Morgunblaðið - 02.06.2018, Síða 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018
Ungverjar urðu fyrstir til
að skora tíu mörk í leik á HM
þegar þeir burstuðu El Salva-
dor 10:1 á HM 1982 á Spáni.
Varamaðurinn László Kiss
gerði þrennu á sjö mínútum í
leiknum. Ekkert lið hefur fyrr
eða síðar náð að gera tíu mörk
í leik í lokakeppninni.
Vestur-Þýskaland sigraði
Austurríki 1:0 á HM 1982 á
Spáni í einum alræmdasta leik
í sögu lokakeppni HM. Úrslitin
dugðu báðum til að komast
áfram á kostnað Alsírbúa, sem
höfðu unnið Vestur-Þýskaland
og Síle en sátu eftir á óhag-
stæðri markatölu. Bókstaflega
ekkert gerðist í leiknum eftir
að Horst Hrubesch skoraði
mark Þjóðverja á 10. mínútu.
Vestur-Þýskaland og
Frakkland skildu jöfn 3:3 í
undanúrslitum HM 1982 á
Spáni í sögulegum leik. Hans
er annars vegar minnst vegna
hrottalegs brots þýska mark-
varðarins Tonis Schumachers
á Frakkanum Patrick Batt-
iston. Hins vegar vegna þess
að Vestur-Þýskaland sigraði í
fyrstu vítaspyrnukeppni í
sögu HM.
Engin þjóð sem hefur orðið
heimsmeistari oftar en einu
sinni hefur beðið jafnlengi eft-
ir næsta titli og Ítalir. Þeir
unnu í annað sinn 1938 en
þriðji titillinn kom ekki fyrr
en 44 árum seinna, eða árið
1982.
Ítalir komust ekki á HM í
Rússlandi, féllu út gegn Svíum
í umspili, og þetta er aðeins í
annað sinn sem þeir komast
ekki í gegnum undankeppni
og á HM. Áður misstu þeir af
HM 1958 í Svíþjóð en voru hins
vegar ekki með í fyrstu keppn-
inni í Úrúgvæ árið 1930.
HM-molar
Í kjölfarið á velgengni íslenska
landsliðsins hafa erlendir fjöl-
miðlar verið duglegir við að koma
til landsins í leit að skýringum á
hvers vegna 340.000 manna þjóð
getur komist inn á tvö stórmót í
röð í vinsælustu íþrótt heims. Og
það skal engan undra. Þetta á
ekki að vera hægt
En hvað skýrir þennan árang-
ur? Sumir vilja meina að árang-
urinn megi fyrst og fremst rekja
til góðrar aðstöðu og hæfra þjálf-
ara. Gjarnan er talað um mik-
ilvægi allra knattspyrnuhallanna
sem risið hafa á undanförnum
áratugum í þessu samhengi.
Þessi söguskoðun er mjög
áberandi í erlendum miðlum. Í
frétt BBC frá árinu 2015 er talað
um „A generation of indoor kids“
og „Qualified coaches at every
level“. Í heimildarmynd sem Stan
Collymore gerði fyrir rússnesku
sjónvarpsstöðina RT er þessu líka
haldið fram.
En gallinn við þessa skýringu
er að meirihluti þeirra leikmanna
sem hafa skipað landsliðið á
undanförnum árum æfði mest-
megnis úti á möl yfir vetrar-
mánuðina. Kári Árna varð til á
Víkingsmölinni. Ari Freyr lærði að
krossa á bílastæðinu á Hlíðar-
enda.
Þá bendir fátt til að gæði
þjálfunar á Íslandi hjá þeirri kyn-
slóð sem nú skipar landsliðið hafi
verið meiri en þekkist víða í kring-
um okkur.
Nú er ég ekki að halda því
fram að tilkoma knattspyrnuhall-
anna og betri menntun íslenskra
þjálfara sé af hinu slæma. Þvert á
móti. Aðstaðan mun bara auka
gæði þjálfunar.
En að halda því fram að ís-
lenska landsliðið sem við erum öll
svo stolt hafi verið mótað inni í
knatthúsunum stenst ekki neina
skoðun.
BAKVÖRÐUR
Guðjón Þór Ólafsson
gudjon@mbl.is
Framlengingu þurfti til að knýja
fram úrslit í fyrsta úrslitaleik Gold-
en State Warriors og Cleveland
Cavaliers um NBA-meistaratitilinn í
körfuknattleik í Oakland í Kaliforníu
í fyrrinótt. Höfðu meistararnir í
Golden State betur en LeBron
James setti persónulegt stigamet
hjá Cleveland.
