Úr þjóðarbúskapnum : framvindan ... og horfur .. - 25.11.1974, Page 1
ÞJÖÐHAGSSTOFNUN
25/11/1974.
ÖR ÞJÖÐARBÖSKAPNUM:
Ágrip helztu áætlana fyrir árið 1974.
Þjóðarframleiðsla og þjóðartekjur.
Búizt er við, að þjóðarframleiðslan aukist um 3 1/2-4% að
raunverulegu verðgildi á þessu ári. Hins vegar er talið, að
viðskiptakjör rýrni sem nemur um 4-5% af þjóðarframleiðslu, þannig
að raunverulegar þjóðartekjur minnki um 1/2-1%. Spáð er um 34%
meðalhækkun útflutningsverðlags í ísl. krónum, eða 21-22% í
erlendri mynt, og um 45% meðalhækkun innflutningsverðlags í
krónum, eða um 31-32% í erlendri mynt, en þar af veldur hækkun
olíuverðs beint um 11%. Ötflutningsframleiðsla er talin aukast
um 2% frá fyrra ári, eingöngu vegna aukningar sjávarvörufram-
leiðslu, en hins vegar verður að líkindum um nokkra magnminnkun
útflutnings að ræða, vegna aukningar útflutningsvörubirgða.
Nýjasta vitneskja um sjávarvöruframleiðslu á árinu bendir til
nokkru meiri aukningar en reiknað er með í þjóðhagsspánni. Er
nú útlit fyrir nokkra aukningu frystiafurðaframleiðslu, en
hins vegar gæti aukning saltfisk- og skreiðarframleiðslu orðið
minni en gert er ráð fyrir í spánni. Jafnframt má búast við
meiri birgðasöfnun en áður var talið,. þannig að útflutningur
gæti orðið svipaður og spáð var. 1 landbúnaði er gert ráð
fyrir heldur meiri framleiðsluaukningu en í fyrra, m.a. vegna
hinnar góðu uppskeru garðávaxta. Hins vegar er búizt við mun
minni aukningu iðnaðarframleiðslu en á sl. ári, enda er nú
ekki að vænta neinnar aukningar álframleiðslu eins og undanfarin
ár, en álverksmiðjan náði fullum ársafköstum þegar á árinu 1973.
Gert er ráð fyrir, að byggingarstarfsemi muni í ár aukast mun
hægar en í fyrra, einkum vegna eðlilegra takmarkana á framboði
framleiðsluafla í þessari grein, en talsverðrar umframeftir-