Morgunblaðið - 05.05.2018, Síða 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2018
að hafa flutt heim og geta eytt meiri
tíma með fjölskyldu og vinum. Mig
langaði að gera eitthvað nýtt þótt
árin erlendis hafi verið frábær og
mikil forréttindi. Ég fékk heilmikið
út úr því að kynnast þremur löndum
og maður lærir mikið á því að búa
erlendis. En þeim kafla er lokið.“
Leikmenn sem þekkjast vel
Í gær var tilkynnt að markvörður
Fram, Guðrún Ósk Maríasdóttir,
hefði ákveðið að söðla um og spila
með Stjörnunni. Karen telur að
meistaraliðið muni að mestu verða
saman á næsta tímabili enda margir
leikmenn uppaldir hjá Fram.
„Við erum margar uppaldar og
enginn mun kaupa okkur í burtu frá
Fram. Ef einhverjar kúpla sig út úr
hópnum þá held ég að það yrði af
annarri ástæðu en þeirri að skipta
um félag. Hópurinn er virkilega
þéttur og við þekkjumst vel. Þá
verður þetta líka skemmtilegra og
ég hef sjaldan verið í jafn flottum
leikmannahópi og þessum. Það skil-
ar sér í leikjum.“
Stefán les hópinn vel
Þjálfarinn reyndi Stefán Arnarson
er orðinn afskaplega sigursæll og
bætti tveimur stórum bikurum í
safnið í vetur. Aðalatriðin úr ferli
Stefáns eru tekin saman í töflu hér
á síðunni og þar má sjá að Íslands-
meistaratitlarnir eru orðnir sex tals-
ins. Missti hann þó sex ár úr þjálfun
félagsliða þegar hann stýrði A-
landsliði kvenna.
Karen hafði ekki áður leikið undir
stjórn Stefáns hjá félagsliði en hann
hafði þjálfað hana í unglingalands-
liði. Hvað segir hún um þennan sig-
ursæla þjálfara?
„Ég þekkti alveg til hans og vissi
hvað ég var að fara út í. Eitt af því
sem mér finnst Stebbi hafa er hæfi-
leiki til að mynda góða liðsheild og
þar er engin mikilvægari en liðið.
Æfingarnar hjá honum eru
skemmtilegar og fjölbreyttar. Það
hefur ótrúlega mikið að segja. Við
komum á æfingar og höfum gaman
af þeim. Mér finnst hann einnig
góður í mannlegum samskiptum
sem er mikilvægt þegar þú ert að
þjálfa stelpur. Hann nær vel til okk-
ar og peppar okkur vel upp fyrir
leiki. Auk þess les hann hópinn vel.
Þegar við þurfum frí þá er frí en
þegar ýta þarf á okkur þá gerir
hann það. Þegar hann þarf að
skamma okkur þá lætur hann okkur
heyra það. Við berum mikla virð-
ingu fyrir Stebba og hann ber virð-
ingu fyrir okkur,“ sagði Karen
Knútsdóttir við Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Hari
Meistarar Þjálfarar, leikmenn og fylgdarlið Fram sem sigraði bæði á Íslandsmótinu og í bikarkeppninni í handboltanum í vetur.
Ekki ætlar að ganga þrautalaust að halda Texas Classic-
mótið á LPGA-mótaröðinni en þar er Ólafía Þórunn Krist-
insdóttir skráð til leiks. Stormur í Texas-ríki heldur áfram
að gera mótshöldurum erfitt fyrir.
Til stóð að leika 72 holur eins og siður er á mótaröðinni.
Eftir slæmt veður á fimmtudag var ákveðið að fækka
hringjunum úr fjórum í þrjá og leika því 54 holur.
Í gær var tekin sú ákvörðun að fækka niður í aðeins 36
holur vegna veðurs. Hvassviðrið hefur verið of mikið á
svæðinu auk þess sem völlurinn virðist vera á floti. Af og til
hefur auk þess verið hætta á eldingum og við slíkar að-
stæður er leik ávallt frestað á golfmótum.
