Morgunblaðið - 21.04.2018, Side 6

Morgunblaðið - 21.04.2018, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018 Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er auglýstar eftirfarandi deiliskipulagstillögur í Rangárþingi eystra. Hemla 2 lóð – Deiliskipulagstillaga Deiliskipulagstillagan tekur til um 1,2 ha af spildunni Hemla 2 lóð ln. 211860. Tillagan tekur til tveggja byggingarreita, annars vegar fyrir stækkun núverandi frístundahúss og hins vegar fyrir byggingu allt að 3 gestahúsa. Núpur 2 – Deiliskipulagstillaga Deiliskipulagstillagan tekur til um 0,8 ha lóðar úr jörðinni Núpi 2, Vestur-Eyjafjöllum, Rangárþingi eystra. Tillagan tekur til byggingar íbúðarhúss, bílskúrs og gestahúss, ásamt aðkomuvegi að lóðinni. Sýslumannstúnið á Hvolsvelli – Deiliskipulagstillaga Um er að ræða 1,6 ha svæði sem skilgreint er í aðalskipulagi sveitarfélagsins ÍB 112. Tillagan gerir ráð fyrir tveimur parhúsum með samtals 4 íbúðum og innbyggðum bílgeymslum og einu raðhúsi án bílgeymsla með 8 smáíbúðum. Einnig eru skilgreindir byggingarreitir, nýtingarhlutfall og aðkoma að „Sýslumannshúsinu“ Samtals eru því 13 íbúðir á skipulagssvæðinu og þéttleiki 8,1 íb/ha. Skilgreint er leiksvæði nyrst á skipulagssvæðinu. Stóra-Borg – Deiliskipulagstillaga Deiliskipulagstillagan tekur til byggingar tveggja frístundahúsa í landi Stóru-Borgar ln. 163726. Afmarkaðar verða tvær 2500m² lóðir undir byggingu frístundahúsa. Hámarksstærð húsa verður allt að 100m² og mesta hæð frá gólfkóta 4,2m. Aðkoma að lóðunum verður um nýjan vegslóða frá Stóru-Borg. Hamragarðar / Seljalandsfoss – Deiliskipulagstillaga ásamt umhverfisskýrslu Sveitarstjórn Rangárþings eystra hefur á undanförnum árum unnið að gerð deiliskipulags fyrir Hamragarða og Seljalandsfoss, Rangárþingi eystra. Deiliskipulagstillagan ásamt umhverfisskýrslu tekur til um 90 ha svæði við Hamragarða og Seljalandsfoss. Tillagan tekur m.a. til breyttrar aðkomu að svæðinu með tilfærslu á Þórsmerkurvegi nr. 249, breytingar eru gerða á legu núverandi göngustíga og skilgreiningum þeirra, staðsetningu bílastæða og byggingar þjónustusmiðstöðvar. Umrædd tillaga hefur áður verið auglýst og voru gerða þó nokkrar athugasemdir við hana. Nú er tillagan lögð fram í breyttri mynd þar sem helst ber að nefna að staðsetningu bílastæða og þjónustumiðstöðvar hefur verið breytt til að koma á móts við athugasemdir við fyrri tillögu. Einnig hefur verið dregið verulega úr heimilu byggingarmagni þjónustumiðstöðvar. Samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er auglýst eftirfarandi lýsing deiliskipulagstillögu í Rangárþingi eystra. Fornhagi – Lýsing deiliskipulagstillögu Lýsing tillögunnar tekur til hluta jarðarinnar Fornhaga, Rangárþingi eystra. Í lýsingunni kemur fram að til stendur að skipta lóð út úr jörðinni og skipuleggja hana undir fjölbreytta ferðaþjónustu og þjónustubyggingu. Miðað er við tjald- og húsbílasvæði, smáhýsi, sölusvæði og almenna útivist. Samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er auglýst eftirfarandi breyting á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012/2024. Hamragarðar / Seljalandsfoss – Aðalskipulagsbreyting