Morgunblaðið - 05.05.2018, Síða 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2018
Körfuknattleikssamband
Íslands hélt lokahóf sitt í einum
sal Laugardalshallarinnar í gær
þar sem verðlaunaðir voru leik-
menn, þjálfarar og dómari sem
þóttu skara fram úr í Dominos-
deildum karla – og kvenna sem
og 1. deildum karla – og kvenna.
Á staðnum voru nánast ein-
göngu þeir aðilar sem voru verð-
launaðir ásamt nokkrum frétta-
mönnum og ljósmyndurum og
starfsmönnum KKÍ. Ekki beint sú
umgjörð sem maður vill sjá við
svona tækifæri.
Persónulega finnst mér lítil
reisn í því að vera með lokahóf
með þessum hætti en KKÍ hefur
undanfarin ár haft þau með þessu
sniði sem og Knattspyrnu-
sambandið.
Ég sakna gömlu góðu loka-
hófanna þar sem tímabilið var
gert upp með veglegum hætti og
leikmönnum, þjálfurum og dóm-
urum sýndur mikill heiður með
því að taka á móti viðurkenn-
ingum sínum í frábærri umgjörð
og stemningu.
KKÍ og KSÍ hljóta að geta
staðið betur að uppskeruhátíðum
sínum. Ég geri mér grein fyrir því
að það er kostnaðarsamt að blása
til stórveislu. KSÍ hefur hins vegar
vel efni á því og með aðstoð
styrktaraðila, fyrirtækja og félag-
anna ætti KKÍ að geta gert miklu
betur en raun ber vitni.
Frábæru keppnistímabili körfu-
knattleiksfólks er lokið, handbolt-
inn er á lokametrunum og nú er
fótboltinn farinn að rúlla þrátt fyr-
ir kalsaveður, snjókomu og hragl-
anda. Pepsi-deild karla fór vel af
stað og Pepsi-deild kvenna lofar
góðu og við á Mogganum erum
byrjaðir að spreða út M-unum í
efstu deild kvenna í fyrsta sinn og
það er vel!
BAKVÖRÐUR
Guðmundur
Hilmarsson
gummih@mbl.is
Origo-völlurinn, Pepsi-deild kvenna,
1. umferð, föstudag 4. maí 2018.
Skilyrði: Kalt og hvasst. Gervigrasið
fallegt að vanda.
Skot: Valur 22 (16) – Selfoss 2 (2).
Horn: Valur 12 – Selfoss 0.
Valur: (4-3-3) Mark: Sandra Sigurð-
ardóttir. Vörn: Málfríður Eiríksdóttir,
Arianna Romero, Málfríður Sigurð-
ardóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir.
Miðja: Ásdís Karen Halldórsdóttir
(Pála Einarsdóttir 78), Thelma Björk
Einarsdóttir (Stefanía Ragnarsdóttir
68), Teresa Noyola. Sókn: Hlín Ei-
ríksdóttir, Elín Metta Jensen, Crystal
Thomas (Guðrún Sigurðardóttir 71).
Selfoss: (4-5-1) Mark: Caitlyn Clem.
Vörn: Barbára Gísladóttir (Írena
Björk Gestsdóttir 23), Brynja Val-
geirsdóttir, Áslaug Dóra Sigurbjörns-
dóttir, Anna Friðgeirsdóttir. Miðja:
Halla Helgadóttir, Þóra Jónsdóttir, Ír-
is Sverrisdóttir, Magdalena Reimus,
Anna María Bergþórsdóttir (Erna
Guðjónsdóttir 70). Sókn: Alexis
Kiehl.
Dómari: Bríet Bragadóttir - 7.
Áhorfendur: 280.
Valur – Selfoss 8:0
Á HLÍÐARENDA
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Valskonur buðu Selfyssinga vel-
komna í Pepsi-deild kvenna í fót-
bolta með 8:0-stórsigri á Hlíðarenda
í 1. umferðinni í gærkvöldi.
