Fréttablaðið - 22.06.2018, Qupperneq 28
hvítar þá finnst mér þær vera að
stíga skref í áttina að litum. Æ oftar
heyri ég konur segja: „Mig langar
ekki í svart.“ Sjálf klæðist ég sjaldan
svörtum lit. Mér finnst samt smart
að vera í svörtu undir litríkum
kímónó.“
Ömmur sem sauma og
prjóna
Andrea segist varla hafa verið farin
að ganga þegar hún byrjaði að
máta skó móður sinnar og ömmu.
„Ég held að áhugi á tísku og fötum
sé meðfæddur. Það kunna allir að
sauma sem ég þekki. Þegar ég var
yngri hélt ég að þannig væri þetta
á öllum heimilum. Þess utan gekk
ég alltaf í heimasaumuðum fötum.
Þurfti bara að segja hvernig ég vildi
hafa þau og í hvaða litum. Ég átti
meira að segja heimasaumaðan
skíðagalla. Önnur amma mín var
bóndi og átti fjórtán börn. Hún
þurfti að sauma á allan skarann.
Hún átti yfir sextíu barnabörn og
var allt árið að prjóna ullarsokka
handa öllum í jólagjafir. Hin amma
mín starfaði sem saumakona.
Þegar ég fór að eldast var orðið
ódýrara að kaupa tilbúnar vörur í
verslunum en að sauma.“
Hugsa vel um húðina
Andrea spáir ekki síður í hár og
húð en fatatísku. Hún segist alltaf
hafa hugsað mjög vel um húðina.
„Ég sakna þess ekki að vinna sem
förðunarfræðingur enda hef ég
meiri áhuga á fatahönnun. Hins
vegar hentar það mjög vel að hafa
þetta nám í mínu starfi. „Ég get
farðað fyrirsæturnar mínar eða
bent konum á hvaða liti þær eiga
að nota í förðun við kjóla sem
þær kaupa hjá mér. Mér finnst
íslenskar konur yfirleitt hugsa vel
um húðina og mála sig hæfilega.
Helst finnst mér að ungar stúlkur
farði sig aðeins of mikið. Of mikið
af svörtum eyeliner, gerviaugna-
hárum og þykkum svörtum auga-
brúnum. Sjálf vel ég förðunarvörur
sem heita Nyx og ég elska pallett-
una mína sem heitir Love Contours
All. Ég þarf ekki annað í snyrti-
budduna mína. Þetta eru augn-
skuggar, kinnalitir og sólarpúður.
Ég nota aldrei meik, vel frekar
sólarpúðrið. Ég nota alltaf Bioeffect
á húðina á kvöldin. Kremið gefur
ótrúlega mikinn raka og er frábær
íslensk vara. Svo nota ég auðvitað
hyljara sem kemur sér oft vel. Það
skiptir öllu máli að hugsa vel um
húðina á kvöldin áður en maður
fer að sofa. Ég er heppin með húð,
hef ekki átt í neinum sérstökum
vandamálum, kannski af því að ég
hugsa vel um hana. Í mínum huga
er minna meira þegar kemur að
förðun. Oft skapast skemmtileg
umræða í búðinni hjá mér um
þessa hluti,“ segir Andrea en konur
á öllum aldri leita til hennar. „Ég
mála mig á hverjum degi en nota
náttúrulega og fallega liti.“
Bleikt áfram í tísku
Andrea bendir á að ekki eigi að
skreyta sig með öllum fínu hlut-
unum í einu. „Maður getur verið
í látlausum kjól með glæsilega
eyrnalokka, hálsfesti eða í litríkum
skóm. Þegar ég vann við brúðar-
förðun lagði ég alltaf mikla áherslu
á að konan ætti að vera náttúrulega
falleg. Maður undirstrikar fegurð-
ina með látleysi,“ segir Andrea sem
bendir á að bleikir litatónar muni
halda velli með haustinu bæði í
förðun og fatnaði.
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumaður auglýsinga: Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433
Andrea Magnúsdóttir, sem er lærður förðunarfræðingur, hafði starfað við förðun
áður en hún hélt til Danmerkur
að læra fatahönnun. Hún stofnaði
Júníform ásamt Birtu Björnsdóttur
árið 2003 ásamt því að starfa hjá
NTC. Áhuginn á fatahönnun var
alltaf til staðar frá barnsaldri enda
voru báðar ömmur hennar flinkar
saumakonur. „Ég er alla daga að
hanna föt, sníða og framleiða. Líf
mitt snýst voða mikið um vinnuna.
Þessa dagana er ég að hanna kjóla
og peysur fyrir næsta vetur. Þótt ég
sé ekkert sérstaklega ánægð með
sumarveðrið okkar þá hentar það
vinnunni vel,“ segir Andrea.
Sumarfrí og vinna
Í sumarfríinu ætlar hún til Ítalíu.
„Ég ætla að heimsækja saumastof-
una mína sem er þar og þetta er því
bæði vinnuferð og frí. Við munum
taka smá hvíld í leiðinni. Hluti af
línunni minni er saumaður á Ítalíu
og annar í Hafnarfirði þar sem við
erum einnig með saumastofu. Ég
legg mikla áherslu á þægilegan
kvenfatnað og finnst æðislega
gaman að nota liti. Tískan er litrík
í sumar og það má eiginlega allt,“
segir hún. „Blómamynstur og lit-
ríkir skór. Jafnvel jakkaföt mega
vera gul,“ bendir Andrea á og segir
að tískan sé mjög að sínu skapi.
„Eftir því sem konur eldast eiga
þær að klæðast litum því þeir gera
svo mikið fyrir útlitið. Þótt talað sé
um að íslenskar konur séu svart/
Andrea hefur gaman af litum og segir að þegar konur
eldist eigi þær að vera óhræddar við liti.
Gallabuxur og síður bleikur kjóll. Takið eftir rauðu
skónum. Sannarlega sumarlegt.
Hárgreiðslan þarf ekki að vera flókin þegar maður klæðist fallegum litum.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Ég legg mikla
áherslu á þægi-
legan kvenfatnað og
finnst æðislega gaman
að nota liti. Tískan er
litrík í sumar og það má
eiginlega allt,
Andlitskrem
fyrir þurra húð
Fæst í apótekum
· Engir parabenar
· Engin ilmefni
· Engin litarefni
Íslenskt Astaxanthin fyrir húðina
Ertu á leið
í sólina?
Þú færð vörur KeyNatura í Fjarðarkaupum, Mamma veit best, Hagkaupum,
Heilsuver, Heilsuhúsinu, í apótekum og í vefverslun okkar, keynatura.is.
2 KYNNINGARBLAÐ 2 2 . j Ú N í 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RHÚÐ oG HÁR
2
2
-0
6
-2
0
1
8
0
5
:1
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
-N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
3
5
-6
C
2
8
2
0
3
5
-6
A
E
C
2
0
3
5
-6
9
B
0
2
0
3
5
-6
8
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K