreppi Drangsnes er um 70 manna þéttbýliskjarni í Kaldrananeshreppi á Ströndum í um þriggja klukkustunda akstursfjarlægð frá Reykjavík. Á Drangsnesi er kaupfélag, sundlaug, aðstaða til heilsuræktar og leikskóli. Ómetanleg náttúrufegurð er á Drangsnesi og dásamlegir heitir pottar eru í fjöruborðinu rétt við skólahúsnæðið. Önnur þjónusta s.s. eins og heilsugæsla, apótek og banki er á Hólmavík næsta þéttbýliskjarna við Drangsnes í um 33 km fjarlægð um malbikaðan veg. Í Grunnskóla Þórshafnar eru um 70 ne- mendur í hæfilega stórum bekkjardeildum. Starfsemi skólans einkennist af kraftmiklu og framsæknu skólastarfi. Samhliða skóla- num er rekinn tónlistarskóli og hefð er fyrir öflugu íþróttastarfi fyrir alla aldurshópa skólans. Langanesbyggð er öflugt og vax- andi sveitarfélag með spennandi framtíðarmöguleika. Á Þórshöfn búa um 400 manns í fjölskylduvænu umhverfi. Gott íbúðarhúsnæði er til staðar og öll almenn þjónusta er á Þórshöfn. Mikil uppbygging er framundan með byggingu nýs leikskóla með tengingu við Grunnskólann. Á staðnum er gott íþróttahús og innisundlaug og Ung- emnnafélag Langaness stendur fyrir öflugu íþróttastarfi. Í þorpinu er mikið og fjölbreytt félagslíf. Samgöngur eru góðar, m.a. flug fimm daga vikunnar til Reykjavíkur um Ak- ureyri. Í næsta nágrenni eru margar helstu náttúruperlur landsins og ótal spennandi útivistarmöguleikar, s.s. fallegar göngu- leiðir og stang- og skotveiði. Langanesbyggð leitar að fólki á öllum aldri, af báðum kynjum, með margs konar menntun og reynslu. Í samræmi við jafnrét- tisáætlun Langanesbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störf hjá sveitarfélaginu. Langanesbyggð leitar eftir áhugasömum kennurum Grunnskólinn á Þórshöfn óskar eftir kennurum til starfa við skólann næsta skólaár. Við óskum eftir áhugasömum kennurum sem eru skapandi í starfi. Við leitum að fólki með margþætta reynslu og bakgrunn sem á það sameiginlegt að hafa mikinn áhuga á fjölbreyttum kennsluháttum og skólaþróun. Í boði eru fjölbreytt viðfangsefni, þar sem hæfileikar og frumkvæði kennarans fá notið sín. Okkur vantar sérkennara, umsjónarkennara, stærðfræðikennara, kennara í list og verkgreinar og íþróttakennara. Við leitum að sérkennara sem hefur áhuga á því að móta faglegan grunn sérkennslunnar við skólann sem byggir á hugmyndafræði hins einstaklingsmiðaða náms og virkri þátttöku allra í skólastarfinu. Starfsfólk Grunnskólans á Þórshöfn hefur tekið virkan þátt í þróunarstarfi á síðustu árum þar sem lögð hefur verið áhersla á þróun fjölbreyttra kennsluhátta, teymisvinnu og á aukna lýðræðislega þátttöku nemenda í skólastarfinu. Framundan er áframhaldandi spennandi skólaþróun. Á Þórshöfn er blómstrandi mannlíf, mikil náttúrufegurð, öflugt íþrótta- og félagsstarf fyrir alla þá sem vilja verða hluti af fjölbreyttri mannlífsflóru norðlensks sjávarþorps. Umsóknarfrestur er til 30. apríl og skulu umsóknir sendar rafrænt á netfangið asdis@thorshafnarskoli.is. Við hlökkum til að heyra frá þér! Allar frekari upplýsingar veitir skólastjóri Ásdís Hr. Viðarsdóttir í síma 468-1164 eða 852-0412

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.