James skoraði 51 stig en dugði
það ekki til hjá Cleveland en svo
mikið hafði hann aldrei skorað í ein-
um leik í úrslitakeppninni. Hann gaf
auk þess 8 stoðsendingar á samherja
sína. Ekki dugði það til því Golden
State sigraði 124:114 en staðan var
107:107 eftir venjulegan leiktíma.
Draymond Green átti stórleik fyr-
ir Golden State en hann var einni
stoðsendingu frá þrefaldri tvennu.
Skoraði 13 stig, tók 11 fráköst, gaf 9
stoðsendingar, stal boltanum fimm
sinnum og varði tvö skot. Stephen
Curry var hins vegar stigahæstur
með 29 stig.
Golden State er aftur á heimavelli
í öðrum leik liðanna sem fer fram
annað kvöld, sunnudagskvöld.
AFP
Stjörnur Kevin Durant og Stephen Curry reyna að stöðva LeBron James í
fyrsta úrslitaleiknum. Það gekk illa því LeBron skoraði 51 stig.
Met hjá LeBron var
ekki nóg í Oakland
14 DAGAR Í FYRSTA LEIK ÍSLANDS
Ari Freyr Skúlason er einn af níu
leikmönnum í íslenska landsliðs-
hópnum sem hafa náð að spila fimm-
tíu landsleiki eða fleiri fyrir Íslands
hönd.
Ari Freyr er 31 árs gamall, fædd-
ur 14. maí 1987, og hefur leikið 54
landsleiki fyrir Íslands hönd. Hann
lék fyrst vináttuleik gegn Íran í Te-
heran árið 2009 en spilaði ekki aftur
fyrr en 2012 og hefur verið fasta-
maður í landsliðshópnum síðan,
ávallt sem vinstri bakvörður þótt
hann hafi lengi vel á ferlinum leikið á
miðjunni hjá sínum félagsliðum.
Ari er Valsmaður að upplagi, var
ungur hjá Heerenveen í Hollandi en
fór 19 ára frá Val til Häcken í Sví-
þjóð. Hann lék síðan með Sundsvall í
Svíþjóð í sex ár og með OB í Dan-
mörku í þrjú ár en með Lokeren í
Belgíu frá 2016.
Ari lék alla fimm leiki Íslands á
EM í Frakklandi 2016 og 90 mínútur
í þeim öllum. Hann spilaði fimm af
tíu leikjum íslenska liðsins í undan-
keppni HM, fjóra þeirra í byrjunar-
liðinu.
Íslendingurinn
AFP
Ari Freyr hóf
landsliðsferil-
inn í Íran
Tólfta heimsmeistaramót karla í
knattspyrnu fór fram á Spáni árið
1982 og þar léku í fyrsta skipti 24 lið
í lokakeppni HM.
Fyrir vikið fengu fleiri þjóðir utan
Evrópu og Suður-Ameríku keppnis-
rétt og lið Alsírs, Kamerún, Kúveit,
Nýja-Sjálands og Hondúras voru
með í fyrsta skipti.
Leikið var í sex fjögurra liða riðl-
um og tólf lið sem komust áfram léku
í fjórum þriggja liða milliriðlum þar
sem sigurvegararnir fóru í undan-
úrslit.
Ítalir, sem rétt komust áfram úr
riðlakeppninni með þrjú jafntefli,
urðu heimsmeistarar í þriðja sinn
eftir 3:1-sigur á Vestur-Þjóðverjum
að viðstöddum 90 þúsund áhorf-
endum á Santiago Bernabéu í
Madríd. Paolo Rossi, Marco Tardelli
og Alessandro Altobelli komu Ítöl-
um í 3:0 áður en Paul Breitner
minnkaði muninn.
Pólverjar fengu bronsverðlaunin
eftir sigur á Frökkum, 3:2, í Alicante.
Paolo Rossi frá Ítalíu varð
markakóngur HM með sex mörk en
hann gerði þau öll í þremur síðustu
leikjunum. Þrennu í óvæntum 3:2-
sigri á Brasilíu, bæði mörkin í 2:0-
sigri á Pólverjum í undanúrslitum og
svo eitt í úrslitaleiknum. Rossi var
kjörinn besti leikmaður HM en hann
var 25 ára leikmaður Juventus og
kom beint á HM úr tveggja ára
keppnisbanni.
