Morgunblaðið - 21.04.2018, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018
Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er auglýstar eftirfarandi deiliskipulagstillögur í Rangárþingi eystra.
Hemla 2 lóð – Deiliskipulagstillaga
Deiliskipulagstillagan tekur til um 1,2 ha af spildunni Hemla 2 lóð ln. 211860. Tillagan tekur til tveggja byggingarreita, annars
vegar fyrir stækkun núverandi frístundahúss og hins vegar fyrir byggingu allt að 3 gestahúsa.
Núpur 2 – Deiliskipulagstillaga
Deiliskipulagstillagan tekur til um 0,8 ha lóðar úr jörðinni Núpi 2, Vestur-Eyjafjöllum, Rangárþingi eystra. Tillagan tekur til
byggingar íbúðarhúss, bílskúrs og gestahúss, ásamt aðkomuvegi að lóðinni.
Sýslumannstúnið á Hvolsvelli – Deiliskipulagstillaga
Um er að ræða 1,6 ha svæði sem skilgreint er í aðalskipulagi sveitarfélagsins ÍB 112. Tillagan gerir ráð fyrir tveimur parhúsum
með samtals 4 íbúðum og innbyggðum bílgeymslum og einu raðhúsi án bílgeymsla með 8 smáíbúðum. Einnig eru skilgreindir
byggingarreitir, nýtingarhlutfall og aðkoma að „Sýslumannshúsinu“ Samtals eru því 13 íbúðir á skipulagssvæðinu og þéttleiki 8,1
íb/ha. Skilgreint er leiksvæði nyrst á skipulagssvæðinu.
Stóra-Borg – Deiliskipulagstillaga
Deiliskipulagstillagan tekur til byggingar tveggja frístundahúsa í landi Stóru-Borgar ln. 163726. Afmarkaðar verða tvær 2500m²
lóðir undir byggingu frístundahúsa. Hámarksstærð húsa verður allt að 100m² og mesta hæð frá gólfkóta 4,2m. Aðkoma að
lóðunum verður um nýjan vegslóða frá Stóru-Borg.
Hamragarðar / Seljalandsfoss – Deiliskipulagstillaga ásamt umhverfisskýrslu
Sveitarstjórn Rangárþings eystra hefur á undanförnum árum unnið að gerð deiliskipulags fyrir Hamragarða og Seljalandsfoss,
Rangárþingi eystra. Deiliskipulagstillagan ásamt umhverfisskýrslu tekur til um 90 ha svæði við Hamragarða og Seljalandsfoss.
Tillagan tekur m.a. til breyttrar aðkomu að svæðinu með tilfærslu á Þórsmerkurvegi nr. 249, breytingar eru gerða á legu núverandi
göngustíga og skilgreiningum þeirra, staðsetningu bílastæða og byggingar þjónustusmiðstöðvar. Umrædd tillaga hefur áður verið
auglýst og voru gerða þó nokkrar athugasemdir við hana. Nú er tillagan lögð fram í breyttri mynd þar sem helst ber að nefna að
staðsetningu bílastæða og þjónustumiðstöðvar hefur verið breytt til að koma á móts við athugasemdir við fyrri tillögu. Einnig
hefur verið dregið verulega úr heimilu byggingarmagni þjónustumiðstöðvar.
Samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er auglýst eftirfarandi lýsing deiliskipulagstillögu í Rangárþingi eystra.
Fornhagi – Lýsing deiliskipulagstillögu
Lýsing tillögunnar tekur til hluta jarðarinnar Fornhaga, Rangárþingi eystra. Í lýsingunni kemur fram að til stendur að skipta lóð
út úr jörðinni og skipuleggja hana undir fjölbreytta ferðaþjónustu og þjónustubyggingu. Miðað er við tjald- og húsbílasvæði,
smáhýsi, sölusvæði og almenna útivist.
Samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er auglýst eftirfarandi breyting á aðalskipulagi Rangárþings eystra
2012/2024.
