Morgunblaðið - 02.06.2018, Page 6

Morgunblaðið - 02.06.2018, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018 Sölumaður á fasteignamiðlun Rótgróin fasteignamiðlun leitar að öflugum sölumanni sem er tilbúinn að takast á við spennandi sölumannsstarf og getur hafið störf fljótlega. Ef þú ert vel skiplagður, ert útsjónarsamur og fylginn þér þá er þetta rétta starfið fyrir þig. Árangurstengd laun. Áhugasamir sendið inn svar á box@mbl.is merkt: ,,S - 26390”. Ritari óskast 1/2 daginn Rótgróin fasteignamiðlun leitar að ritara til starfa frá kl. 13-17. Starfið felst í afgreiðslu viðskiptavina, símsvörun, skjalavinnslu og almennum ritarastörfum. Viðkomandi þarf að vera sjálfstæður í vinnubrögðum, hafa góða þjónustulund, vera stundvís og geta hafið störf sem fyrst. Söluhæfileikar er kostur. Áhugasamir sendið inn svar á box@mbl.is merkt: ,,R - 26365”. Yfirvélstjóri Vísir hf óskar eftir yfirvélstjóra til afleysingar á Fjölnir Gk 1136. Fjölnir er línuveiðiskip með beitningarvél. Nánari upplýsingar gefur skipstjóri í síma 856-5735 eða 896-2825 Capacent — leiðir til árangurs Hornafjörður er blómstrandi 2.330 manna samfélag sem byggir á sjávarútvegi og ferðaþjónustu, starfstöð bæjarstjóra er á Höfn í fjölskylduvænu umhverfi þar sem öll nútíma þægindi eru til staðar. Öflugt menningar- og félagslíf er í sveitarfélaginu og fjölbreytt íþróttastarf í heilsueflandi samfélagi. Öll almenn þjónusta er til staðar og má þar nefna m.a. tónskóla, líkamsrækt, knatthús, sundlaug og heilbrigðisstofnun. Samgöngur til Hafnar eru greiðar, beint flug og strætó. Sjá einnig á heimasíðu sveitarfélagsins www.hornafjordur.is . Upplýsingar og umsókn capacent.is/s/6799 Menntunar- og hæfniskröfur Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði. Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er skilyrði. Þekking og reynsla af stefnumótun er kostur. Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er skilyrði. Leiðtogahæfni og hæfni í mannlegum samskiptum. Góðir skipulagshæfileikar og metnaður til árangurs. • • • • • • • • • Umsóknarfrestur 24. júní Helstu verkefni Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri sveitarfélagsins og sér um framkvæmd ákvarðana sem teknar eru af bæjarstjórn og bæjarráði. Bæjarstjóri undirbýr og situr fundi bæjarstjórnar og bæjarráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt. Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður annarra starfsmanna sveitarfélagsins, nánari útlistun á hlutverki bæjarstjóra er að finna í 50. gr. samþykkta um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir eftir öflugum einstaklingi til að taka við starfi bæjarstjóra sveitarfélagsins. Leitað er að jákvæðum, heiðarlegum og kraftmiklum einstaklingi sem er reiðubúinn til að leggja sig allan fram í krefjandi starf. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri reynslu af því að starfa með fólki og hafa brennandi áhuga á að ná árangri í starfi. Viðkomandi þarf líka að eiga auðvelt með samskipti fyrir hönd bæjarfélagsins og að vera talsmaður þess, hvort sem er í samskiptum við opinbera stjórnsýslu, viðskiptavini, íbúa eða fjölmiðla. Sveitarfélagið Hornafjörður Bæjarstjóri Ísfélag Vestmannaeyja auglýsir laus störf: Umsjónarmaður fiskvinnsluvéla Ísfélag Vestmannaeyja hf. er eitt af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins með um 250 starfsmenn til sjós og lands. Það rekur frystihús og fiskimjölsverksmiðjur í Vestmannaeyjum og á Þórshöfn og gerir út sex skip. Ísfélag Vestmannaeyja hf. var stofnað árið 1901 og er elsta starfandi hlutafélag landsins. Ísfélag Vestmannaeyja hf. auglýsir starf til umsóknar í frystihúsi félagsins í Vestmannaeyjum. Umsjón og viðhald fiskvinnsluvéla hússins. Í frystihúsinu eru sjö Baader síldarflökunarvélasamstæður, tveir Baader bolfiskhausarar og þrjár Baader bolfiskflökunarvélar með roðrífum. Mjög góð vinnuaðstaða er á vélaverkstæði fiskvinnsluvéla. Starfssvið og helstu verkefni: · Viðhald og umsjón fiskvinnsluvéla · Samvinna við verkstjóra við keyrslu véla inn á vinnslulínur · Leiðbeina starfsfólki á fiskvinnsluvélum · Brýningar hnífa · Innkaup varahluta og lagerhald vegna fiskvinnsluvéla Menntunar- og hæfniskröfur: · Menntun í viðgerðum véla er kostur · Reynsla í viðgerðum fiskvinnsluvéla nauðsyn · Sjálfstæði og skipulagshæfileikar · Góð hæfni í mannlegum samskiptum Nánari upplýsingar veitir Björn Brimar Hákonarson framleiðslustjóri frystihúss í síma 892 0215 eða í netfangi bjorn@isfelag.is. Umsóknir sendist einungis í tölvupósti eigi síðar en 5. júní Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum svarað. Skurðstofu- hjúkrunarfræðingur Við hjá Dea medica (Lýtalækningastöð Reykjavíkur) óskum eftir að ráða hjúkrunar- fræðing í hlutastarf frá og með 1.9.’18. Umsóknir sendist til Dea medica, Álfheimum 74,104 Reykjavík eða thordis@deamedica.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.