Fréttablaðið - 02.07.2018, Qupperneq 10
2 . j ú l í 2 0 1 8 M Á N U D A G U R10 S p o R t ∙ F R É t t A B l A ð i ð
sport
Stjarna helgarinnar á
HM 2018
HM 2018 í Rússlandi, 16-liða úrslit
Frakkland - Argentína 4-3
1-0 Antoine Griezmann, víti (13.), 1-1 Ángel
Di María (41.), 1-2 Gabriel Mercado (48.), 2-2
Benjamin Pavard (57.), 3-2 Kylian Mbappé
(64.), 4-2 Mbappé (68.), 4-3 Sergio Agüero
(90+3.).
Úrúgvæ - Portúgal 2-1
1-0 Edinson Cavani (7.), 1-1 Pepe (55.), 2-1
Cavani (62.).
Spánn - Rússland 1-1 (3-4)
1-0 Sergei Ignashevich, sjálfsmark (12.), 1-1
Artem Dzyuba, víti (41.).
Rússland vann í vítakeppni, 3-4.
Króatía - Danmörk 1-1 (3-2)
0-1 Mathias Jörgensen (1.), 1-1 Mario
Mandzukic (4.).
Króatía vann í vítakeppni, 3-2.
Ungstirnið Kylian Mbappé sýndi
heimsbyggðinni hversu góður hann
er þegar Frakkland vann 4-3 sigur
á Argentínu í fyrsta leik 16-liða úr-
slitanna á heimsmeistaramótinu í
Rússlandi á laugardaginn.
Mbappé var síógnandi allan leik-
inn og varnarmenn Argentínu réðu
ekkert við hann. Mbappé fiskaði víti
á 13. mínútu sem Antoine Griez-
mann skoraði úr og kom Frakklandi
í 1-0. Mbappé skoraði svo þriðja
og fjórða mark Frakka með aðeins
fjögurra mín-
útna millibili
um miðjan
seinni hálf-
leik. Hann
er kominn
með þrjú
mörk á HM
og er
marka-
hæstur
Frakka.
ÍBV - Grindavík 3-0
1-0 Gunnar Heiðar Þorvaldsson (34.), 2-0
Shahab Zahedi Tabar (47.), 3-0 Shahab (66.).
KA - Breiðablik 0-0
Rautt spjald: Aleksandar Trninic, KA (51.).
Keflavík - Valur 0-2
0-1 Ívar Örn Jónsson (28.), 0-2 Patrick
Pedersen (33.).
KR - Víkingur R. 0-1
0-1 Bjarni Páll Linnet Runólfsson (46.).
Fjölnir - Fylkir 2-1
0-1 Albert Brynjar Ingason (85.), 1-1 Berg-
sveinn Ólafsson (87.), 2-1 Torfi Tímoteus
Gunnarsson (90.).
Efri
Valur 24
Stjarnan 19
Breiðablik 18
Grindavík 17
FH 16
KR 13
Neðri
Víkingur R. 12
Fjölnir 12
ÍBV 11
Fylkir 11
KA 9
Keflavík 3
Pepsi-deild karla
KöRFUBolti „Við hlökkum bara til.
Þetta er mjög skemmtileg höll og
það verður uppselt á leikinn,“ sagði
Hlynur Bæringsson, fyrirliði körfu-
boltalandsliðsins, í samtali við
Fréttablaðið í gær.
Hlynur og félagar mæta Finnum
í lokaleik sínum í F-riðli undan-
keppni HM 2019 og verða að vinna
til að komast í milliriðla. Ísland tap-
aði á grátlegan hátt fyrir Búlgaríu á
föstudaginn, 88-86.
„Við höfum farið yfir þann leik
eins vel og við höfum getað. En
einbeitingin er aðallega á leiknum
gegn Finnum,“ segir Hlynur sem var
stigahæstur íslensku leikmannanna
gegn Tékkum með 16 stig. Hann
segir að tapið fyrir Búlgörum svíði.
„Þetta var mjög stórt. Þetta var
þungur hnífur,“ segir Hlynur en
íslenska liðið fékk tækifæri til að
jafna eða vinna leikinn gegn Búlg-
aríu í lokasókninni.
Leikurinn í dag er þriðji leikur
Íslands og Finnlands á innan við ári.
Þau mættust í Helsinki í lokaumferð
riðlakeppninnar á EM í september
þar sem Finnar höfðu betur, 83-79,
eftir góðan endasprett. Íslendingar
unnu hins vegar fyrri leik liðanna í
undankeppni HM í Laugardalshöll-
inni, 81-76. Íslenska liðið tryggði sér
sigurinn með því að vinna 4. leik-
hlutann 26-13.
Hlynur segir að öfugt við mörg
lið hafi Finnar ekki mikla líkamlega
yfirburði yfir Íslendinga. „Við getum
spilað aðeins öðruvísi á móti þeim.