Selfoss fékk varla færi í leiknum
og er ljóst að liðið þarf að læra ansi
hratt ef ekki á illa að fara í deild
þeirra bestu. Á sama tíma sýndu
Valskonur að þær ætla sér að berj-
ast á toppi deildarinnar. Það er nán-
ast sama hvert er litið, allir leikmenn
Vals lögðu sitt af mörkum og léku
vel. Enginn þó eins vel og Ásdís
Karen Halldórsdóttir, sem skoraði
þrjú mörk í sínum fyrsta deildarleik
með Val, en hún hefur leikið með KR
á undanförnum árum.
Ásdís lék sem fremsti maður á
miðjunni, fyrir aftan hættulegt
sóknartríó Valsmanna. Fyrir aftan
hana sáu Teresa Noyola og Thelma
Björk Einarsdóttir um að stjórna
miðjunni og fékk Ásdís því að sækja
að vild, með þessum góða árangri.
Noyola vann öll einvígi á miðjunni
og lagði auk þess upp tvö mörk og er
óhætt að segja að sú mexíkóska fari
vel af stað í íslenska boltanum. Það
verður spennandi að sjá hvað Vals-
konur gera er þær mæta sterkari
liðum en Selfossi.
Valur sýndi
enga miskunn
Valur skoraði
átta Ásdís Kar-
en gerði þrennu
Morgunblaðið/Hari
Þrenna Ásdís Karen Halldórsdóttir skoraði þrennu í gærkvöldi.
1:0 Ásdís Karen Halldórs-dóttir 25. komst ein á móti
markmanni og kláraði vel.
2:0 Elín Metta Jensen 36. léká markmanninn og skoraði
í autt markið.
3:0 Ásdís Karen Halldórs-dóttir 39. skoraði með
glæsilegu skoti frá horni vítateigs-
ins.
4:0 Ásdís Karen Halldórs-dóttir 65. lagði boltann
innanfótar upp í þaknetið.
5:0 Crystal Thomas 68.komst ein í gegn og lagði
boltann af öryggi í fjærhornið.
6:0 Stefanía Ragnarsdóttir69. potaði boltanum inn af
marklínunni.
7:0 Stefanía Ragnarsdóttir86. skoraði af öryggi á
fjærstönginni.
8:0 Guðrún Karitas Sigurð-ardóttir 87. skoraði frá
markteig eftir glæsilegan sprett
Hlínar.
I Gul spjöld:Magdalena (Selfossi) 72.
(brot),
MM
Ásdís Karen Halldórsdóttir (Val)
Teresa Noyola (Val)
M
Elín Metta Jensen (Val)
Hallbera Guðný Gísladóttir (Val)
Crystal Thomas (Val)
Thelma Björk Einarsdóttir (Val)
Arianna Romero (Val)
Guðrún Karítas Sigurðardóttir (Val)
Stefanía Ragnarsdóttir (Val)
Í KÓRNUM
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Nýliðar HK/Víkings fóru vel af stað er
liðið vann FH 2:1 í Kórnum í 1. umferð
Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu.
Liðið hefur í tvígang áður leikið í efstu
deild, 2008 og 2013, en hafnaði í bæði
skiptin í fallsæti. Það var þó vart að sjá
að um býsna óreynt og ungt lið væri að
ræða enda spilamennskan til fyr-
irmyndar. Kempan Tinna Óðinsdóttir,
sem er snúin aftur eftir tveggja ára
hlé, bar fyrirliðabandið og var öflug í
vörninni en þær Fatma Kara og Stef-
anía Ásta Tryggvadóttir voru einnig
frábærar á miðjunni. Það vakti athygli
hversu lítinn áhuga heimakonur höfðu
á því að sparka boltanum langt og hátt,
heldur reyndu þær að spila áferð-
arfallegri fótbolta og uppskáru eftir
því, allavega í gær.
FH er eitt af þessum liðum sem
hafa fest sig í sessi í úrvalsdeild. Ein-
kenni Hafnfirðinga hafa verið stöð-
ugleiki, skipulag og agaður varn-
arleikur en ekkert af þessu var á
boðstólum í Kórnum. Vörnin var oft á
tíðum óþarflega teygð og unnt hefði
verið að afstýra báðum mörkum
heimamanna. FH-liðið var langt frá
sínu besta og er það kannski það já-
kvæðasta við gærdaginn, hversu mikið
Hafnfirðingar hljóta að eiga inni.
