Fréttablaðið - 09.07.2018, Síða 4
TILBOÐSVERÐ FRÁ: 1.990.000 KR. – LISTAVERÐ FRÁ: 2.390.000 KR.
ÚTFÆRSLUR Í BOÐI: POP, LOUNGE, BEINSKIPTUR/SJÁLFSKIPTUR, BLÆJU OG 105 HESTAFLA TWINAIR (TAKMARKAÐ MAGN BÍLA Í BOÐI)
FIAT 500 Á FRÁBÆRU FIAT-SUMARTILBOÐI
MAMMA
MIA!
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF · UMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI · WWW.FIAT.IS
ÞVERHOLT 6 · 270 MOSFELLSBÆR · SÍMI: 534 4433 · WWW.ISBAND.IS · OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 · LAUGARDAGA 12-16
KJARAMÁL Kvíði fyrir fæðingu er
sjálfstæður áhættuþáttur verðandi
mæðra og hvers kyns kvíði og álag
sem konur eru undir rétt fyrir fæð-
ingu getur þýtt frekari inngrip í fæð-
ingunni sjálfri. Einnig skiptir miklu
máli að ljósmæður sjái um fræðslu
og umönnun á meðgöngu.
Þetta segir Rúnar Vilhjálmsson,
prófessor í heilsufélagsfræði við
Háskóla Íslands.
Betri líðan á meðgöngu
Ljósmæðrastýrð þjónusta á með-
göngu og í fæðingu er betri fyrir
hina verðandi móður en þjónusta
sem stýrt er af lækni. Því er mikil-
vægt að þjónustu við verðandi
mæður sé stýrt af ljósmæðrum og
óæskilegt að aðrar heilbrigðisstéttir,
svo sem læknar, stýri henni.
„Það hefur komið í ljós í rann-
sóknum að þjónusta, sem stýrt er
af ljósmæðrum á meðgöngu og í
fæðingu, hefur jákvæð áhrif á bæði
fæðingarþyngd barna og nýbura- og
ungbarnadauða. Einnig skiptir þessi
þjónusta miklu máli fyrir heilsu
móður, líðan hennar á meðgöngu,
brjóstagjöf og möguleg inngrip í
fæðingu,“ segir Rúnar.
Varar við hættumerkjum
„Það er mikilvægt fyrir hina verð-
andi móður að hún upplifi og skynji
öryggi þegar kemur að þjónustunni.
Ef það verður skortur á ljósmæðrum
og aðrir heilbrigðisstarfsmenn fara
að sinna þessum störfum á með-
göngu, þá geta verið þar ákveðin
hættumerki út frá rannsóknum,“
heldur Rúnar áfram.
Á annan tug ljósmæðra hafa sagt
upp störfum vegna bágra kjara og
hefur vantað ljósmæður á allar
vaktir á Landspítalanum síðan þær
gengu út í lok síðasta mánaðar. Enn
er ósamið í deilu ljósmæðra og ríkis-
ins og hefur samningalotan nú stað-
ið yfir í um 40 vikur, eða sem nemur
meðalmeðgöngutíma móður.
„Styrkur ljósmæðra felst í nokkr-
um þáttum og að æskilegt sé að ljós-
móðir sé virkur hluti af þjónustu við
mæður og fylgi konunni frá fyrstu
heimsókn til fæðingar. Það hefur
áhrif á næringu ungbarna, brjósta-
gjöf og andlega heilsu móður.
Styrkurinn felst einmitt í þessari
skjólstæðingafræðslu,“ bætir Rúnar
við. sveinn@frettabladid.is
Telur varhugavert að aðrir en
ljósmæður sinni mæðravernd
Þjónusta á meðgöngu sem stýrt er af ljósmæðrum hefur jákvæð áhrif á fæðingarþyngd og á nýbura- og ung-
barnadauða. Þetta sýna rannsóknir, að sögn Rúnars Vilhjálmssonar, prófessors í heilsufélagsfræði við Há-
skóla Íslands. Enn er ósamið í deilu ljósmæðra við ríkið. Samningalotan hefur nú staðið í um fjörutíu vikur.
Samningalota ljósmæðra við ríkið hefur nú tekið sem samsvarar meðal meðgöngutíma kvenna. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Það er mikilvægt
fyrir hina verðandi
móður að hún upplifi og
skynji öryggi.
Rúnar
Vilhjálmsson,
prófessor í
heilsufélagsfræði
SKIPULAGSMÁL Byggingarfulltrúi
mun ekkert aðhafast vegna meintra
óleyfisframkvæmda við bílaplan
umdeildrar rútumiðstöðvar í Skóg-
arhlíð 10. Þetta kemur fram í svari
frá Jóni Halldóri Jónassyni, upplýs-
ingafulltrúa hjá Reykjavíkurborg,
við fyrirspurn Fréttablaðsins.