Kylfingarnir fóru því ekki út á völl í gær og þurftu að gera sér æfingasvæð-
ið að góðu ef aðstæður hafa þá leyft það.
Enn er stefnt að því að ljúka leik á morgun. Ef úr rætist í dag er það ekki
vandamál því þá verða einfaldlega 18 holur í dag og 18 holur á morgun. Móts-
haldarar hafa gefið út að gangi það ekki verði einnig leikið á mánudaginn til
að ljúka mótinu. sport@mbl.is
Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir
Enn fækkar holunum
Einn allra efnilegasti handknattleiksmaður landsins,
Sveinn Jóhannsson, hefur samþykkt að ganga til liðs við ÍR.
Þetta hefur Morgunblaðið samkvæmt heimildum. Sveinn
mun hafa náð samkomulagi við ÍR í vikunni er samningur
hans til þriggja ára.
Sveinn, sem verður 19 ára í sumar, hefur leikið með
Fjölni í Grafarvogi frá barnæsku. Hann hefur leikið stórt
hlutverk á síðustu árum í yngri landsliðum Íslands, jafnt í
vörn sem sókn. Sveinn er ekki eingöngu efnilegur línumað-
ur heldur bráðger varnarmaður.
Fjölnir féll úr Olísdeildinni á dögunum. Sveinn tók þátt í
17 af 21 leik liðsins og skoraði í þeim 49 mörk. Fleiri lið
voru á höttunum á eftir Sveini, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Þar á
meðal Haukar.
Sveinn er annar leikmaðurinn sem ÍR-ingar klófesta fyrir næsta keppn-
istímabil. Hinn er markvörðurinn Stephen Nielsen sem kemur í raðir Breið-
hyltinga eftir tveggja ára veru hjá bikar- og deildarmeisturum ÍBV.
iben@mbl.is
Sveinn samdi við ÍR-inga
Sveinn
Jóhannsson
Daníel Freyr Andrésson handknattleiksmarkvörð-
ur er kannski á heimleið eftir fjögurra ára veru í
Danmörku og nú síðast í Svíþjóð. Tveggja ára samn-
ingur Daníels Freys við sænska úrvalsdeildarliðið
Ricoh er að renna út. Viðræður um nýjan samning
ganga hægt.
„Ég á í viðræðum við félagið um nýjan samning
en þær ganga ekkert alltof vel. Þar af leiðandi eru
um helmingslíkur á að ég flytji heim,“ sagði Daníel
Freyr í samtali við Morgunblaðið en hann hefur
leikið með Ricoh síðustu þrjú tímabil.
Ricoh verður AIK
Nokkrar breytingar verða hjá Ricoh fyrir kom-
andi tímabil. Nafni liðsins verður breytt í AIK hand-
boll og nýr þjálfari tekur við stjórnvelinum auk þess
sem stefnt er að því að leggja meira í umgjörð liðs-
ins. Ricoh hafnaði í 11. sæti sænsku úrvalsdeild-
arinnar í vetur og hélt sæti sínu í deildinni eftir að
hafa farið í gegnum umspil um keppnisréttinn.
„Forráðamenn félagsins vilja halda megninu af
leikmannahópnum sem var í vetur enda orðið nokk-
uð seint að krækja í nýja leikmenn,“ sagði Daníel
Freyr sem lék um árabil með FH og var m.a. í Ís-
landsmeistaraliði félagsins vorið 2011. Hann var á
meðal fremstu markvarða í deildinni hér heima um
árabil og á fáeina landsleiki að baki.
