Morgunblaðið - 21.04.2018, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
Eflingar - stéttarfélags
2018
Aðalfundur Eflingar-stéttarfélags 2018 verður
haldinn á Grand Hótel fimmtudaginn
26. apríl 2018. Fundurinn hefst kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Endurskoðaðir reikningar félagsins liggja
frammi á skrifstofunni að Sætúni 1 /
Guðrúnartúni 1 Reykjavík frá og með
miðvikudeginum 18. apríl nk.
Félagar mætið vel og stundvíslega.
Stjórn Eflingar - stéttarfélags
Tilboð/útboð
Landspítali Landakoti
ENDURBYGGING ÞAKS K-ÁLMU
Útboð nr. 20738
Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd Landspítala,
óskar eftir tilboðum í verkið: LSH Landakot - þak
K-álmu. Verkið felst í endurnýjun þaks K-álmu og
múrviðgerða aðliggjandi turns. Núverandi rishæð
og þakfrágangur eru rifin en haldið er í þaksperrur
sem eru heflaðar eftir þörfum. Endurnýjun nær til
þakklæðningar og kvista en ekki skorsteina og
þakglugga. Frágangur verður bættur m.t.t.
loftunar þaks og þykkt einangrunar. Zinkklæðning
kemur í staðinn fyrir núverandi steinskífu-
klæðningu.
Helstu magntölur eru:
Rif og förgun á innveggjum 500 m2
Rif og förgun á gólfefni 380 m2
Rif núverandi þakklæðningar 730 m2
Heflun þakvirkis 350 m
Nýr þakfrágangur með zinkklæðningu 730 m2
Steining á turnbyggingu 95 m2
Boðið er til kynningarfundar og vettvangs-
skoðunar á verkstað við Landakotsspítala, mæting
fyrir framan suðurhlið K-álmu, mánudaginn
16. apríl nk. kl. 14:00 að viðstöddum fulltrúa verk-
kaupa.
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en
15. október 2018.
Útboðsgögn eru aðgengileg á vef Ríkiskaupa.
Tilboðin verða opnuð hjá Ríkiskaupum
miðvikudaginn 25. apríl 2018 kl. 11:00 að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
ÚTBOÐ
GATNAGERÐ
Lindarvegur – Bæjarlind
Breikkun götu og hringtorg
Kópavogsbær ásamt Veitur ohf. óska eftir tilboðum í
breikkun Lindarvegar og gerð hringtorgs.
Í verkinu felst að breikka Lindarveg milli Bæjarlindar
og Fífuhvammsvegar og gera hringtorg á gatnamótum
Bæjarlindar og Lindarvegar. Jarðvegsskipta skal í skal í
svæðum utan núverandi götu, færa veitulagnir og
malbika yfirborð götu og gangstíga.
Helstu magntölur eru:
Lengd götu 170 m
Gröftur og fyllingar 5.000 m³
Malbikun götu og stíga 4.000 m²
Verkinu skal að fullu lokið 1. september 2018.
Útboðsgögnin eru afhent rafrænt og skulu þeir, sem óska
eftir útboðsgögnum fyrir verkefni þetta, senda tölvupóst
á netfangið utbod@kopavogur.is, frá og með þriðju-
deginum 24. apríl nk. Í tölvupósti skal koma fram nafn
tengiliðs vegna útboðsins, símanúmer, netfang og nafn
fyrirtækis.
Tilboð skal hafa borist í þjónustuver Kópavogs, Digranes-
vegi 1, 200 Kópavogur fyrir kl. 11.00 þriðjudaginn 8. maí
2018 verða þau þá opnuð í viðuvist þeirra bjóðenda er
þar mæta.viðurvist þeirra bjóðenda er þar mæta.
Reykjavíkurborg
Innkaupadeild
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Sími 411 1042 / 411 1043
Bréfsími 411 1048
Netfang: utbod@reykjavik.is
Ný útboð / verkefni í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Upplýsingastjórunarkerfi fyrir Reykjavíkurborg,
EES Forval nr. 14030.
• Fiskislóð 37c – Ný hverfabækistöð vestur - Eftirlit,
útboð nr. 14245.
• Úlfarsárdalur - stækkun hverfis. Gatnagerð og
lagnir 1. áfangi, útboð nr. 14229.
• Úlfarsárdalur - stækkun hverfis. Gatnagerð og
lagnir 2. áfangi, útboð nr. 14248.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
ÚTBOÐ
Félagslíf
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund sunnudag kl. 14.
Raðauglýsingar
Útboð 20288 – Nýr vefur fyrir
Ríkiskaup, verðfyrirspurn
Ríkiskaup, óska eftir tilboðum í hönnun, smíði,
uppsetningu og þjónustu á vef fyrir Ríkiskaup.
Bjóða skal teymi sérfræðinga sem vinnur með
kaupanda að útfærslu, uppsetningu og inn-
leiðingu nýs vefjar. Nánari upplýsingar má finna í
kröfulýsingu sem verður aðgengileg mánudaginn
23. apríl n.k. eftir hádegi á vef Ríkiskaupa,
www.rikiskaup.is. Tilboðin verða opnuð hjá
Ríkiskaupum 8. maí 2018 kl. 11:00.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?
annað skiptið og á að rísa
meðfram uppbyggingu nýs
meðferðarkjarna Landspít-
alans.