Hamragarðar / Seljalandsfoss – Aðalskipulagsbreyting ásamt umhverfisskýrslu
Sveitarstjórn Rangárþings eystra leggur til að gerð verði breyting á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024. Afmarkað
verði afþreyingar- og ferðamannasvæði við Hamragarða og Seljalandsfoss og legu Þórsmerkurvegar breytt þar sem hann fer
um svæðið. Annars vegar er um að ræða breytingu á landnotkun við Hamragarða og Seljalandsfoss úr landbúnaðarsvæði (L) og
afþreyingar- og ferðamannasvæði af óskilgreindri stærð (AF) í 90 ha afþreyingar- og ferðamannasvæði (AF). Hins vegar tekur
breytingin til færslu Þórsmerkurvegar (nr.249) til vesturs að varnargarði Markarfljóts. Um er að ræða nýjan vegarkafla sem
tengist Þjóðvegi 1, skammt austan Markarfljótsbrúar og liggur meðfram varnargarði Markarfljóts allt að Gljúfurá í norðri þar sem
hann tengist núverandi Þórsmerkurvegi. Núverandi Þórsmerkurvegur frá Þjóðvegi 1 að Gljúfurá verður þar með lagður af sem
tengivegur nema allra syðst þar sem stuttur vegarkafli sem tengist Þjóðvegi 1 verður aðkomuleið að skógræktarsvæði (SL-411).
Legu göngu- og reiðleiðar um svæðið er breytt og aðlöguð breyttum aðstæðum. Engin breyting verður á skógræktarsvæðinu né
heldur staðsetningu áningarstaða Kötlu jarðvangs.
Ofangreindar skipulagstillögur og umhverfisskýrslur er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is og á
skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa frá 23. apríl 2018. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur
á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 4. júní 2018. Athugasemdum skal skila
skriflega á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Ormsvelli 1, 860 Hvolsvelli.
Ábendingum varðandi deiliskipulagslýsingu fyrir Fornhaga má skila á sama stað og á netfangið bygg@hvolsvollur.is fyrir 4. maí
2018.
F.h. Rangárþings eystra
Anton Kári Halldórsson, Skipulags- og byggingarfulltrúi.
Til sölu Sómi 800
Aggi SI-8 7185. Nýuppgerður af
Siglufjarðarseig. Ný Volvo Penta 310
hö/drif. 3 DNG 6000
Tilbúinn á strandveiðar.
Uppl. 774 3330 / 892 5414
Bátar
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
Sunnudagur 22. apríl
Síðumúli 17 (2. hæð)
kl. 13 - 15.30
Mynt • Seðlar • Minnispeningar
Barmmerki • Smáprent
Frímerki • Póstkort o.fl.
Sala • Kaup • Skipti
MYNTSAFNARAFÉLAG ÍSLANDS
www.mynt.is
Safnara-
markaður
sunnudagur
22. apríl
Í S L A N D S
•
M
Y
N
T S
A F N
A R A F É
L
A
G
•
Bílar
Til sölu Mazda MPV
Árg. 2005
Ekinn 73.323 mílur, bremsur
þarfnast smá viðgerðar. Tilboð.
Uppl. í síma 861-9344.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur, laga
ryð á þökum
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Rýmingarsala á sumar og
heilsárdekkjum
Fólksbíla-, sendibíla- og
vörubíladekkkjum.
Opið laugardag. 10-15.
Kaldasel ehf.,
s. 5444333, kaldasel@islandia.is
Til Leigu atvinnuhúsnæði
100 fm atvinnuhúsnæði á Granda
(Fiskislóð 31) til leigu. Sérinngangur á
jarðhæð með 5,5 metra lofthæð og
mikla möguleika fyrir verslun, skrif-
stofur, lager eða aðra starfsemi. Lítið
eldhús og klósett innan rýmis.
Björn, sími 897-084
Hjólbarðar
Atvinnuhúsnæði
Við gætum
verið með næsta
starfsmann
mánaðarins á skrá
www.capacent.is
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu
og veita trausta og
persónulega ráðgjöf.