Fréttablaðið - 22.06.2018, Page 4
DÓMSMÁL Fyrrverandi hæstaréttar
dómarinn Jón Steinar Gunnlaugs
son var í Héraðsdómi Reykjaness
í gær sýknaður af meiðyrðakröfu
hæstaréttardómarans Benedikts
Bogasonar.
Benedikt krafðist að tiltekin orð
úr bók Jóns Steinars, Með lognið í
fangið, yrðu dæmd dauð og ómerk.
Hluti orðanna varðaði „dómsmorð“
sem Jón taldi hafa verið framið með
dómi yfir Baldri Guðlaugssyni.
Dómari taldi Jón Steinar hafa
kveðið fast að orði en hvergi hefði
hann sakað Benedikt um refsivert
athæfi. Orðunum væri ekki beint
að Benedikt persónulega heldur
Hæstarétti í heild. Fullyrðinga Jóns
Steinars væru gildisdómur en ekki
staðhæfing um staðreynd. – jóe
Sýknaður í máli
meðdómara
DÓMSMÁL Dagur Hoe Sigurjónsson
var dæmdur til 17 ára fangelsisvistar
í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Dagur var sakfelldur fyrir manndráp
og tilraun til manndráps er hann
réðst á Klevis Sula og Elio Hasani á
Austurvelli í desember í fyrra. Klevis
hlaut bana af.
Dagur var einnig dæmdur til að
greiða tæpar tíu milljónir í bætur til
foreldra hins látna og til þess brota
þola sem lifði árásina af. Dagur, sem
neitaði sök, er 25 ára og hefur ekki
áður hlotið refsidóm. – aá
Fangelsi í 17 ár
fyrir manndráp
Frá uppkvaðningu dóms í Héraðs-
dómi í gær. Fréttablaðið/SteFán
DÓMSMÁL Hæstiréttur sneri í gær
við dómi í meiðyrðamáli Bergvins
Oddssonar, fyrrverandi formanns
Blindrafélagsins, gegn öðrum
stjórnarmeðlimum. Héraðsdómur
hafði dæmt Bergvini 900 þúsund
krónur í miskabætur vegna æru
meiðandi ummæla í ályktun félags
ins í garð hans.
Í ályktun félagsins frá í september
2015 var því lýst að trúnaðarbrestur
hefði orðið milli formannsins, Berg
vins, og stjórnarinnar. Ástæðan var
sú að hann hefði nýtt sér vettvang
sinn „til að véla ungan félagsmann
til að leggja allt sitt sparifé í fast
eignabrask honum tengt“. Krafð
ist Bergvin ómerkingar þessara
ummæla auk ummæla um að hann
hefði brugðist trausti drengsins
og sýnt af sér „siðferðislegt dóm
greindarleysi“. Í héraði voru fyrri
ummælin ómerkt en ekki þau síðari.
Að virtum atvikum málsins taldi
Hæstiréttur að ályktun Blindra
félagsins hefði verið byggð á frá
sögn félagsmannsins unga. Bergvini
hefði verið gefinn kostur á að skýra
málið áður en ályktunin var send
út. Dómurinn taldi að í ályktuninni
hafi verið tekið óþarflega sterkt til
orða en þó ekki svo að farið hefði
verið út fyrir mörk tjáningarfrelsis
ins. Því var fólkið sýknað. – jóe
Blindrafélagið sýknað í meiðyrðamáli fyrrverandi formanns
Héraðsdómur hafði
dæmt Bergvini Oddssyni 900
þúsund króna miskabætur
vegna ærumeiðandi ummæla
í ályktun Blindrafélagsins.
