Fréttablaðið - 22.06.2018, Qupperneq 52
HÁGÆÐA IÐNAÐARHURÐIR
Járnháls 2-4 | 414-8600 | velaborg@velaborg.is
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Föstudagur
hvar@frettabladid.is
22. júní 2018
Tónlist
Hvað? Bjarki, Altern 8, Exos
Hvenær? 23.00
Hvar? Húrra, Tryggvagötu
Altern 8 eru hinir goðsagnakenndu
Reif bræður sem létu gamminn
geysa í byrjun 9. áratugarins. Þeir
voru meðal þeirra fyrstu sem settu
svip sinn á rave- og hardcore-senu
Bretlandseyja og sóttu áhrif sín frá
raftónlistarmenningu Chicago og
Detroit.
Hvað? Sumargleði m/ Guðnýju
Maríu
Hvenær? 22.22
Hvar? Gullöldin, Hverafold
Til að gefa þessari Sumargleði
okkar aukið vægi fengum við gleði-
gjafann hana Guðnýju Maríu til
þess að koma fram á Sumargleði-
tónleikum á Gullöldinni.
Hvað? Svavar Knútur og Kristjana
Stefáns á Bjarteyjarsandi
Hvenær? 20.00
Hvar? Bjarteyjarsandur
Vinirnir og söngvaskáldin Svavar
Knútur og Kristjana Stefáns fagna
10 ára samstarfi um þessar mundir
og af því tilefni koma þau saman á
Költmyndin Blade Runner verður í dúndrandi partísýningu í Bíói Paradís.
Það verður hægt að fylgjast með íslenska landsliðinu spila við Nígeríu á risaskjáum víðsvegar um borgina.
sinni árlegu sumartónleikaferð. Þar
ríkir bæði gleði og angurværð ásamt
örlitlum fíflagangi og bera þau
vinirnir á borð fjölbreytta dagskrá
dúetta, sem rúmar allt frá Abba til
Dolly Parton með viðkomu hjá Páli
Ísólfssyni, auk frumsaminna laga og
hinna ýmsu gleði- og tregabomba,
ljóðalestrar og gamansagna.
Hvað? Föstudagskvöld á Múlanum
með Latínsveit Tómasar R.
Hvenær? 21.00
Hvar? Harpa
Sumardagskrá Múlans heldur
áfram og í sumar verður bryddað
upp á þeirri nýbreytni að bjóða
upp á tónleika á föstudagskvöld-
um líka. Á vaðið ríður Latínsveit
Tómasar R. Tónleikarnir eru sam-
starfsverkefni Múlans og Heims-
tónlistarklúbbsins.
Viðburðir
Hvað? Blade Runner – föstudags-
partísýning!
Hvenær? 20.00
Hvar? Bíó Paradís, Hverfisgötu
Blade Runner verður sýnd í lokaút-
gáfu Ridleys Scott, þar sem við
fáum að sjá lengri útgáfu myndar-
innar og áður óséð efni, m.a.
tæknibrellur. Kvikmyndin kom
út árið 1982 í leikstjórn Ridleys
Scott eftir sögu Philips K. Dick, Do
Androids Dream of Electric Sheep?
Myndin er í dag ein þekktasta kvik-
myndaða vísindaskáldsagan.
Hvað? Ísland-Nígería á Melavellinum
Hvenær? 14.00
Hvar? Við hliðina á Vesturbæjarlaug
Frá Brauð&co, Hagavagninum,
KaffiVest og Melabúðinni: Eftir
frábært Vesturbæjar-áhorf á móti
Argentínu getum við ekki annað en
endurtekið leikinn á Melavellinum,
og núna hugsanlega án rigningar!
En takið með ykkur stóla, jafnvel
teppi ef það er þurrt eða annað
sem lætur ykkur líða vel. Einhverjar
veitingar verða seldar á staðnum
– að minnsta kosti drykkjarföng.
Við viljum þakka Coke á Íslandi og
Origo fyrir að hjálpa okkur að gera
þetta að veruleika!
Hvað? Bryggjan Brugghús – HM
veisla
Hvenær? 15.00
Hvar? Bryggjan Brugghús, Granda-
garði
Allir leikir Íslands verða sýndir á
risaskjáum og þar á meðal risa-
tjaldi úti á bryggjunni ef veður
leyfir. Fyrir hvert mark sem Ísland
skorar verða 100 fríir bjórar á
barnum í boði hússins, (þ)yrstur
kemur (þ)yrstur fær.
Hvað? Forget-Me-Nots í Gaflaraleik-
húsinu
Hvenær? 20.00
Hvar? Gaflaraleikhúsið, Hafnarfirði
Í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði
sýnir íslensk-breski leikhópurinn
Rokkur Friggjar nýtt verk. Verkið
heitir Forget-Me-Nots eða Gleym-
méreiar og gerist í Hvalfirðinum
árið 1940.
Hvað? Ásdís Sif Gunnarsdóttir
Hvenær? 19.00
Hvar? Mengi, Óðinsgötu
Ásdís Sif Gunnarsdóttir verður
með lifandi vídeó- og performance
dagskrá kl. 19.00 í Mengi á einum
lengsta degi ársins. Föstudaginn
22. júní mun hún fremja nokkur
gjörningaverk flutt með þátttöku
áhorfenda. Sannkallað sumarsól-
stöðu-happening í anda Ásdísar!
Sýningar
Hvað? Málverkasýning
Hvenær? 17.00
Hvar? Grafíksalurinn, Tryggvagötu
Verk unnin með blandaðri tækni
mest akrýl, bleki og litum.
Hvað? Opnun – Tölt um tilveruna
Hvenær? 16.00
Hvar? Listasalur Mosfellsbæjar
Guðrún er myndlistarkona og lækn-
ir. Hún hefur lagt stund á leirlist og
gefið út ljóð en seinni ár einbeitt
sér að vatnslitaverkum. Guðrún
hefur haldið nokkrar einkasýningar
og tekið þátt í fjölmörgum sam-
sýningum á Íslandi og erlendis. Hún
sýndi m.a. verk fyrir hönd Íslands í
NAS (Nordiska Akvarellsällskapet)
á 18. sýningu ECWS (European Con-
federation of Watercolour Societies)
á Spáni árið 2015. Í fyrra tók hún
þátt í alþjóðlegri vatnslitasýningu í
Norræna húsinu í Reykjavík ásamt
72 málurum Norræna vatnslita-
félagsins og Royal Watercolour
Society of Wales. Verkin á sýning-
unni eru öll máluð með vatnslitum
og innblásin af náttúrunni. Þau sýna
landslag og jurtir, fólk og dýr og
ýmis önnur náttúrufyrirbrigði. Nátt-
úran er Guðrúnu hugleikin í allri
hennar listsköpun. Vatnslitirnir eru
listakonunni eins konar íhugun og
endurnæring í erilsömu lífi.
2 2 . j ú n í 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U R32 m e n n i n G ∙ F R É T T A B L A ð i ð
2
2
-0
6
-2
0
1
8
0
5
:1
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
3
5
-5
3
7
8
2
0
3
5
-5
2
3
C
2
0
3
5
-5
1
0
0
2
0
3
5
-4
F
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K