Verslunartíðindi - 01.12.1937, Qupperneq 9

Verslunartíðindi - 01.12.1937, Qupperneq 9
VERSLUNARTÍÐINDI 97 nánar út í þessi lög hjer, en aðeins má benda á, að kaupsýslumönnum er nauð- synlegt að kynna sjer vandlega inni- hald þeirra. Tvenn lög- voru afgr., er snertu síldarverk- smiðjur ríkisins. Heita önnur þeirra Lög um síldurverksiniðjur ríkisins, og lúta, þau mest, að ýmsum framkvæmdum verksmiðjanna og stjórnartilhögun við þær. Þó má vekj( athygli á 7. gr. lagannjaj, er mælir svo fyr'r: Ríkissjóð- ur ber eigi ábvrgS á þeim skuldum, sem síld- arverksmiðjur ríkis'ins stofna til eftir 31. des. 1937, nema heimild sje veitt til þess af Al- þ'ngi. Hin lögin eru um að reisa síldarverksmiðju á Raufarhöfn og auhnmgu við Síldarverk- smiðju rikisins á Siglufirði. Eftir þessum lög- um er ríkisst.jórninni h’eimilað að láta reisa nýja síldia,rverksmiðju á Raufarhöfn, ér geti tekið til starfa á árinu 1938 eða 1939 og vinni úr um 2400 málum á sólarhr'ng. Ennfremur heimilast ríkisstjórninn að breyta síldarverk- smiðjunum á Siglufirði þannig, iað afköst þeirra aukist um 2400 mál á sólarhring. Til þessara framkvæmda heimTast að tiaka lán, aþ að 1 y2 milj. kr. Lög um vátrygginggrfjeiög fyrir vjelháta, er alllangur lagabálkur, þar sem öllum þelm, er eiga vjelbáta, alt að 70 smál. br. og ætliaðir eru til fiskveiðia. við Island, er skylt að vá- fryggja þá í fj'elögum, er F'iskifjelagi íslands er ætliað að gangast fyrir aö stofnuð verði, samkvæmt lögum þessum. Til stofnkostnaðar skal hver skipaeigandi greiða 1% af vátrygg- ingarupphæð hvers skips um l'eið og vátrygg- ing fer fnam í fyrstia. sinn. Fjelögin skulu end- urtryggja, að minsta kosti helming upphæð- arinnar hjá Samábyrgð Islands á fiskiskip- um. Ríkissjóður ábyrgist, með 300 þús. kr., að fjelög'in standi við skuldbindingar sínar. Lög wm tekjur bœjar- og sveitarfjelaga og eftirlit með fjárstjðrn bcejar- og sveitar- sðjórna. Eftir þessum lögum 'er kaupstöðum og sveit- arfjelögum heimilt að leggja árlega fasteigna- skatt á húseignir og önnur mannvirki, lóðir og lendur og skal liann vera þessi: Af bygg- ingarlóðum bygðum og óbygðum alt að 2% af húseignum og öðrum mannvirkjum alt að 1% og af túnum, görðum, reitum, erfðafestu- löndum og öðrum lóðum og lendum 0,5%. í öðrum kafla þessara laga segir, að stofna skuli sjóð, er riefnist jöfnunarsjóður bæjar- og sveitarfjelaga, og greiðir ríkissjóður til hans árlega 700 þús. krónur. Tekjum hins skal verja til jöfnuniar milli bæjar- og sveitarfje- laga, vegna kostnaðar af fátækraframfærslu og elli- og örorkutryggingum og kenmaralaun- um. Atvinnumálaráðherra iiefir yfirstjórn sjóðsins. Samkvæmt 3. kafla laganna er atvinuumála- ráðherra heim’ilt að skipa eftirlitsmann sveit- arstjórnamálefna, er jafnframt sje forstjóri jöfnunarsjóðs, og ‘ er honum skylt að veita bæjar- og sveitarfjelögum þá aðstoð og ráð- leggingar, er liann getur þeim í tje látið. Fátt, var um lög frá þessu þ'ingi, sem snerta verslumarstjettina sjerstaklega. Þó má nefna Lög um verðlag á vörum, og ennfremur Lög 'um gjaldeyrisvershm o. fl. Lög um verðlag á vörum kveða svo á, að sett skuli verðlagsnefnd, skipuð 5 mönnum: 1 tilnefndur iaf Alþýðusambandi Islands, 1 af Landssambandi iðnaðarmanna, 1 af Sambandi ísl. Samvinnufjelaga, 1 laf Yerslunarráði Is- lands og 1 skipaður af ríkisstjórninni án til- nefningar, og sje hann formaður nefndiarinn- ar. Hlutverk verðlagsnefndar er að ákveöa hámarksverð eðia, hámarksálagnmgu, eftir því hvort hentar þykir, í heildsölu og smásölu á þeim vörum, sem á hverjum tíma er ákveðið, aö störf nefndarinnar skuli taka til. Þegar lög þessi komia, t'l framkvæmda, skal ríkisstjórn'in gefa út auglýsingu um þær vörutegundir, eða vörutolla, sem hún ætlast til að verðlagsákvæði verði sett um, og öins ef nýjum vörutegund- um er bætt við. Verölagsnefnd hefir vald til að krefjast upplýsinga um innkaupsVerð, útsöluverð og framleiðslukostnað og dreifingarkostnað á

x

Verslunartíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.