Morgunblaðið - 21.04.2018, Síða 4

Morgunblaðið - 21.04.2018, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018 Rót þess vanda að meira en helmingi hjartaaðgerða á Landspítalanum er frestað er að stærstum hluta sú að hjúkrunafræðinga vantar til starfa. Þetta segir í ályktun hjúkrunarfræðinga gjör- gæsludeilda Landspítala varðandi mönnunarvanda og frestun hjartaaðgerða, sem læknaráð sjúkrahússins vakti athygli á fyrir skemmstu. Hjúkrunarfræðingar vekja í ályktun sinni athygli á því að leguplássum á gjörgæslu- deildum hafi fækkað undan- farin ár. Nú síðast í upphafi árs hafi verið fækkað um eitt pláss á hvorri gjörgæslu og séu nú sex opin pláss á hvorri deild. Húsnæði og tækjabúnaður beggja deilda bjóði upp á fleiri pláss. Veikasta fólkið og sérhæfð meðferð „Það má því álykta að að- stöðuleysi og fjölgun ferða- manna er ekki aðalástæðan fyrir frestun aðgerða sem þarfnast gjörgæslulegu eftir aðgerð, heldur sú staðreynd að skortur er á hjúkrunar- fræðingum,“ segir í ályktun- inni. Þar er vakin athygli á því að á gjörgæsludeildum liggi veikasta fólkið og fái þar sérhæfða meðferð. Til að geta sinnt henni þurfi hjúkrunarfræðingar langa þjálfun. Á deildunum liggi bæði börn og fullorðnir sem veikj- ast alvarlega, lenda í slysum eða fara í stórar aðgerðir sem krefjast gjörgæsluvökt- unar. Að jafnaði sinni einn hjúkrunarfræðingur einum sjúklingi. Öllum bráða- tilfellum sé sinnt og bitni því plássleysi á fyrirfram skipulögðum skurðaðgerðum eins og hjartaaðgerðum, að- gerðum á heila og fleira með tilheyrandi óþægindum, óvissu og óöryggi fyrir sjúk- linginn og aðstandendur hans. Aðstöðuleysi sé ekki helsta vandamál spítalans eins og nýleg fjölmiðlaum- fjöllun gefi til kynna. Brotthvarf og ólga í stéttinni „Á meðan eftirspurnin og þörfin fyrir þjónustuna eykst, dregst starfsemin saman vegna manneklu. Á gjörgæsludeildum Landspít- alans vantar í dag tólf stöðugildi hjúkrunarfræð- inga, átta á Hringbraut og fjögur í Fossvogi. Reynt hefur verið að bregðast við mönnunarvanda hjúkrunar- fræðinga á Landspítalanum með sértækum verkefnum en þær aðgerðir einar og sér duga ekki til,“ segja hjúkrunarfræðingar sem vekja athygli á því að kjara- samningar þeirra séu bundnir gerðardómi til árs- ins 2019 eftir að lög voru sett á verkfall þeirra árið 2015. Margir í stéttinni hafi verið ósáttir með þær að- gerðir, þá sérstaklega að dómurinn hafi verið til fjög- urra ára á móti þremur ár- um fyrir aðildarfélög BHM. „Þetta ásamt fleiru olli ólgu í stéttinni, brotthvarf reyndra hjúkrunarfræðinga var umtalsvert, erfitt hefur reynst að fá nýja hjúkrunar- fræðinga til starfa og sækja þeir í auknum mæli í betur launuð störf með minna álagi. Það er ljóst að skortur hjúkrunarfræðinga á Land- spítalanum er stórt vanda- mál sem stjórnvöld þurfa að koma betur að, þá fyrst og fremst með bættum kjörum hjúkrunarfræðinga svo þeir skili sér aftur til hjúkrunar- starfa. Með betri mönnun skapast betri aðstæður fyrir alla, hvort sem um er að ræða sjúklinga eða starfs- fólk og afköst stofnunar- innar verða betri,“ segir í ályktun hjúkrunarfræðinga. sbs@mbl.is Vöntun á hjúkrunarfræðingum skapar vandann á gjörgæsludeildum Landspítala Morgunblaðið/Ómar Fossvogur Á meðan eftirspurn og þörf fyrir þjónustu eykst dregst starfsemi saman vegna manneklu, segja hjúkrunarfræðingar.  Vantar í tólf stöðugildi  Leguplássum fækkað  Húsnæði og allur tækjabúnaður er til staðar Morgunblaðið/Eggert Aðgerð Störf hjúkrunarfræðinga á Landspítala eru fjölbreytt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.