Fréttablaðið - 22.06.2018, Síða 6
Öflugar háþrýstidælur fyrir vandláta
Lavor One Plus 130 háþrýstidæla
130 bör max, 420 lítr/klst. 1800W
Fylgihlutir: Burstar, sápubrúsi & Turbostútur
12.490
Lavor Vertigo Plus 28 háþrýstidæla
160 bör max, 510 lítr/klst.
2800W „Brass“ mótorhús.
66.990
Lavor Vertigo 20 háþrýstidæla
140 bör max, 400 lítr/klst.
2100W
29.990
MJÖG
ÖFLUG
dæla
INDUCTION
MOTOR POWERED
Lavor Space 180 háþrýstidæla 180
bör max, 510litr/klst 2500W. Fylgihlutir:
Pallahreinsir, bursti og aukaspíssar.
26.490
Lavor Galaxy 140 háþrýstidæla
140 bör max, 450 lítr/klst. 1900W.
Fylgihlutir: Pallahreinsir, bursti og aukaspíssar.
17.990
Race 125 háþrýstidæla
125 bör max, 400 lítr/klst.
1800W
23.390
Lavor SMT 160 ECO 2500W, 160 bör (245 m/
túrbóstút) 510 L/klst. Þrjár stillingar: mjúk (t.d.
viður), mið (t.d. bill) og hörð (t.d. steypa)
29.990
Reykjavík Kletthálsi 7. Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-16
Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-14
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
StjórnSýSla Níu manna ráð-
gjafarnefnd Landspítala, sem á
að vera stjórn spítalans til sam-
ráðs og stuðnings í stefnumótun
og almennu starfi hans, hefur ekki
verið starfandi síðan 2011 þrátt
fyrir skýr fyrirmæli um það í lögum
um heilbrigðisþjónustu. Fyrri heil-
brigðisráðherrar hafa trassað að
skipa í nefndina.
Í lögum um heilbrigðisþjónustu
er skýrt kveðið á um að ráðherra
heilbrigðismála skuli skipa þessa
níu manna nefnd til fjögurra ára í
senn. Nefndin skal vera forstjóra
og framkvæmdastjórn til ráðgjafar
og álits um þjónustu, starfsemi og
rekstur spítalans.
Svandís Svavarsdóttir, núverandi
heilbrigðisráðherra, hefur í hyggju
að endurvekja nefndina og mun
skipa í hana innan fárra daga. „Það
er dýrmætt fyrir spítalann að geta
sótt þekkingu og stuðning sem víð-
ast í samfélaginu. Ráðgjafarráðið
var í lögum hugsað til þess og mikil-
vægt að setja það á stofn í samræmi
við lög. Ég vænti þess að spítalinn
njóti góðs af því, ekki síst í stefnu-
mótun sinni,“ segir Svandís.
Þetta ákvæði var sett í lög árið
2007 og í framhaldinu var sett á
laggirnar nefnd til fjögurra ára undir
formennsku Ingibjargar Pálma-
dóttur. Sú nefndarskipan rann út 25.
október 2011. Því hafa Guðbjartur
Hannesson, Kristján Þór Júlíusson
og Óttarr Proppé ekki skipað í þessa
nefnd þrátt fyrir að skýrt sé kveðið á
um það í lögum.
Samkvæmt lögum um Landspít-
ala skal forstjóri spítalans í samráði
við formann nefndar boða til upp-
lýsinga- og samráðsfunda eftir því
sem þurfa þykir, minnst tvisvar á
ári. Ljóst er að slíkir fundir hafa ekki
verið haldnir í áraraðir.
Anna Sigrún Baldursdóttir,
aðstoðarmaður forstjóra Landspít-
ala og fyrrverandi aðstoðarmaður
Guðbjarts Hannessonar heilbrigðis-
ráðherra, segir nefndina geta verið
mikilvæga fyrir spítalann. „Ég held
að þetta gæti komið sér vel og væri
spítalanum til hagsbóta að hafa
slíkt aðhald og stuðning utan frá.
Því þætti okkur gott að þessi nefnd
kæmist aftur á laggirnar,“ segir
Anna Sigrún.
sveinn@frettabladid.is
Fóru ekki að lögum um Landspítala
Lög um heilbrigðisþjónustu gera ráð fyrir að níu manna ráðgjafarnefnd þjónusti framkvæmdastjórn Landspítala og veiti henni stuðn-
ing og aðhald. Sú nefnd hefur hins vegar ekki verið starfandi lengi. Nýr ráðherra ætlar að setja á laggirnar slíka nefnd fyrir vikulok.
Úr 20. gr. laga um heilbrigðisþjónustu (40/2007)
Ráðherra skal skipa níu manns og
jafnmarga til vara í ráðgjafarnefnd
Landspítala til fjögurra ára í senn.
Nefndin skal vera forstjóra og
framkvæmdastjórn til ráðgjafar
og álits um þjónustu, starfsemi
og rekstur spítalans. Skal nefndin
m.a. fjalla um árlegar starfs- og
fjárhagsáætlanir spítalans og
langtímastefnu hans. Nefndin skal
m.a. skipuð fulltrúum notenda
þjónustu spítalans. Formaður skal
í samráði við forstjóra boða til
upplýsinga- og samráðsfunda eftir
því sem þurfa þykir og eigi sjaldnar
en tvisvar á ári.
Innri friður í fjölmenni
Alþjóðlegur dagur jógaiðkunar var í gær, á sumarsólstöðum og lengsta degi ársins á norðurhveli Jarðar. Tugþúsundir komu saman í Nýju-Delí á
Indlandi til að stunda jóga í tilefni dagsins og næra þannig líkama og sál. Fyrsti alþjóðadagur jóga var haldinn 21. júní árið 2015. Nordicphotos/Getty
Anna sigrún
Baldursdóttir.
nOrEGUr Alvarlega veikir sjúklingar
sem eru langskólagengnir fá meiri
hjálp á norskum sjúkrahúsum en
aðrir. Þetta sýnir rannsókn á gögn-
um um 100 þúsund sjúklinga, að
sögn norska ríkisútvarpsins.
Jon Ivar Elstad, vísindamaður hjá
Nova-stofnuninni, bar saman skóla-
göngu 100 þúsund sjúklinga sem
létust á árunum 2009 til 2011. Eftir-
fylgni reyndist meiri meðal þeirra
langskólagengnu í formi innlagna á
sjúkrahús og rannsókna.
Mat Elstads er að þeir sem rann-
sakaðir voru nánar hafi ekki verið
veikari en hinir.
Um var að ræða sjúklinga með
krabbamein og lungna- og hjarta-
sjúkdóma. Greinilegast var mynstr-
ið hjá krabbameinssjúklingum.
Að sögn Elstads kunna skýring-
arnar til dæmis að vera viðhorf
lækna til mismunandi samfélags-
hópa, samskipti milli sjúklings og
lækna, virkni sjúklingsins sjálfs eða
kröfur aðstandenda um meiri eftir-
fylgni. – ibs
Betri þjónusta
á sjúkrahúsum
fyrir menntaða
Langskólagengnir sjúklingar fá meiri
eftirfylgni á norskum sjúkrahúsum.
Nordicphotos/Getty
2 2 . j ú n í 2 0 1 8 F Ö S t U D a G U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
2
2
-0
6
-2
0
1
8
0
5
:1
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
3
5
-6
7
3
8
2
0
3
5
-6
5
F
C
2
0
3
5
-6
4
C
0
2
0
3
5
-6
3
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K