HM-sagan
1982
Toni Kroos er lykilmaður í heims-
meistaraliði Þýskalands sem freistar
þess að verja titilinn á HM í Rúss-
landi og hefur verið talinn meðal
bestu miðjumanna heims undanfarin
ár.
Kroos er 28 ára, fæddist í Greifs-
wald í þáverandi Austur-Þýskalandi
4. janúar 1990. Hann fór 16 ára til
Bayern München og var þar í átta
ár, eitt þeirra í láni hjá Leverkusen,
en hefur leikið með Real Madrid frá
2014 og vann á dögunum Meistara-
deild Evrópu með liðinu þriðja árið í
röð.
Kroos, sem lék tvítugur á HM
2010 í Suður-Afríku, varð heims-
meistari með Þjóðverjum 2014, átti
þá flestar stoðsendingar allra í
keppninni og var valinn í úrvalslið
hennar. Hann var líka valinn í úr-
valsliðið eftir Evrópukeppnina í
Frakklandi árið 2016.
Kroos er eini knattspyrnumaður-
inn sem fæddist í Austur-Þýskalandi
fyrir sameiningu þýsku ríkjanna síð-
ar árið 1990 sem hefur orðið heims-
meistari.
Möguleg HM-stjarna
AFP
Eini austur-
þýski heims-
meistarinn
Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir
verður aðstoðar-
þjálfari kvenna-
liðs Vals í hand-
knattleik á næsta
keppnistímabili.
Hún tekur við af
Sigurlaugu Rún-
arsdóttur sem
var aðstoðarþjálf-
ari deildarmeist-
ara Vals á síðustu leiktíð. Auk þess
að verða deildarmeistari lék Valur
til úrslita við Fram um Íslandsmeist-
aratitilinn er varð að gera sér að
góðu silfurverðlaun.
Anna Úrsúla kom til Vals í lok síð-
asta árs og lék með liðinu það sem
eftir var leiktíðar. Hún hafði áður
verið í Gróttu um þriggja ára skeið
en var áður lengst af leikmaður Vals
áður en hún fór til uppeldisfélags
síns á Seltjarnarnesi haustið 2014 og
tók þar þátt í sigursælu tímabili.
Að sögn Óskars Bjarna Óskars-
sonar, afreksstjóra handknattleiks-
deildar Vals, hættir Sigurlaug af
persónulegum ástæðum.
Samhliða breytingunum fær Hlyn-
ur Morthens, fyrrverandi markvörð-
ur Vals, stærra hlutverk í þjálfara-
teymi kvennaliðsins, en hann kom í
það í vetur. iben@mbl.is
Anna Úrsúla
leysir Sigur-
laugu af
Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir
Ólafur Ægir Ólafsson hefur ákveðið
að söðla um og yfirgefa herbúðir
handknattleiksliðs Vals. Af þeim
sökum hefur hann samið við Lakers
Stäfa sem leikur í efstu deild hand-
knattleiksins í Sviss. Tekur samn-
ingur Ólafs Ægis við Lakers Stäfa
gildi í sumar og er til eins árs sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins.
Lakers Stäfa er staðsett skammt
utan við Zürich. Liðið virðist hafa
rokkað á milli efstu og næstefstu
deildar í svissneska handknatt-
leiknum á síðustu árum eftir því sem
næst verður komist.
Ólafur Ægir er 22 ára gamall og
hefur átt sæti í meistaraflokksliði
Vals síðustu árin. Hann lék m.a.
stórt hlutverk í Valsliðinu sem varð
Íslands- og bikarmeistari í fyrra auk
þess sem Valur komst þá í undan-
úrslit í Áskorendakeppni Evrópu.
Ólafur Ægir á að baki leiki með
yngri landsliðum Íslands í hand-
knattleik.
Ólafur Ægir skoraði 50 mörk í 22
leikjum með Val í Olísdeildinni í vet-
ur sem leið en meiðsli hafa sett strik
í reikninginn hjá honum um nokkurt
skeið.
Auk Ólafs Víðis hafa Tumi Steinn
Rúnarsson og Bjarni Ófeigur Valdi-
marsson ákveðið að róa á önnur mið.
Sá fyrrnefndi hefur gengið til liðs við
Aftureldingu en sá síðarnefndi ætlar
að leika með FH. Bjarni Ófeigur
gerði reyndar stuttan stans hjá Val
eftir að hafa verið jafnbesti leik-
maður Gróttu lengst af keppnis-
tímabilinu. iben@mbl.is
Fer frá Hlíðarenda
og flytur til Zürich
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sviss Ólafur Ægir Ólafsson fer til
Zürich fyrir næsta tímabil.