Þeir eru ekki með marga stóra og
sterka leikmenn sem eru góðir með
bakið í körfuna. Þeir eru með góða
og stóra skotmenn. Mér finnst þeir
henta okkur ágætlega. Líkamlegir
yfirburðir eru ekki eins rosalegir og
við lendum stundum í,“ segir hann.
„Það er margt svipað með þessum
liðum. Þessi kjarni í finnska liðinu
og þjálfarinn eru búnir að vera lengi
saman. Það er eining í þessu liði sem
mörg landslið vantar kannski. Þeir
græða á því,“ bætir Hlynur við.
Finnar voru án sinnar skærustu
stjörnu, Lauri Markkanen, í fyrri
leiknum gegn Íslandi í undan-
keppninni. Chicago Bulls-maðurinn
er kominn aftur í finnska liðið og
lék með því í tapinu fyrir Tékkum,
77-73, á föstudaginn. Það þýðir að
Finnar verða að vinna Íslendinga í
dag til að komast í milliriðla.
„Við höfum séð brot úr leikn-
um þeirra gegn Tékkum og þá
fannst mér þeir ekkert sérstak-
lega skarpir. Það eru veikleikar hjá
þeim sem við getum nýtt okkur,
og öfugt,“ segir Hlynur að lokum.
ingvithor@frettabladid.is
Finnar henta okkur ágætlega
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir því finnska í Helsinki í dag og þarf sigur til að komast í milliriðla
í undankeppni HM 2019. Fyrirliði íslenska liðsins segir leikstíl Íslands og Finnlands ekki ósvipaðan.
Fjölnismenn komnir upp úr fallsæti
Dramatík í Grafarvoginum Pepsi-deild karla fór aftur af stað í gær eftir nokkuð langt hlé vegna heimsmeistaramótsins í Rússlandi. Í Grafarvogi
hafði Fjölnir betur gegn Fylki, 2-1, og lyfti sér þar með upp úr fallsæti. Þetta var fyrsti sigur Fjölnis í rúman mánuð. Öll mörkin komu á síðustu fimm
mínútunum. Miðverðir Fjölnis, Bergsveinn Ólafsson og Torfi Tímoteus Gunnarsson, skoruðu mörk Grafarvogsliðsins. FRéttABlAðið/ANtoN BRiNK
Við getum spilað
aðeins öðruvísi á
móti þeim. Þeir eru ekki með
marga stóra og sterka leik-
menn sem eru góðir með
bakið í körfuna.
Hlynur Bæringsson
GolF Úrslitin á Íslandsmótinu í
holukeppni, Origo-bikarnum, réð-
ust í gær. Leikið var á Hólmsvelli í
Leiru hjá Golfklúbbi Suðurnesja.
Alls hófu 32 karlar og 24 konur
keppni á föstudaginn.
Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, og
Rúnar Arnórsson, Keili, urðu hlut-
skörpust. Þetta eru fyrstu Íslands-
meistaratitlar beggja í holukeppni.
Í fyrstu þremur umferðunum var
leikið í riðlakeppni og efstu kylfing-
arnir úr hverjum riðli fóru áfram í
átta manna úrslit.
Ragnhildur sigraði Andreu Ýri
Ásmundsdóttur, GA, í átta manna
úrslitunum, 7/5. Í undanúrslitunum
bar hún svo sigurorð af Huldu Clöru
Gestsdóttur, GKG, 3/2. Í úrslita-
leiknum í kvennaflokki mættust
Ragnhildur og Helga Kristín Einars-
dóttir, Keili, og hafði sú fyrrnefnda
betur, 2/1.
Rúnar bar sigurorð af Kristjáni
Benedikt Sveinssyni, GA, í átta
manna úrslitum, 5/4. Í undanúr-
slitunum hafði hann betur gegn
Andra Má Óskarssyni, GHR, 3/2
og í úrslitunum sigraði Rúnar Birgi
Björn Guðjónsson, félaga sinn úr
Keili, 3/2.
Hulda Clara vann bronsið í
kvennaflokki en hún hafði betur
gegn Hafdísi Öldu Jóhannsdóttur,
GK, í leiknum um 3. sætið, 4/3. Í
bronsleiknum í karlaflokki vann
Ingvar Andri Magnússon Andra Má,
3/2. – iþs
Ragnhildur og Rúnar meistarar í fyrsta sinn
Rúnar og Ragnhildur, Íslandsmeistararnir í holukeppni. MyND/GSÍ/HARi
HM í dag
14.00 Brasilía – Mexíkó
18.00 Belgía – Japan
0
2
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
4
9
-9
7
8
C
2
0
4
9
-9
6
5
0
2
0
4
9
-9
5
1
4
2
0
4
9
-9
3
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
1
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K