Morgunblaðið - 31.05.2018, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
Í nýlegri ályktun sam-
bandsstjórnarfundar Sam-
iðnar er skorað á ríkisstjórn-
ina að leggja nú þegar fram
áætlun um eflingu verk- og
tæknináms, enda séu fyrir-
heit gefin um slíkt í stjórnar-
sáttmála. Áhyggjuefni sé að
verknámsskólar hafi verið
fjársveltir til margra ára og
það hafi skert möguleika
þeirra til að byggja af fullu
afli upp verknám sem höfðar
til ungs fólks.
Samiðn hafi mikinn vilja til
samstarfs við ríkisstjórnina
um að fara í markvissar að-
gerðir til að efla verk- og
tæknimenntun. Forsenda
þess sé að ríkisstjórnin sýni
frumkvæði og tryggi fjár-
magn svo hægt sé að byggja
upp verknámsskóla sem geta
boðið ungu fólki nútímalegt
og framsækið nám.
„Æ færri ljúka sveinsprófi
á ári hverju. Hægt er að tala
um hrun í sumum iðn-
greinum. Átaks er þörf.
Kynna þarf ungu fólki verk-
og tækninám og ekki síður
foreldrum, enda sýna rann-
sóknir að viðhorfin heima fyr-
ir til námsvals ungmenna
skipta miklu. Verk- og tækni-
nám er frábært nám sem
skapar mörg tækifæri á ís-
lenskum vinnumarkaði og til
áframhaldandi náms. Skortur
á iðnaðarmönnum er stað-
reynd og án róttækra aðgerða
mun hann fara vaxandi á
næstu árum,“ segir í ályktun
Samiðnar. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Smíði Iðnnám opnar fólki ýmsa möguleika á vinnumarkaði.
Verknám er frábært
Tæknimenntun verði efld
Samiðn skorar á ríkisstjórnina
Skólaárið 2015-2016 braut-
skráðust 10.883 nemendur
úr skólum á Íslandi, bæði á
framhalds- og háskólastigi.
Brautskráðum nemendum
fjölgaði um 276 eða 2,6% frá
fyrra ári þegar þessi skóla-
stig eru tekin saman, segir í
frétt frá Hagstofu Íslands.
Konur í meirihluta
Alls útskrifuðust 4.555
nemendur með 4.593 próf á
háskóla- og doktorsstigi og
voru konur 65,6% þeirra sem
luku prófum. Alls voru 2.753
brautskráningar vegna
fyrstu háskólagráðu og
brautskráningar með viðbót-
ardiplómu voru 397. Þá voru
1.317 brautskráningar vegna
meistaragráðu og 72 luku
doktorsprófi. Doktorum hef-
ur farið fjölgandi síðustu ár,
og eingöngu skólaárið 2013-
2014 hafa fleiri doktorar
brautskráðst en þá voru þeir
84 talsins.
Alls brautskráðust 5.748
nemendur af framhalds-
skólastigi með 6.374 próf
skólaárið 2015-2016, 103
fleiri en árið á undan. Stúlk-
ur voru 50,9% brautskráðra,
en fara þarf aftur til skóla-
ársins 1998-1999 til að finna
hærra hlutfall pilta í þessum
hópi framhaldsskólafólks.
Alls útskrifaðist 3.421 stúd-
ent úr 34 skólum skólaárið
2015-2016, 172 fleiri en
skólaárið á undan. Konur
voru 56,6% nýstúdenta.
Fjölgar í sveinsprófum
Alls var 631 brautskráning
með sveinspróf í iðngreinum
skólaárið 2015-2016, 63 fleiri
en árið áður eða 11,1%. Ekki
hafa fleiri brautskráðst með
sveinspróf á einu skólaári
síðan skólaárið 2009-2010.
Karlar voru 81,5% þeirra
sem luku sveinsprófi. Braut-
skráningar vegna iðnmeist-
araprófs voru 166, heldur
færri en síðustu tvö skólaár á
undan.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HR Konur eru í meirihluta brautskráðra háskólanema.
Brautskráðum
nemum fjölgar
Margir í doktorsnámi Karl-
ar áberandi í sveinsprófum
Konur 56,6% nýstúdenta