Verslunartíðindi - 01.05.1938, Blaðsíða 10
38
VERSLUNARTlÐINDI
ar hafa samið um að leggja fyrir dóminn,
enda sjeu að minnsta kosti 3 af dómend-
unum því samþykkir. Mál fyrir Fjelags-
dómi skal flytja munnlega. Þó má flytja
skriflega, ef stefndur hvorki mætir nje
lætur mæta, ef málsaðiljar eða umboðs-
menn þeirra óska og dómurinn álítur, að
mál upplýsist betur með þeim hætti.
í munnlega fluttum málum skal kveða
upp dóm innan sólarhrings eftir dómtöku,
en í skriflegum málum innan viku. Ef þessi
tími nægir ekki, skal gera nákvæma grein
fyrir hvað veldur.
Úrskurðum og dómum Fjelagsdóms
verður ekki áfrýjað. Þó má innan viku
frá dómsuppsögn áfrýja til hæstarjettar.
1) frávísunardómi eða úrskurði um frá-
vísun, 2) dómi til ónýtingar, sökum þess
að málið heyri ekki undir Fjelagsdóm, 3)
úrskurð um skyldu til að bera vitni, um
eiðvinning og sektir.
'Síðasti kaflinn eru niðurlagsákvæði um
brot gegn lögunum, og varða þau auk
skaðabóta sektum frá 50—10,000 krónum.
Lög um bókhald voru afgreidd frá þessu
þingi. Er þar fyrst talin upp þau fyrir-
tæki, sem eru bókhaldsskyld, og því næst
getið þeirra, sem eru undanskilin bókhalds-
skyldu. Því næst eru ýmsar reglur, sem
gæta verður við bókhaldið, svo sem hvaða
bækur skuli halda, hvernig bókfærslunni
skuli hagað o. fl Rúmsins vegna er ekki
hægt að fara nákvæmlega út í einstök atr-
iði þessara laga, heldur verður hitt að
nægja að benda á þau og hvetja menn til
þess að kynna þau sér rækilega.
Eins og getið var um hjer í upnhafi
fengu 17 þingsályktanir nokkra afgreiðslu,
en aðeins ein þeirra, sem hjer er ástæða
til þess að minnast sjerstaklega á og það
er þingsályktun um skipun millibinga-
nefndar, til þess að endurskoða tolla- og
skattalöggjöf landsins.
Sameinað Alþingi ályktar þar að fela
H.f. Eimskipafjelag
Islands.
Aðalfundur Eimskipafjelags íslands
var haldinn í Kaupþingssalnum, laugar-
daginn 18. júní.
Úr stjórninni áttu að ganga Eggert
Claessen. Guðmundur Ásbjörnsson og
Richard Thors og voru þeir allir endur-
kosnir. Af hálfu Vestur-íslendinga var
ennfremur endurkosinn Ásm. P. Jó-
hannsson.
Reikningar fjelagsins fyrir árið 1937
voru lagðir fram og samþyktir. Fer hjer
á eftir samanburður á tekjum og gjöld-
um fjelagsins fyrir tvö síðastliðin ár.
Sjá töflu á næstu síöu.
Tekjuafgangur hefir orðið, sem nem-
ur kr. 405,430,57, eftir að búið er að
færa til útgjalda kr. 591.729.20, til frá-
dráttar á bókuðu eignarverði á fasteign-
um og skipum og er það rúmum 435
þús. meira en árið áður.
Tekjur fjelagsins hafa hækkað um
rúml. 760 þús. kr. og stafar sú hækkun
aðallega af auknum tekjum skipanna.
Vörumagn jókst töluvert eða um
11.309 smálestir frá því sem það var
árið áður, en farmgjaldataxtar hjeldust
að mestu leyti óbreyttir. Farþegaflutn-
ríkisstjórninni, að skipa fimm manna milli-
þinganefnd til að endurskoða tolla- og
skattalöggjöf landsins, þar á meðal öll
lagaákvæði og fyrirmæli um skatt- og
tollaheimtu og tollgæslu.
Þrír nefndarmanna skulu skipaðir eftir
tilnefningu frá þremur stærstu flokkum
þingsins. Auk þess skulu skattstjórinn í
Reykjavík og tollstjórinn í Reykjavík eiga
sæti í nefndinni.