Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.07.2018, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 09.07.2018, Qupperneq 8
lækkað verð á grillum! elko outlet 89.995 verð áður: 99.995 WEBER GENESIS GASGRILL E310GENESIS WEBER E310 CLASSIC GASGRILL E310CLASSIC 69.995 79.995 verð áður: 74.995 verð áður: 84.995 WEBER E-310 SPIRIT ORIGINAL GASGRILL E310ORIGINAL WEBER GASGRILL Á FÖSTUM FÓTUM Q2200F WEBER GASGRILL M. HLIÐARBORÐUM Q1200S 39.99529.995 verð áður: 47.995verð áður: 32.995 59.995 verð áður: 69.995 WEBER GASGRILL Á FÓTUM Q3200S TAÍLAND Fjórir af taílensku drengj- unum tólf sem fastir hafa verið neðanjarðar í Tham Luang-hell- inum eru komnir upp og gengu björgunaraðgerðir í gær vel. Þegar björgunaraðilar höfðu náð drengj- unum fjórum út var ákveðið að taka pásu, undirbúa næstu skref og hvílast. Gert var ráð fyrir að minnsta kosti 10 tíma pásu, þegar Frétta- blaðið fór í prentun. Ákveðið var að ráðast í björg- unarleiðangurinn á sunnudag vegna ótta við síhækkandi vatnsborð í hellinum. Látið var til skarar skríða þegar stytti upp um tíma, mun fyrr en áætlað hafði verið. Níutíu kafarar, þar af 40 frá Taí- landi og 50 víðs vegar að úr heim- inum, hafa unnið að skipulagningu og framkvæmd björgunaraðgerð- anna. Læknar munu hafa metið drengina á laugardag og forgangs- raðað hverjum ætti að bjarga fyrst út frá ástandi þeirra. Heimsbyggðin hefur fylgst með málinu frá því að fyrst spurðist út að fótboltaliðið unga ásamt þjálf- ara þess hefði horfið. Þeir fundust á mánudag eftir níu daga leit í myrku neðanjarðarkerfi Tham Luang- hellisins. Drengirnir eru á aldrinum 11-17 ára og þjálfarinn 25 ára og hefur hann beðið foreldra drengjanna afsökunar á hvernig fyrir þeim er komið. Þeir eru fastir um fjóra kíló- Fjórir drengir lausir úr hellaprísundinni Fjórir af fótboltadrengjunum tólf sem fastir hafa verið í helli í norðurhluta Taílands í rúmar tvær vikur eru komnir út heilir á húfi. Ráðist var í björgunaraðgerðir í gær þar sem hagstæð skilyrði mynduðust. Gekk vonum framar. Drengirnir átta og þjálfarinn bíða björgunar. Björgunaraðilar ferja fyrstu tvo drengina sem bjargað var úr hellinum um borð í þyrlu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Til þessara hugrökku drengja og þjálfara sem fastir eru í Tham Luang- hellinum í Thaílandi og fjölskyldna þeirra: Fólk er að hugsa til ykkar um allan heim og það á líka við um okkur hér á Íslandi. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands, á Twitter Bandaríkin eru að vinna náið með ríkisstjórn Taílands til að hjálpa öllum þessum börn- um út úr hellinum og í var. Mjög hugrakkt og hæfileika- ríkt fólk! Donald Trump Bandaríkjaforseti, á Twitter Hugrekki, útsjónar- semi og styrkur krakk anna og kafarateymis- ins heldur áfram að koma mér á óvart. Sýnir manns- andann í sinni bestu mynd. Elon Musk sem boðið hafði fram aðstoð sína við björgunina á Twitter metri inni í hellinum sem fylltist skyndilega af vatni í mikilli ofan- komu. Upphaflega var talið að drengirnir yrðu að dúsa í prísund- inni þar til rigningatímabilið gengi yfir sem hefði getað þýtt mánuði. „Aðstæður í dag voru ákjósan- legar með tilliti til heilsu barnanna, vatnsmagns og björgunarliðs okkar,“ sagði Narongsak Osatanka- korn, yfirmaður aðgerðanna. „Þessi björgun var okkar meist- araverk.“ Fyrstu drengirnir komu út laust fyrir klukkan sex að morgni sunnudags að staðartíma. Tveimur tímum síðar komu hinir tveir og fögnuður braust út. mikael@frettabladid.is JAPAN Yfir 70 eru látnir og hátt í hundrað er saknað eftir úrhellis- rigningar, skriðuföll og flóð víðs vegar um Japan. Shinzo Abe forsætisráðherra hefur sagt að björgunarlið séu í kappi við tímann en vatn flæðir nú um götur fjölmargra borga, bæja og þorpa í landinu. Hátt í fimm milljónir manna hafa neyðst til að yfirgefa heimili sín undanfarna daga þar sem þeim var hætta búin af vatnsflóðinu. Tæplega 50 þúsund manns hafa tekið þátt í leitinni að týndu fólki og við að bjarga þeim sem þurfa á hjálp að halda. Yoshihide Suga, talsmaður ríkis- stjórnarinnar, segir að flestir hinna týndu séu frá suðurhluta Hirosh- ima. Þá er ástandið einnig slæmt í Kýótó. Veðurathuganir benda til þess að regnið hafi verið 26,3 senti- metrar á ákveðnu svæði í Kochi sem er met frá því mælingar hófust árið 1976. „Húsið mitt skolaðist bara í burtu með flóðinu og er gjörónýtt,“ er haft eftir Toshide Takigawa, íbúa í Hir- osh ima, í samtali við The Guardian. Kona ein viðrar áhyggjur sínar og segir hverfi sitt hafa orðið undir „hafsjó“ á skömmum tíma. „Ég hef áhyggjur því ég veit ekki hversu lengi þetta varir.“ „Við höfum aldrei upplifað nokk- uð þessu líkt þegar kemur að ofan- komu,“ hefur breska ríkisútvarpið eftir veðurfræðingi í Japan. Til að setja ofankomuna í sam- hengi þá hafði í gær, frá því á fimmtudag, rignt þrisvar sinnum meira en heildarúrkoman er að meðaltali í júlímánuði í vesturhluta Japans. – dfb, smj Rúmlega sjötíu látnir í gríðarlegum flóðum og skriðum í Japan Loftmynd af borginni Kurashiki í gær sýnir afleiðingarnar. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA 9 . J Ú L Í 2 0 1 8 M Á N U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 9 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 6 -C 8 C C 2 0 5 6 -C 7 9 0 2 0 5 6 -C 6 5 4 2 0 5 6 -C 5 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 8 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.