Morgunblaðið/Hari
2:1 Erna Guðrún Magnúsdóttir og samherjar í FH máttu sætta sig við tap.
Nýliðarnir
tilkomumiklir
HK/Víkingur lagði FH að velli
Kórinn, Pepsi-deild kvenna, 1. umferð,
föstudag 4. maí 2018.
Skilyrði: Gervigras innanhúss.
Skot: HK/Víkingur 4 (4) – FH 9 (5).
Horn: HK/Víkingur 4 – FH 0.
HK/Víkingur: (4-4-2) Mark: Björk
Björnsdóttir. Vörn: Gígja V. Harð-
ardóttir, Margrét Eva Sigurðardóttir,
Maggý Lárentsínusdóttir, Tinna Óð-
insdóttir. Miðja: Karólína Jack, Fatma
Kara, Stefanía Ásta Tryggvadóttir
(Laufey Björnsdóttir 72), Þórhildur
Þórhallsdóttir. Sókn: Margrét Sif
Magnúsdóttir (Milena Pesic 85), Linda
Líf Boama (Isabella Eva Aradóttir 66).
FH: (4-3-3) Mark: Tatiana Saunders.
Vörn: Arna Dís Arnþórsdóttir, Guðný
Árnadóttir, Maria Selma Haseta, Erna
Guðrún Magnúsdóttir. Miðja: Eva
Núra Abrahamsdóttir (Selma Dögg
Björgvinsdóttir 55), Jasmín Erla Inga-
dóttir, Diljá Ýr Zomers (Úlfa Dís Kreye
69). Sókn: Helena Ósk Hálfdán-
ardóttir, Marjani Hing-Glover, Hanna
Barker (Birta Georgsdóttir 55).
Dómari: Gunnþór Steinar Jónsson –
7.
Áhorfendur: 290.
HK/Víkingur – FH 2:1
1:0 Maggý Lárents-ínusdóttir 26.
Skallaði boltann í markið á
fjærstönginni eftir horn-
spyrnu.
2:0 Stefanía ÁstaTryggvadóttir 49.
Skaut boltanum í þverslá
og inn eftir sendingu frá
Margréti Sif Magnúsdóttur.
2:1 BirtaGeorgsdóttir 65.
Skoraði í fjærhornið af
stuttu færi eftir fyrirgjöf
frá Guðnýju Árnadóttur.
I Gul spjöld:Maria (FH)
52. (brot), Laufey (HK/
Víkingi) 88. (brot).
I Rauð spjöld: Engin.
M
Gígja Harðardóttir (HK/
Víkingi)
Maggý Lárents-
ínusdóttir (HK/Víkingi)
Tinna Óðinsdóttir (HK/
Víkingi)
Stefanía Ásta Tryggva-
dóttir (HK/Víkingi)
Fatma Kara (HK/
Víkingi)
Guðný Árnadóttir (FH)
Cleveland og
Boston eru komin
í 2:0 í rimmum
sínum í undanúr-
slitum í Austur-
deild NBA í
körfuknattleik
eftir sigra í fyrri-
nótt.
Cleveland hafði
betur gegn To-
ronto á útivelli í
Kanada 128:110 og Boston hafði bet-
ur á móti Philadelphia á heimavelli
108:103.
LeBron James átti enn einn stór-
leikinn en hann skoraði 43 stig fyrir
Cleveland, tók 18 fráköst og gaf 14
stoðsendingar og Kevin Love skor-
aði 31 stig. Þetta var í 23. sinn í úr-
slitakeppni NBA sem LeBron skor-
ar 40 stig eða fleiri. DeMar DeRoza
var stigahæstur í liði Toronto með 24
stig og Kyle Lowry skoraði 21.
Jayson Tatum var atkvæðamestur
í liði Boston með 21 stig í sigrinum
gegn Philadelphia og hefur Boston
unnið alla heimaleiki sína í úrslita-
keppninni. JJ Redick skoraði 23 stig
fyrir Philadelphia og Robert Coving-
ton setti niður 22 stig.
Sigurliðin í þessum tveimur ein-
vígjum munu mætast í úrslitum
Austurdeildarinnar.
gummih@mbl.is
LeBron skor-
aði 43 stig í
Toronto
LeBron
James