Morgunblaðið - 02.06.2018, Side 1

Morgunblaðið - 02.06.2018, Side 1
LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018 ÍÞRÓTTIR Handknattleikur Ólafur Bjarki Ragnarsson segist hafa verið búinn að fá sig svo fullsaddan á langvarandi meiðslum fyrir ári að hann hugleiddi að leggja keppnisskóna á hilluna. Annað er nú upp á teningnum. 3 Íþróttir mbl.is Kristján Jónsson kris@mbl.is „Við munum reyna hvað við getum að vinna leikinn. Leikurinn er mikilvægur fyrir okkur í mínum huga vegna þess að við viljum halda áfram að bæta okkur,“ sagði Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Norðmanna og fyrrverandi þjálfari Íslands, við Morgunblaðið eftir æf- ingu norska liðsins á Kópavogsvelli í gær. „Ég vil auðvitað ekki að mínir leikmenn spili gróft. Þess óska ég aldrei. Íslendingar vilja einnig vinna leikinn og þar af leiðandi verður leikurinn sjálfsagt jafn og erfiður. Ég vona sannarlega að enginn meiðist í leiknum. Ég sá að Laugardalsvöllur er ekki upp á sitt besta út af rigningum í maí en yfirleitt hefur mér fundist völlurinn frábær. Við þessar að- stæður getur skapast sú hætta að menn séu aðeins of seinir í návígin,“ sagði Lagerbäck. Spurður úr í riðil Íslands á HM sagði Sví- inn að Ísland væri augljóslega í mjög erfiðum riðli. „Þegar ég fylgdist með drættinum þótti mér strax sem riðillinn væri einn sá sterkasti í keppninni. Íslendingar voru óheppnir að því leyti en þessu geta einnig fylgt kostir. Ísland fer inn í keppnina sem lið sem ekki er talið að komist áfram úr riðlinum. En eins og hugar- farið er í íslenska hópnum þá eiga þeir mögu- leika en deila má um hversu miklir þeir eru. Ísland er ekki líklegast til að vinna riðilinn en það hefur sýnt sig að þetta lið má aldrei van- meta. Vinnusemin, skipulagið og hugarfarið er einfaldlega þess eðlis að enginn er öruggur um sigur gegn Íslandi,“ sagði Lars Lager- bäck. Vona að enginn meiðist  Lars Lagerbäck andstæðingur Íslands á Laugardalsvellinum í kvöld Morgunblaðið/Eggert Noregur Lars Lagerbäck stýrir Norðmönnum á Laugardalsvellinum í kvöld. HM 2018 Guðjón Þór Ólafsson gudjon@mbl.is Í kvöld klukkan 20.00 fer fram vináttuleikur Ís- lands og Noregs. Leikurinn er hluti af lokaundir- búningi landsliðsins fyrir HM á Rússlandi og er mikilvægur fyrir margar sakir. Í íslenska hópn- um eru leikmenn sem hafa lítið fengið að spila með félagsliðum sínum vegna meiðsla eða bekkjarsetu og þurfa nauðsynlega mínútur til þess að komast í leikform. Heimir Hallgrímsson þarf einnig að nota leik- inn til þess að skerpa á taktískum áhersluatriðum og fá svör við þeim spurning sem hann hefur áð- ur en alvaran hefst 16. júní. Góðar fréttir af Aroni og Gylfa Á fréttamannafundi, sem haldinn var fyrir síð- ustu æfingu landsliðsins fyrir Noregsleikinn, kom fram að Gylfi Þór Sigurðsson væri orðinn leikfær. Að sögn Heimis Hallgrímssonar er Gylfi búinn að vera að æfa af „200%“ krafti og er með grænt ljós til að spila. Ákvörðunin hvort hann myndi taka einhvern þátt í Noregsleiknum lá þó ekki fyrir. Það voru einnig góðar fréttir af Aroni Einari. „Aron vill spila en ég held að það sé óráðlegt. Ég býst því ekki við því að hann komi við sögu gegn Noregi eða Gana. En hann er á réttri leið og bati hans hefur jafnvel verið betri en við þorð- um að vona,“ sagði Heimir spurður út í stöðuna á Aroni. Mikilvægi Gylfa og Arons fyrir íslenska lands- liðið ætti ekki að vera áhugafólki um íslenska knattspyrnu hulið. Þeir hafa af öllum öðrum ólöstuðum verið okkar mikilvægustu menn og átt hvað stærstan þátt í því að íslenska landsliðið er að fara á sitt annað stórmót í röð. Eins og staðan er í dag lítur allt út fyrir að þeir séu báðir að fara að ná fyrsta leik