Úr þjóðarbúskapnum : framvindan ... og horfur .. - 25.11.1974, Side 2
2.
spurnar eftir vinnuafli hefur gætt í byggingarstarfsemi undan-
gengin tvö ár. í öðrum greinum er £ ár búizt við svipaðri
framleiðsluaukningu og á sl. ári.
Innlend verðmætaráðstöfun er talin aukast um 7 1/2% á
þessu ári að meðtöldum birgða- og bústofnsbreytingum, en rúmlega
6% að þeim frátöldum. Gert er ráð fyrir um 7 1/2% aukningu einka-
neyzlu, og gætir þar einkum hinnar miklu einkaneyzluaukningar,
sem fylgdi í kjölfar kjarasamninganna á fyrri hluta ársins. Sam-
neyzla er talin aukast um svipað hlutfall og á sl. árum eða um
6%. Loks er spáð um 4% aukningu fjármunamyndunar á árinu. Gætir
þar talsverðrar aukningar framkvæmda við Sigölduvirkjun svo og
aukningar skipainnflutnings, en hins vegar mun fjármunamyndun x
íbúðarhúsnæði dragast verulega saman eftir hinn mikla húsainn-
flutning Viðlagasjóðs á sl. ári.
Utanríkisverzlun - greiðslujöfnuður.
Spár um innflutning á þessu ári eru aðallega reistar á
spánum um þróun verðmætaráðstöfunar, sem að ofan er getið, ásamt
beinum upplýsingum um innflutning skipa og fjárfestingarvöru
til meiriháttar framkvæmda, en jafnframt er byggt á innflutnings-
tölum fyrstu átta mánaða ársins. Samkvæmt innflutningsspánni, sem
sett er fram í töflu 5 hér aftar, er gert ráð fyrir, að heildar-
verðmæti almenns vöruinnflutnings aukist um 60% á þessu ári, en
þar af veldur verðhækkun olíu um 14-15%. Ennfremur er gert ráð
fyrir, að sérstakur vöruinnflutningur (skip og flugvélar, Lands-
virkjun, Isal) muni aukast um 50% að verðmæti á þessu ári, einkum
vegna innflutnings til Sigölduvirkjunar og vegna skipainnflutnings.
Vitneskja um þróun innflutnings í september og október bendir hins
vegar til þess, að almennur vöruinnflutningur muni aukast nokkru
meira en spáin gerir ráð fyrir, en jafnframt muni sérstakur vöru-
innflutningur verða nokkru minni en spáin sýnir.
Eins og fyrr segir er reiknað með um a.m.k. 2% magnaukningu
útflutningsframleiðslu á árinu, en jafnframt talsverðri birgða-
aukningu, þannig að um nokkra magnminnkun útflutnings verði að ræða,
eða um 1 1/2%. Samkvæmt þessu næmi verðmæti vöruútflutnings um
34,3 milljörðum króna og heildarverðmæti vöruinnflutnings um