Morgunblaðið - 18.06.2018, Síða 1
MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2018
ÍÞRÓTTIR
Knattspyrna Hirving Lozano og félagar í landsliði Mexíkó gerðu sér lítið fyrir og lögðu heimsmeistarana í
upphafsleik sínum á heimsmeistaramótinu í Rússlandi. Lozano skoraði draumamarkið. 6
Íþróttir
mbl.is
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Rólegir Það var afslappað andrúmsloft á æfingu íslenska landsliðsins í knattspyrnu árla dags í gær í Kabardinka. Leikmenn söfnuðu kröftum eftir leikinn
við Argentínu og lögðu á ráðin um framhaldið. Hér ræða saman Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari og Birkir Bjarnason. »2, 4, 5, 6.
Óvissa ríkir enn um hversu alvarleg meiðsl Jóhanns Bergs
Guðmundssonar eru. Talið er að hann hafi jafnvel tognað á
kálfa á 62. mínútu í leik Íslendinga og Argentínumanna á
HM í Rússlandi á laugardaginn. Hann kenndi eymsla og
var nær samstundis skipt af leikvelli. „Ég fékk bara eitt-
hvað í kálfann og það var nógu slæmt til þess að ég þurfti
að fara út af,“ sagði Jóhann Berg í samtali við Morgun-
blaðið eftir leikinn, sem lauk með jafntefli, 1:1.
Jafnvel er óttast að Jóhann Berg leiki ekki næsta leik ís-
lenska landsliðsins á HM við Nígeríu á föstudaginn og
verði hugsanlega einnig af viðureigninni við Króata eftir
rúma viku. Verði það niðurstaðan er ljóst að um verulega
blóðtöku væri að ræða fyrir íslenska landsliðið.
Jóhann Berg fór í myndatöku í Rússlandi í gær. Þegar
Morgunblaðið fór í prentun hafði engin yfirlýsing borist
frá Knattspyrnusambandi Íslands um hvort afdráttarlaus
niðurstaða lægi fyrir um hversu alvarleg meiðslin væru.
„Það eru ekkert allir mjög jákvæðir út af þessu en þess
vegna tókum við 23 leikmenn með okkur og það kemur
alltaf maður í manns stað,“ sagði Helgi Kolviðsson, aðstoð-
arþjálfari landsliðsins, í gærmorgun. sport@mbl.is
Óvissa um
framhaldið
Jóhann Berg og meiðslin
Morgunblaðið/Eggert
Meiddur Jóhann Berg Guðmundsson á fullri ferð í
leiknum við Argentínu áður hann varð fyrir meiðslum.
Valdís Þóra
Jónsdóttir hafn-
aði í 5.- 9. sæti á
AXA mótinu sem
fram fór í Tékk-
landi og lauk um
helgina. Mótið er
hluti af LET Ac-
cess mótaröðinni
sem er næst
sterkasta at-
vinnumótaröð
Evrópu í kvennaflokki.
Valdís Þóra lék hringina þrjá á
73, 67 og 70 eða samtals sex högg-
um undir pari. Sigurvegarinn Car-
men Alonso frá Spáni sigraði á
þessu móti á ellefu höggum undir
pari. sport@mbl.is
Var ofarlega
í Tékklandi
Valdís Þóra
Jónsdóttir
Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir
varð í 58. - 65.
sæti á Meijer
Classic mótinu í
golfi, sem er
hluti af LPGA
mótaröðinni, en
síðasti keppnis-
dagur af fjórum
var í gær. Ólafía
Þórunn lék sam-
anlagt á sex höggum undir pari.
Hún var á einu höggi undir pari í
gær, fékk 13 pör, þrjá fugla og tvo
skolla eftir að hafa leikið á tveimur
höggum undir pari vallarins á laug-
ardaginn. Þá fékk hún sex fugla og
fjóra skolla auk átta para. sport-
@mbl.is
Ólafía á sex
undir pari
Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir
Hinn 23 ára gamli Raheem Sterling er nýbúinn að
eiga sitt langbesta tímabil á ferlinum, en hann
skoraði 18 deildarmörk og 23 mörk í öllum keppn-
um fyrir Englandsmeistara Manchester City á síð-
ustu leiktíð. Sterling skoraði samanlagt 21 mark á
tveimur leiktíðum þar á undan og hefur hann því
bætt markaskorun sína töluvert á stuttum tíma.
Sterling er einn allra mikilvægasti leikmaður
enska landsliðsins um þessar mundir.
Hann gekk í raðir Liverpool frá QPR þegar
hann var 16 ára gamall og tveimur árum síðar lék hann sinn fyrsta leik
með aðalliðinu. Hann var talinn á meðal efnilegustu leikmanna Eng-
lendinga en eftir þrjú ár hjá Liverpool leitaði hugurinn annað og var
hann keyptur til Manchester City fyrir 44 milljónir punda árið 2015.
Þar er hann loks byrjaður að blómstra undir stjórn Pep Guardiola.
Skömmu fyrir HM reitti Sterling marga til reiði er húðflúr
af hríðskotabyssu sást á hægri löpp hans. Pabbi sókn-
armannsins var skotinn til bana er Sterling var aðeins
tveggja ára gamall og fékk Sterling flúrið honum til heið-
urs. Samtök gegn skotvopnum á Englandi, hvöttu enska
knattspyrnusambandið til að banna Sterling að leika með
landsliðinu vegna flúrsins, en það gekk ekki eftir.
Hægt verður að fylgjast með Sterling með enska landslið-
inu á móti Túnis í kvöld kl. 18, en leikurinn fer fram í Vol-
gograd og er í G-riðli.
Fylgist með þessum…
Loksins farinn að blómstra