Dómi í máli bergvins gegn blindrafélaginu var snúið við. Fréttablaðið/SteFán
DÓMSMÁL „Atli er náttúrulega búinn
að fá uppreist æru en það er allt í einu
ekkert atriði og núna er það háð hug
lægu mati dómara hvort viðkomandi
hafi endurheimt traust. Ég veit ekki
hvernig hann mælir það. Kannski
bara eftir einhverri stemningu í
samfélaginu,“ segir Björgvin Jóns
son, lögmaður Atla Helgasonar, um
niðurstöðu Landsréttar sem sneri
við úrskurði héraðsdóms og synjaði
Atla Helgasyni um endurheimt lög
mannsréttinda sinna
Um Atla segir í úrskurðinum: „Þótt
17 ár séu nú liðin frá því dómur féll í
manndrápsmálinu, sjö ár frá því að
varnaraðila var veitt reynslulausn og
þrjú ár frá því að reynslutíma lauk er
enn varhugavert að slá því föstu að
hann hafi áunnið sér það traust sem
lögmenn verða að njóta samkvæmt
framansögðu.“ Lögmaður Atla furðar
sig á þessum orðum enda hafi Atli
þegar fengið uppreist æru.
Í úrskurði Landsréttar, er viðtek
inni dómaframkvæmd um endur
heimt lögmannsréttinda vikið til
hliðar með vísan til lagabreytingar
sem gerð var á Alþingi síðastliðið
haust. Breytingin var samþykkt
síðastliðið haust eftir að ríkisstjórn
Bjarna Benediktssonar sprakk í
kjölfar mála Róberts Downey sem
fékk uppreist æru með umdeildum
hætti. Frumvarp sem verið hafði í
smíðum í dómsmálaráðuneytinu um
brottfall heimildar stjórnvalda til að
veita þeim sem hefðu hlotið refsi
dóma uppreist æru var lagt fram á
síðasta þingdegi og samþykkt síðar
sama kvöld.
Með lagabreytingunni var ein
göngu fellt brott úr hegningarlögum
ákvæði um uppreist æru en heildar
endurskoðun lagaákvæða um endur
heimt borgaralegra réttinda eftir
afplánun dóms var látin bíða og
bíður enn.
Ekki var haft samráð við refsi
réttar nefnd vegna málsins og ekki
gafst tími til að leita umsagna um
það.
Í nefndaráliti allsherjar og
menntamálanefndar er fullyrt að
framkvæmdin valdi ólögmætri
skerðingu mannréttinda, með vísan
til fordæma Mannréttindadómstóls
Evrópu. Ákveðið var að hafa gildis
tíma breytingarinnar tímabundinn
og marka þannig ramma fyrir boð
aða heildarendurskoðun.
Arnar Þór Jónsson héraðsdómari
segir að í ljósi niðurstöðunnar sé
mjög brýnt að Alþingi taki af skarið í
málinu enda lagabreytingin frá 2017
í andstöðu við alþjóðlega sáttmála
sem Ísland sé bundið af. „Á meðan
þingið hefur ekki hysjað upp um sig
eftir að hafa tekið þetta hálfa skref
í fyrra þá er fólk sem lokið hefur
afplánun sinna dóma skilið eftir án
úrræða til að fá notið mannréttinda
til jafns við aðra. Þetta er algjörlega
óviðunandi ástand.“
„Við munum náttúrulega skoða
hvað er hægt að gera,“ segir Björgvin
aðspurður um næstu skref en niður
stöðu Landsréttar er ekki unnt að
vísa til Hæstaréttar.
adalheidur@frettabladid.is
Niðurstaðan veki spurningar
um bann við afturvirkni laga
Vísað er til umdeildrar lagasetningar um brottfall ákvæða um uppreist æru í forsendum Landsréttar fyrir
synjun við beiðni Atla Helgasonar um endurheimt lögmannsréttinda sinna. Meta eigi í hverju tilviki hvort
dómþoli hafi endurheimt það traust sem lögmenn þurfi að njóta. Synjunin er ekki kæranleg til Hæstaréttar.
Sigríður andersen dómsmálaráðherra mælti fyrir hinu umdeilda máli á alþingi síðastliðið haust. Fréttablaðið/ernir
Þetta er algjörlega
óviðunandi ástand.
Arnar Þór Jónsson héraðsdómari.
2 2 . j ú n í 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U R4 F R é T T i R ∙ F R é T T A B L A ð i ð
2
2
-0
6
-2
0
1
8
0
5
:1
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
3
5
-5
3
7
8
2
0
3
5
-5
2
3
C
2
0
3
5
-5
1
0
0
2
0
3
5
-4
F
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K