Verslunartíðindi - 01.07.1924, Page 7

Verslunartíðindi - 01.07.1924, Page 7
YBRSLUNARTlÐINDI 83 að Blíkar deilur sjeu í rauninni ótímabær- ar og til æði lítils gagns. Samningurinn er nú þegar fullgerður og verður ekki riftað eða á neinn hátt breytt, að minsta kosti að sinni til. Er því rjett að biða emhverra framkvæmda og þá láta óánægj- Una í ljósi, ef þess gerist þörf, sem von- andi ekki verður. Skýrsla landsímans 1923. Land8ímaskýrslan fyrir árið 1923 er fyrir nokkru komin út. Á árinu hafa verið afgreidd samtals 193 718 gjaldskyld símskeyti og 379.476 viðtalsbil með tekjum fyrir landsímann, er nema kr. 756.972.56 móti 185.638 gjald- 8kyldum símskeytum og 322.233 viðtals- bilum með tekjum er námu kr. 877.998.47 árið 1922. Gjaldskyld simskeyti innanlands voru 102.924 og gjaldið fyrir þau kr. 212.019.70 (1922, 96.451, kr. 226.987.15). Gjald- skyld símskeyti til útlanda 48.879 og hluti íslands af gjaldinu kr. 131.652.63 (486.16 166.529.93). Gjaldskyld símskeyti frá út- löndum 41915 og ísl. hlutinn kr. 37.551.02 (405.71) 380.81 08). Símtöl (viðtaMúl) 379.476 kr. 356.142,55 (322.223 436.967.10). Tekjur bæjarsímans kr. 210.621.11, en gjöldin kr. 215.708.15, þar af varið til Qýlagninga kr. 158.993,38. Tekjur landsímans samtals kr. 210.621.11 en gjöldin kr. 985.088.43. Á árinu bættust við 13 stöðvar en 3 voru lagðar niður. SaBstttniiir lil Brasi, Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið befur sent Verslunartíðindunum skýrslu utanríkisráðuneytisins með ýmsum leið- beiningum viðvíkjandi saltflsksútflutningi til Brasilíu. Þarf ýmsa nákvæmni og vandvirkni við verkun þessa fiskjar, því sje hann ekki þurkaður og útbúinn á þann hátt, sem þar er krafist, má búast við, að hann verði gerður upptækur af heilbrigðismálastjórninni. Saltfiskur, sem verkaður er fyrir Evrópu- markað, getur tæplega komist óskemdur til Brasilíu, og verður sjerstaklega að gæta þess vandlega, að fískurinn sje nógu vel þurkaður. Útiþurkun verður tæplega full- nægjandi, heldur þarf húsþurkun eða önn- ur hjálparmeðul, svo sem tíðkast í Noregi, Englandi eða öðrum þeim löndum, er senda saltfisk til Brasilíu. Ef nokkur raki er á fiskinum, er hann talinn 2. flokks vara, því þó hann hafi ekki skemst í flutn- ingnum, má fljótlega búast við skemdum, ef hann á að geymast eitthvað rakur í heita loftslaginu í Brasilíu. Mjög áríðandi er að umbúðirnar sjeu vandaðar, því bæði er þá öruggara, að varan komist óskemd og hefur í annan stað betri áhrif á kaupandann. Ennfrem- ur eru góðir kassar talsverðs virði fyrir kaupanda, en miður vandaðir seljast ekki. Úflönd. Danmörk. Sendiherra Dana hefur sent Verslunar- tíðindum yflrlit yfir fjármál og atvinnu- mál Dana í júnímánuði og fer það hjer á eftir. Danska krónan breyttist lítið í júnímán- uði og var dollarinn að meðaltali 5 kr. 96 aurar og sterlingspundið 25 kr. 73 aur. (í maí kr. 5.91 og 25.74). Síðustu dagana í mánuðinum kom nokkur breyting á pen- ingamarkaðinn og hækkaði dollarinn 1. júlí

x

Verslunartíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.