gegn Argentínu sem eru mikil gleðitíðindi fyrir okkur Íslendinga. Vofa Lars Lagerbäck Þjálfari Noregs, Lars Lagerbäck er okkur Ís- lendingum vel kunnur. Hann þjálfaði landsliðið frá 2011 til 2016 og náði stórkostlegum árangri. Eftir að Ísland komst á EM árið 2016 var honum hampað sem þjóðhetju og gengu margir svo langt að vilja fá hann sem forseta lýðveldisins. Heimir var eins og svo oft áður spurður á fréttamanna- fundinum út í hvernig samband þeirra væri og hvort þeim hefði tekist að setjast niður og spjalla. „Ég mun hitta Lars eftir æfinguna í dag. Ég hef áður sagt að Lars er góður vinur en einnig lærifaðir í boltanum. Frábær fjögur ár sem ég starfaði með honum.“ Kári Árnason, sem einnig sat fréttamanna- fundinn, sagði að þó að Lars hefði lagt grunninn hefði landsliðið haldið áfram og byggt ofan á hann. Spurning hvort sigur á Norðmönnum í kvöld verður til þess að losa Heimi og íslenska landsliðið frá stanslausan flaumi spurninga út í Lagerbäck. „Verðum að mæta af krafti“ Þrátt fyrir að um vináttuleik sé að ræða má búast við að leikið verði af talsverðum krafti. Þeir leikmenn íslenska landsliðsins sem ætla sér að spila í Rússlandi verða að sýna fram á að þeir eigi heima í liðinu. „Ef menn verða ekki einbeittir þá er eitthvað að í okkar hópi.“ sagði Heimir á fréttamanna- fundinum um Noregsleikinn. Norðmenn eru á móti eflaust ekki sáttir við að litli bróðir hafi hrifsað til sín allt sviðsljósið. Þeir hafa unnið fjóra af síðustu sex leikjum sínum og ef Lars hef- ur tekist að setja sitt handbragð á liðið munu þeir mæta einbeittir til leiks. Mætir læriföðurnum  Næstsíðasti leikur landsliðsins fyrir HM gegn Noregi á Laugardalsvelli í kvöld  Gylfi með grænt ljós til að spila  Allt á réttri leið hjá Aroni Einari Morgunblaðið/Eggert Undirbúningur Heimir Hallgrímsson og Helgi Kolviðsson aðstoðarþjálfari fara yfir málin fyrir æfingu íslenska landsliðsins í gær. Leikur Íslands og Noregs hefst klukkan 20 á Laugardalsvellinum í kvöld. Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Norðmenn, sem eru næstsíðustu mótherjar Íslendinga fyrir HM í Rússlandi, eru sú þjóð sem íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hefur oftast mætt í 72 ára sögu sinni. Annar landsleikur Íslands frá upphafi var gegn Noregi á Mela- vellinum árið 1947 þegar Albert Guðmundsson skoraði bæði mörk Ísland í 2:4 ósigri, og gerði þá jafn- framt fyrstu landsliðsmörk Íslands. Í dag er langafabarn Alberts og al- nafni í íslenska landsliðshópnum. Frá þeim tíma eru leikirnir milli þjóðanna orðnir 33 og þar af fjór- tán í undankeppni stórmóta. Þetta er því 20. vináttulandsleikurinn þeirra á milli. Norðmenn hafa vinninginn og vel það en þeir hafa sigrað 19 sinn- um, Íslendingar 8 sinnum og 6 sinnum hafa liðin skilið jöfn. Tólf af þessum 19 sigrum Norð- manna komu í fyrstu fimmtán viðureignum þjóðanna, frá 1947 til 1973, en eftir það hefur mikið jafn- ræði verið þeirra á milli. Kári og Alfreð skoruðu Á þessari öld hefur Ísland þó að- eins unnið einn af níu leikjum þjóð- anna, vann 2:0 á Laugardalsvelli í undankeppni HM haustið 2012 þar sem Kári Árnason og Alfreð Finn- bogason skoruðu mörkin. Liðin hafa gert fimm jafntefli frá alda- mótum en Norðmenn hafa unnið þrísvegis, síðast 3:2 í vináttulands- leik í Ósló, rétt fyrir EM í Frakk- landi 2016. Tvívegis fagnað vel í Ósló Einhver besti sigur Íslands var í Ósló 1987, í undankeppni EM, þar sem Atli Eðvaldsson gerði sigur- markið, 1:0. Þá var jafntefli lið- anna haustið 2013 fagnað sem sigri, en 1:1 jafntefli í Ósló tryggði þá Íslandi sæti í umspili fyrir HM 2014. Einn sigur í níu leikjum á öldinni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.