Daníel Freyr segist hafa heyrt í forráðamönnum
liða heima á Íslandi. Viðræður hafi hinsvegar ekki
gengið langt þar sem hann sé enn í sambandi við
stjórnendur Ricoh. „Það getur verið spennandi að
flytja heim ef samningar ganga ekki upp hér úti,“
sagði Daníel Freyr Andrésson, handknattleiks-
markvörður. iben@mbl.is
Ljósmynd/Ricoh
Markvörður Daníel Freyr Andrésson gæti leikið á
Íslandi næsta vetur eftir fjögur ár í Svíþjóð.
Daníel á heimleið?
Helmingslíkur, segir markvörðurinn hjá Ricoh
Landsliðsframherjinn Kjartan
Henry Finnbogason yfirgefur danska
knattspyrnufélagið Horsens eftir
leiktíðina, er samningur hans rennur
út. Ólafur Garðarsson umboðs-
maður staðfesti þetta við bold.dk í
gær. Kjartan er búinn að spila 120
deildaleiki fyrir Horsens og fór hann
með liðinu upp úr B-deildinni og í
úrvalsdeildina þar sem Horsens hef-
ur komið sér vel fyrir. Í þessum leikj-
um hefur hann skorað 46 mörk en
það nýjasta kom í gærkvöld þegar
hann skoraði sigurmarkið gegn AaB,
2:1.
Skoski knatt-
spyrnumaðurinn
Steven Lennon
hefur skrifað und-
ir nýjan samning
við FH til fjögurra
ára en fregnir
voru af því fyrir
stuttu að Breiða-
blik hefði reynt
að fá hann í sínar raðir. Lennon hef-
ur skorað 50 mörk í efstu deild hér á
landi, 37 fyrir FH og þrettán fyrir
Fram.
Skoska úrvalsdeildarliðið Rangers
staðfesti í gær að Steven Gerrard,
fyrrverandi fyrirliði Liverpool og
enska landsliðsins, hafi verið ráðinn
knattspyrnustjóri félagsins til næstu
fjögurra ára. Hann tekur við af
Graeme Murty sem var sagt upp
störfum á dögunum.
Atvinnukylfingurinn Haraldur
Franklín Magnús hafnaði í 32. sæti á
Willis Towers Watson-mótinu, sem er
hluti af Nordic Golf-mótaröðinni, en
leikið var í Danmörku. Andri Þór
Björnsson og Guðmundur Ágúst
Kristjánsson komust ekki í gegnum
niðurskurðinn á mótinu.
Roland Eradze, þjálfari kvenna-
liðs FH í handknattleik og fyrrver-
andi landsliðsmarkvörður Íslands,
hefur framlengt samning sinn við fé-
lagið til tveggja ára. Roland mun
einnig áfram þjálfa unglingaflokk
kvenna og sinna þjálfun allra mark-
varða FH. Hafnarfjarðarliðið leikur í
1. deild og hefur tvö síðustu tímabil
farið í umspil um úrvalsdeildarsæti
en ekki náð að fara alla leið.
Finnur Freyr Stefánsson hin mjög
svo sigursæli þjálfari karlaliðs KR í
körfuknattleik mun láta af störfum
sem aðstoðarþjálfari karlaliðsins í
körfuknattleik eftir verkefni sumars-
ins. Finnur greindi frá þessu í viðtali
á Podcasti KR en hann hefur verið
aðstoðarmaður Craig Pedersen frá
því hann tók við þjálfun landsliðsins
árið 2015.
Arnór Þór Gunnarsson var í aðal-
hlutverki hjá Bergischer í gærkvöld
þegar liðið tryggði sér meistaratit-
ilinn í þýsku B-deildinni í handknatt-
leik með því að sigra Bietigheim,
31:27, í uppgjöri tveggja efstu
liðanna. Arnór var
markahæsti leikmaður
Bergischer einu sinni
sem oftar og skoraði 9
mörk í leiknum. Enn
er fjórum umferðum
ólokið í deildinni en
yfirburðir Berg-
ischer hafa ver-
ið algjörir. Liðið
hefur unnið 32
af 34 leikjum
sínum í B-deildinni
í vetur.
Eitt
ogannað