Úr þjóðarbúskapnum : framvindan ... og horfur .. - 25.11.1974, Blaðsíða 4
4 .
október í ár voru að meðaltali 349 skráðir atvinnulausir á öllu
landinu, sem er svipuð tala og x fyrra (306), og að öðru leyti
hefur ekki orðið breyting á. Þannig er skráð atvinnuleysi áfram
bundið við mjög fáa staði, þar sem atvinnuhættir eru þannig, að
nokkurt hlé getur orðið í rekstri þeirra atvinnufyrirtækja, sem miklu
ráða um atvinnuástand á hverjum stað.
Lausleg könnun meðal stærstu verktakafyrirtækja í Reykjavík
og á Akureyri bendir til þess, að vinnuaflsþörf í byggingarstarf-
semi sé nú fullnægt gagnstætt því sem var á sama tíma í fyrra, en
hins vegar gera fyrirtækin ekki ráð fyrir að þurfa að fækka starfs-
liði á næstunni. Nokkuð virðist hafa dregið úr athafnasemi við
íbúðabyggingar í upphafi vetrar, einkum við byrjanir. En þótt
nokkuð hafi slaknað á byrjunum síðari hluta þessa árs, hefur
undangengin misseri verið hafin smíði miklu fleiri íbúða en svo,
að byggingariðnaðurinn geti annað lúkningu þeirra með venjulegum
hraða. Ibúðir í smíðum eru því óvenjulega margar nú, og verkefni
byggingariðnaðarins við íbúðabyggingar því yfrið nóg, þótt
byrjunum kunni að fækka um sinn.
Fyrir árið 1974 er áætlað, að kauptaxtar launþega hækki að
meðaltali um 47% frá fyrra ári. Hinn.l. nóv. sl. höfðu kaup-
taxtar hækkað um 37-38% frá áramótum. A þessu tímabili hafa kaup-
taxtar verkamanna hækkað um nálægt 39% að meðaltali, kauptaxtar
iðnaðarmanna um 41% og kauptaxtar opinberra starfsmanna sennilega
um 33%. Eru þá meðtalin áhrif launajöfnunarbótanna frá l.okt. sl..
Aætlað er, að heildaratvinnutekjur einstaklinga að meðtalinni
fjölgun fólks í vinnu aukist um 52% á þessu ári eða nokkru meira
en sem nemur hækkun kauptaxta, einkum vegna aukinnar yfirvinnu og
launaskriðs. Brúttótekjur einstaklinga eru taldar aukast um 50%
á. árinu, en aukning ráðstöfuriartekna heimilanna er áætluð 53 1/2%,
og kemur hér fram sú lækkun beinna skatta, sem fólst x skatt-
kerfisbreytingunni í marz sl..
Nú er áætlað, að verðlag á vörum og þjónustu verði að meðal-
tali um 42-43% hærra á árinu 1974 en 1973, en frá 1. nóvember 1973
til 1. nóvember sl. hækkaði vísitala vöru og þjónustu (A-liður
framfærsluvísitölu) um 51%. Er vísitalan nú um 16% hærri en hún
verður að meðaltali á árinu 1974. Verðlag hækkaði mjög á öðrum