ásamt umhverfisskýrslu Sveitarstjórn Rangárþings eystra leggur til að gerð verði breyting á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024. Afmarkað verði afþreyingar- og ferðamannasvæði við Hamragarða og Seljalandsfoss og legu Þórsmerkurvegar breytt þar sem hann fer um svæðið. Annars vegar er um að ræða breytingu á landnotkun við Hamragarða og Seljalandsfoss úr landbúnaðarsvæði (L) og afþreyingar- og ferðamannasvæði af óskilgreindri stærð (AF) í 90 ha afþreyingar- og ferðamannasvæði (AF). Hins vegar tekur breytingin til færslu Þórsmerkurvegar (nr.249) til vesturs að varnargarði Markarfljóts. Um er að ræða nýjan vegarkafla sem tengist Þjóðvegi 1, skammt austan Markarfljótsbrúar og liggur meðfram varnargarði Markarfljóts allt að Gljúfurá í norðri þar sem hann tengist núverandi Þórsmerkurvegi. Núverandi Þórsmerkurvegur frá Þjóðvegi 1 að Gljúfurá verður þar með lagður af sem tengivegur nema allra syðst þar sem stuttur vegarkafli sem tengist Þjóðvegi 1 verður aðkomuleið að skógræktarsvæði (SL-411). Legu göngu- og reiðleiðar um svæðið er breytt og aðlöguð breyttum aðstæðum. Engin breyting verður á skógræktarsvæðinu né heldur staðsetningu áningarstaða Kötlu jarðvangs. Ofangreindar skipulagstillögur og umhverfisskýrslur er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa frá 23. apríl 2018. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 4. júní 2018. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Ormsvelli 1, 860 Hvolsvelli. Ábendingum varðandi deiliskipulagslýsingu fyrir Fornhaga má skila á sama stað og á netfangið bygg@hvolsvollur.is fyrir 4. maí 2018. F.h. Rangárþings eystra Anton Kári Halldórsson, Skipulags- og byggingarfulltrúi. Til sölu Sómi 800 Aggi SI-8 7185. Nýuppgerður af Siglufjarðarseig. Ný Volvo Penta 310 hö/drif. 3 DNG 6000 Tilbúinn á strandveiðar. Uppl. 774 3330 / 892 5414 Bátar Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Ýmislegt Sunnudagur 22. apríl Síðumúli 17 (2. hæð) kl. 13 - 15.30 Mynt • Seðlar • Minnispeningar Barmmerki • Smáprent Frímerki • Póstkort o.fl. Sala • Kaup • Skipti MYNTSAFNARAFÉLAG ÍSLANDS www.mynt.is Safnara- markaður sunnudagur 22. apríl Í S L A N D S • M Y N T S A F N A R A F É L A G • Bílar Til sölu Mazda MPV Árg. 2005 Ekinn 73.323 mílur, bremsur þarfnast smá viðgerðar. Tilboð. Uppl. í síma 861-9344. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, Húsviðhald Hreinsa þakrennur, laga ryð á þökum og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Rýmingarsala á sumar og heilsárdekkjum Fólksbíla-, sendibíla- og vörubíladekkkjum. Opið laugardag. 10-15. Kaldasel ehf., s. 5444333, kaldasel@islandia.is Til Leigu atvinnuhúsnæði 100 fm atvinnuhúsnæði á Granda (Fiskislóð 31) til leigu. Sérinngangur á jarðhæð með 5,5 metra lofthæð og mikla möguleika fyrir verslun, skrif- stofur, lager eða aðra starfsemi. Lítið eldhús og klósett innan rýmis. Björn, sími 897-084 Hjólbarðar Atvinnuhúsnæði Við gætum verið með næsta starfsmann mánaðarins á skrá www.capacent.is Ráðgjafar okkar búa yfir víðtækri þekkingu á atvinnulífinu og veita trausta og persónulega ráðgjöf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.