„En það er niðurstaða skoðunar
heilbrigðiseftirlitsins að þarna
verði að sækja um starfsleyfi og því
gert ráð fyrir að aðilar muni sækja
um byggingarleyfi vegna þeirra
breytinga sem eftir atvikum þarf að
ráðast í og krefjast byggingarleyfis,“
segir í svari Jóns Halldórs. – gar
Ekkert aðhafst
vegna bílaplans
Í Skógarhlíð. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
SAMFÉLAG Stjörnukokkurinn og
þáttastjórnandinn Gordan Ramsay
var staddur hér á landi um helgina
ef marka má myndir sem hann birti
á Instagram. Af þeim að dæma fór
þessi heimsþekkti sjónvarpskokkur
í laxveiði og út að borða á veitinga-
staðinn Sumac á Laugavegi á föstu-
dagskvöld.
„Besti lax í heimi,“ skrifaði kokk-
urinn, sem liggur vanalega ekki á
skoðunum sínum, með mynd sem
hann birti á Instagram og brosir
sínu breiðasta. Þá sagði Ramsey
matinn á Sumac með því betra sem
maður fengi í Reykjavík. – dfb
Ramsey sáttur
við lax og mat
Gordon Ramsey. MYND/AF INSTAGRAM
LEIÐRÉTTING
Í frétt á síðu 8 í Fréttablaðinu þann
5. júlí, undir fyrirsögninni Svana-
söngur kjararáðs, var staðhæft að
laun forstjóra Landmælinga Íslands
hefðu ekki verið ákvörðuð síðan
í tíð kjaranefndar. Hið rétta er að
það var síðast gert árið 2012. Þá var
Bergþóra Þorkelsdóttir titluð vega-
málastjóri en hún mun ekki taka við
embættinu fyrr en 1. ágúst. Hreinn
gegnir embættinu áfram þangað til.
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjavíkur
hefur fellt úr gildi synjun Trygginga-
stofnunar ríkisins (TR) á umsókn
föður langveiks barns um tekju-
tengdar greiðslur til foreldra á vinnu-
markaði. Dómurinn taldi synjunina
andstæða stjórnarskrá.
Árið 2006 tóku gildi ný lög um
greiðslur til foreldra langveikra eða
alvarlega fatlaðra barna. Þau taka
aðeins til barna sem fæddust 1. októ-
ber 2007 eða síðar.
Drengurinn sem um ræðir fædd-
ist í október 2005. Föður hans var
synjað um greiðslurnar í tvígang
vegna þessa auk þess sem Hæsti-
réttur vísaði máli hans frá árið 2016.
Því var málið fært í nýjan búning, úr
kröfu um greiðslu í ógildingarmál.
Dómurinn taldi að það stæðist
ekki málefnalega skoðun að gera
greinarmun á rétti til félagslegrar
aðstoðar til fjölskyldna barna sem
eru fötluð eða alvarlega veik eftir því
hvenær fötlun þeirra eða sjúkdómur
er greindur. Synjunin var því felld
úr gildi. Þá gerir dómurinn athuga-
semdir við framgöngu ríkisins.
„Við gæslu hagsmuna ríkisvaldsins
eða einstakra þátta þess í skiptum
við almenna borgara getur það ekki
verið hlutverk stjórnvalda að leita
allra leiða eða beita öllum brögðum
til að fá sýknu fyrir hið opinbera eða
til að fá málum vísað frá dómi. Þeim
sem falið er að koma fram fyrir hönd
ríkisvaldsins í dómsmáli er ekki tækt
að verjast með öllum sömu ráðum
og einkaaðilum. Þeim sem fara með
opinbert vald eða sem falið er að
gæta hagsmuna hins opinbera er
trúað fyrir hlutverki sem þeir verða
að sinna í almannaþágu og af virð-
ingu fyrir skyldu sinni til að stuðla að
réttmætri niðurstöðu,“ segir í niður-
stöðukafla dómsins.
„Við eigum eftir að sjá hvort TR
unir dómnum. Krafan gæti verið
fyrnd en þá gæti hafa myndast réttur
til skaðabóta,“ segir Júlí Ósk Antons-
dóttir, lögmaður föðurins. – jóe
„Beitti öllum brögðum“ gegn föður langveiks drengs
Við eigum eftir að
sjá hvort TR unir
dómnum. Krafan gæti verið
fyrnd en þá gæti hafa mynd-
ast réttur til skaðabóta.
Júlí Ósk Antons dóttir,
lögmaður föðursins
9 . J Ú L Í 2 0 1 8 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
9
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:1
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
5
6
-B
9
F
C
2
0
5
6
-B
8
C
0
2
0
5
6
-B
7
8
4
2
0
5
6
-B
6
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
8
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K