„Það er óskiljanlegt af
hverju ríkisstjórn gerir ráð
fyrir uppbyggingu spítalans
við Hringbraut án þess að
hugsa til Háskólans og hlut-
ar stúdenta í uppbyggingu
heilbrigðiskerfisins. Hús
heilbrigðisvísindasviðs er
nauðsynleg forsenda áfram-
haldandi þróunar þverfag-
legrar teymisvinnu innan
heilbrigðiskerfisins ásamt
því sem stúdentar sviðsins
hafa í of langan tíma þurft að
sætta sig við stöðugt bygg-
ingaflakk og í mörgum tilfell-
um lélega aðstöðu. Ráðið er
vongott um að áætluninni
verði breytt og sú bygging
höfð í huga,“ segir Stúdenta-
ráð sem telur að ekki sé hægt
að stórefla menntakerfið án
stuðnings við stúdenta, en
hann er forsenda þess að
jafnrétti til náms sé raun-
verulegt.
Kjör standa í stað
„Kjör stúdenta hafa staðið
í stað allt of lengi og það er
tími til kominn að stúdentar
hætti að búa við lakari kjör
en aðrir þjóðfélagshópar.
Stúdentaráð hvetur Alþingi
til að standa við gefin loforð
og efla framþróun, nýsköpun
og sérhæfingu samfélagsins
með stórauknum stuðningi
við stúdenta,“ segir í álykt-
uninni. sbs@mbl.is
Fjármögnun há-
skóla nær ekki
meðaltali OECD
Stúdentar ósáttir við fjármála-
áætlun ríkisstjórnarinnar
Morgunblaðið/Eggert
Menntun Auka þarf fjárveitingar til háskólastarfsins, að mati
stúdenta sem jafnframt segjast búa við lakari kjör en aðrir.
Í núverandi mynd er fjár-
málaáætlun ríkisstjórnarinn-
ar fyrir árin 2019 til 2023
gagnrýnisverð. Ítrekuð
gagnrýni á ríkisstjórnina
þegar kemur að menntamál-
um og málefnum stúdenta
kann vissulega að virka lýj-
andi en að sama skapi er það
lýjandi fyrir stúdenta að lof-
orð eru gefin sem verður
ekki framfylgt. Að stjórnar-
sáttmálinn skuli stefna að
meðaltali OECD en fjár-
málaáætlunin stígi það skref
ekki til fulls eru veruleg von-
brigði. Þetta segir í ályktun
frá Stúdentaráði Háskóla Ís-
lands.
Það er mat stúdenta að
staðfesti Alþingi fjármála-
áætlunina óbreytta sé ljóst
að ekki sé gert ráð fyrir því
að fjármögnun háskólastigs-
ins nái meðaltali OECD-
ríkjanna fyrir árið 2020. Það
gangi þvert á stjórnarsátt-
mála og stefnu Vísinda- og
tækniráðs. Til þess að há-
skólarnir geti sinnt grund-
vallarstarfsemi sinni, ásamt
því að tryggja gæði kennslu
og þjónustu við nemendur,
þarf framlag til háskólastigs-
ins að aukast um fimm millj-
arða króna hið minnsta.
Hús heilbrigðisvís-
indasviðs verði reist
Vakin er athygli á því í
ályktuninni að ekki sé gert
ráð fyrir byggingu húss heil-
brigðisvísindasviðs, sem þeg-
ar er hafin þarfagreining á í
Iðnvélar ehf. keyptu í síðustu
viku allt hlutafé í Innvali ehf.
Með kaupunum hafa Iðn-
vélar það að markmiði að
auka þjónustustig sitt og
auka úrval á hágæða íhlutum
til viðbótar við þau gæða-
merki sem Iðnvélar selja nú
þegar.
Iðnvélar eru rótgróið fyr-
irtæki, stofnað 1974, með
sterkan og tryggan við-
skiptahóp og með kaupunum
á Innvali sem sérhæfir sig í
íhlutum og hráefnum fyrir
innréttingar er verið að bæta
sterkum austurrískum vöru-
merkjum eins og Julius Blum
GmbH og Fritz Egger GmbH
& Co. auk lakkframleiðand-
ans Morrels Woodfinishes
ltd. frá Bretlandi við nú þeg-
ar sterka flóru Iðnvéla í
rekstrarvöru, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu.
Sameinaða rekstrar-
vörudeild fyrirtækjanna
tveggja verður rekin undir
merkjum Innvals og býður
upp á heildarþjónustu með
miklu úrvali fyrir tréiðn-
aðinn. sbs@mbl.is
Sameining Skafti Harðarson frá Innval, t.v., og Hjörtur P.
Jónsson frá Iðnvélum handsala samninga og leiða mál til lykta.
Iðnvélar kaupa Innval