Verslunartíðindi - 01.12.1937, Blaðsíða 5
11?
VERSLUNARTÍÐINDlI
MÁNAÐARRIT. GEFIÐ ÚT AF VERSLUNARRÁÐI ÍSLANDS
Verslunartíöindi koma út einu sinni i mánuði, venjul. 12 blaðsíður. =
Argangurinn kostar kr. 4.50. — Ritstjórn og afgreiðsla: =
Skrifstofa Verslunarráðs íslands, Eimskipafjelagshúsinu. =
Talsimi369i. Pósthólf 514. — Prentstaður: ísafoldarprentsmiðja h.f. =
=iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiíiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiEiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinn=
20. ár
Desember 1937
12. tbl.
f A. V. TULINIUS.
Axel V. Tulinius ljest í Kaupmannahöfn
7. des. s. 1. eftir margra ára vanheilsu. —
Æfiatriða þessa ágætis merkismanns hef-
ir verið getið í dagblöðun-
um; en þar sem hann hefir
einnig unnið ágætt starf í
þágu íslensks viðskiftalífs
og verið brautryðjandi á
sínu sviði, þykir sjálfsagt
að minnast hans einnig
hjer.
A. V. Tulinius var fædd-
ur á Eskifirði 6. júní 1865.
Foreldrar hans voru Carl
Tulinius kaupm. á Eski-
firði og kona hans Guðrún
Þórarinsdóttir prófasts á
Hofi í Álftafirði.
Axel V. Tulinius byrj-
aði ungur mentaskólanám
í Danmörku, en hvarf síð-
an heim og útskrifaðist úr
Latínuskólanum árið 1884.
Sigldi hann síðan til Kaup-
mannahafnar og las þar
lög. Lauk hann embættis-
prófi 1891. Á stúdentsár-
unum í Kaupm.höfn iðkaði hann mjög
íþróttir í tómstundum sínum, og er eng-
inn efi á því, að sú þekking og reynsla,
sem hann f jekk á íþróttamálunum þá, hefir
orðið þjóðinni að ómetanlegu gagni, því
eftir að hann kom heim, miðlaði hann öðr-
um af áhuga sínum fyrir íþróttalífinu,
stofnaði íþróttafjelög og ljet alla tíð
íþróttamálin mjög til sín taka.
Áður en hann hvarf heim
frá Kaupm.höfn, að end-
uðu námi, starfaði hann
um tíma í lögregluliði
Kaupm.hafnar til þess að
kynna sjer lögreglustörf.
Vakti hann þá á sjer að-
dáun og athygli fyrir af-
rek, sem hann vann sem
lögregluþjónn, þar sem
hann sýndi frábæra karl-
mensku og snarræði.
Eftir að hann kom heim,
varð hann fulltrúi bæjar-
fógetans í Reykjavík frá
1. jan. 1893, en var hálfu
öðru ári síðar settur sýslu-
maður í Norður-Múlasýslu.
Gegndi hann því embætti
til ársloka 1895, en var
þá skipaður sýslumaður í
Suður-Múlasýslu. Fluttist
hann þá frá Seyðisfirði til
Eskifjarðar. Var hann þá
nýkvæntur Guðrúnu, dóttur Hallgríms
Sveinssonar biskups, og bjuggu þau hjón-
in á Eskifirði við hina mestu rausn í full
15 ár. Voru þau með aíbrigðum vinsæl og
unnu sjer virðingu allra.
Hafði Tulinius með höndum ýms trún-