Morgunblaðið - 16.06.2018, Blaðsíða 1
FJARÐABYGGÐ
fjardabyggd.is
Fjarðabyggð er stærsta sveitarfélagið á Austurlandi með 5028 íbúa.
Upplýsingar um sveitarfélagið er að finna á heimasíðu þess, www.fjardabyggd.is.
Helstu verkefni bæjarstjóra:
• Yfirumsjón með rekstri sveitarfélagsins
• Yfirumsjón með stefnumótun og áætlunargerð
• Náið samstarf við bæjarstjórn og undirnefndir, undirbúningur
og upplýsingagjöf á fundum bæjarstjórnar og bæjarráðs.
• Ábyrgð á framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar
• Samskipti við stofnanir, fyrirtæki, samtök og íbúa.
Hæfniskröfur:
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Reynsla af stjórnun og rekstri
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu og störfum á sveitarstjórnarstigi er kostur en ekki skilyrði
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur en ekki skilyrði
Umsóknum ber að skila til skrifstofu sveitarfélagsins að Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð, eigi
síðar en 26. júní. Skulu umsóknir vera merktar sem umsókn um starf bæjarstjóra. Umsóknum skulu
fylgja ítarlegar starfsferilsskrár og kynningarbréf umsækjenda þar sem hann gerir grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstyður hæfi sitt í starfið.
Þá er áskilið að taka hvaða umsókn sem er eða hafna öllum.
Upplýsingar um starfið veita Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður bæjarráðs, eydis73@simnet.is ,
og Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar, jon@ts.is.
Fjarðabyggð er það sveitarfélag sem austast liggur á landinu og það fjölmennasta af
sjö sveitarfélögum Austurlands, með um 5.000 íbúa. Það varð til við samruna 14
sveitarfélaga sem fór fram í nokkrum áföngum á árunum 1988 til 2018 og er
Fjarðabyggð því eitt yngsta sveitarfélag landsins. Þú ert á góðum stað eru kjörorð
sveitarfélagsins.
Fjarðabyggð er öflugt fjölkjarna sveitarfélag sem byggir á sterkum grunni hvað
atvinnu- og verðmætasköpun varðar. Gjöful fiskimið eru undan ströndum Austfjarða
og er útgerð og vinnsla sjávarafurða ein af meginstoðum atvinnulífsins ásamt
álframleiðslu og tengdum þjónustugreinum. Landbúnaður, verslun og þjónusta gegna
einnig mikilvægu hlutverki og hefur ferðaþjónusta vaxið hratt á undanförnum árum.
Bæjarstjóri Fjarðabyggðar
Sveitarfélagið Fjarðabyggð auglýsir laust til umsóknar
starf bæjarstjóra Fjarðabyggðar
atvinna@mbl.is • Sölufulltrúar: Kristján Aðalsteinsson, ka@mbl.is, 569 1246 • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391
Bæjarstjóri
Sveitarfélagið Ölfus er í mikilli
sókn. Íbúum fjölgar hratt og
aðstaða fyrir fjölskyldufólk
og börn í leik- og grunnskóla
er framúrskarandi góð
og það á einnig við um
aðstöðu til íþrótta- og
tómstundaiðkunar. Tækifæri
til atvinnuuppbyggingar eru
gríðarlega mikil á svæðinu, ekki
síst fyrir tilstuðlan hafnarinnar
í Þorlákshöfn og fjölbreyttra
tækifæra í ferðaþjónustu.
Nánari upplýsingar um
sveitafélagið er að finna á
www.olfus.is
Hamingjan er hér!
capacent.is/s/6832
Háskólamenntun sem nýtist í starfinu.
Þekking og reynsla af fjármálum, stjórnun og rekstri.
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, einkum
sveitarfélaga, er kostur.
Reynsla af eftirfylgni stefnumótunar.
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
2. júlí
Verksvið bæjarstjóra er m.a.:
Framkvæmdastjórn sveitarfélagsins.
Ábyrgð á stefnumótun og áætlunargerð.
Ábyrgð á og stýring á daglegum rekstri.
Samskipti við hagsmunaaðila.
Framkvæmd á ákvörðunum bæjarstjórnar.
Þátttaka í uppbyggingu sveitarfélagsins.
Sveitarfélagið Ölfus óskar eftir að ráða bæjarstjóra til starfa. Ölfus er landfræðilega mjög stórt sveitarfélag með ríflega 2.100
íbúum. Þéttbýliskjarninn er Þorlákshöfn en í dreifbýlinu er einnig blómleg byggð búskapar, hestamennsku og ferðaþjónustu.
Leitað er að einstaklingi sem hefur leiðtogahæfileika, stefnumótandi hugsun, áhuga á uppbyggingu samfélagsins,
frumkvæði, metnað og mjög góða samskiptahæfileika.
Í boði er fjölbreytt og áhugavert samfélag, metnaðarfullt og faglegt vinnuumhverfi með tækifæri til að hafa áhrif á mótun
sveitarfélagsins.