Morgunblaðið - 18.06.2018, Síða 4

Morgunblaðið - 18.06.2018, Síða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2018 Heimir útfærði leik Íslands snilldarlega ásamt aðstoð- armönnum sínum sem höfðu undirbúið það að mæta Argentínu mánuðum saman. Liðið spilaði 4-5-1 með Gylfa Þór fremstan á miðjunni og leit þá stundum út eins og 4-4-2 í fyrri hálfleiknum. Heildarliðsvörnin var útfærð af 100 prósent öryggi þar sem ekkert pláss var gefið á milli miðvarða og varnartengiliða og meirihluti markskota Argentínu fór í íslenska varnarmúrinn. Heimir Hallgrímsson Varði víti frá Messi. Ekki margir sem hafa afrekað það. Menn skora ekki hjá Hannesi úr víti með því að skjóta í millihæð enda varði hann örugglega. Varði oft vel í leiknum, m.a. glæsilega á 87. mín. Hannes Þór Halldórsson Átti virkilega góðan leik gegn Di Maria, enda sjaldan farið upp að enda- mörkum vinstra megin. Á heildina litið mjög yfir- vegaður og rólegur. Hraðinn nýttist tvívegis vel gegn Messi inni í teig. Birkir Már Sævarsson Virkaði mjög öruggur í flestum sínum aðgerðum og hefur þann eiginleika að geta leikið jafn-vel gegn bestu leikmönnum í heimi og þeim sem slakari eru. Skallaði ófáa boltana út úr teig Íslands. Kári Árnason Barðist eins og ljón. Hafði oftast betur í baráttunni. Ágætlega staðsettur þeg- ar Agüero skoraði en var of seinn til að komast fyr- ir skotið. Óheppinn þegar hann fékk boltann í hönd í teignum en slapp við dóm. Ragnar Sigurðsson Baráttuglaður og nýtti líkamlegan styrk sinn vel bæði í návígjum og skalla- einvígjum. Duglegur að fara fram kantinn þegar tækifæri gafst. Eini mín- usinn var að hann fékk á sig vítaspyrnu. Hörður B. Magnússon C-RIÐILL: Frakkland – Ástralía............................... 2:1 Antoine Griezmann 58. (víti), Aziz Behich 80. (sjálfsm.) – Mile Jedinak 62. (víti) Perú – Danmörk ...................................... 0:1 Yussuf Poulsen 59. Staðan: Frakkland 1 1 0 0 2:1 3 Danmörk 1 1 0 0 1:0 3 Ástralía 1 0 0 1 1:2 0 Perú 1 0 0 1 0:1 0 D-RIÐILL: Argentína – Ísland................................... 1:1 Sergio Agüero 19. – Alfreð Finnbogason 23. Króatía – Nígería .....................................2:0 Oghenekaro Etebo 32. (sjálfsm.), Luka Modric 71. Staðan: Króatía 1 1 0 0 2:0 3 Argentína 1 0 1 0 1:1 1 Ísland 1 0 1 0 1:1 1 Nígeria 1 0 0 1 0:2 0 E-RIÐILL: Kostaríka – Serbía................................... 0:1 Aleksandar Kolarov 56. Brasilía – Sviss ......................................... 1:1 Philippe Coutinho 20. – Steven Zuber 50. Staðan: Mexíkó 1 1 0 0 1:0 3 Suður-Kórea 0 0 0 0 0:0 0 Svíþjóð 0 0 0 0 0:0 0 Þýskaland 1 0 0 1 0:1 0 F-RIÐILL: Þýskaland – Mexíkó ................................ 0:1 Hirving Lozano 35. Staðan: Mexíkó 1 1 0 0 1:0 3 Suður-Kórea 0 0 0 0 0:0 0 Svíþjóð 0 0 0 0 0:0 0 Þýskaland 1 0 0 1 0:1 0 Leikir í dag: F Svíþjóð – Suður-Kórea ..................... 12.00 G Belgía – Panama ............................... 15.00 G Túnis – England................................ 18.00 HM2018 KNATTSPYRNA 3. deild karla: Fjölnisvöllur: Vængir Júpíters KH .... 19.15 Samsung-völlur: KFG Augnablik ............ 20 Í KVÖLD! Spartak Stadium, Moskvu, loka- keppni HM karla, D-riðill, laugardag 16. júní 2018. Skilyrði: Sól og blíða, 24 stiga hiti, glæsilegur völlur. Skot: Argent. 26 (7) – Ísland 9 (3). Horn: Argentína 10 – Ísland 2. Argentína: (4-5-1) Mark: Willy Ca- ballero. Vörn: Eduardo Salvio, Nico- lás Otamendi, Marcos Rojo, Nicolás Tagliafico. Miðja: Max Meza (Gon- zalo Higuaín 84), Javier Mascher- ano, Lionel Messi, Lucas Biglia (Éver Banega 54), Ángel Di María (Cristian Pavón 75). Sókn: Sergio Agüero. Ísland: (4-5-1) Mark: Hannes Þór Halldórsson. Vörn: Birkir Már Sæv- arsson, Ragnar Sigurðsson, Kári Árnason, Hörður Björgvin Magn- ússon. Miðja: Jóhann Berg Guð- mundsson (Rúrik Gíslason 63), Aron Einar Gunnarsson (Ari Freyr Skúla- son 75), Gylfi Þór Sigurðsson, Emil Hallfreðsson, Birkir Bjarnason. Sókn: Alfreð Finnbogason (Björn Bergmann Sigurðarson 89). Dómari: Szymon Sokolnicki, Póll. Áhorfendur: 44.190, uppselt. Argentína – Ísland 1:1 1:0 Sergio Agüero 19. fékk boltann ímiðjum vítateig Íslands eftir að Marcos Rojo skaut í varnarmann, sneri sér og þrumaði honum upp undir þver- slána. 1:1 Alfreð Finnbogason 23. sendiboltann í netið rétt utan markteigs eftir að Gylfi Þór Sigurðsson skaut rétt innan vítateigs og Willy Caballero mark- vörður varði en hélt ekki boltanum. I Gul spjöld:Engin. I Rauð spjöld: Engin.  Alfreð Finnbogason skoraði fyrsta mark Íslands í lokakeppni HM og hann gerði líka mark í þriðja landsleik Íslands í röð. Alfreð hefur þar með skorað í öllum þremur leikjum sínum með landsliðinu á þessu ári.  Alfreð skoraði sitt 14. mark fyrir lands- liðið og er nú kominn í 5.-7. sæti yfir markahæstu landsliðsmennina frá upp- hafi. Hann deilir sætunum með Arnóri Guðjohnsen og Ríkharði Daðasyni.  Birkir Már Sævarsson lék sinn 80. landsleik og er fimmti Íslendingurinn sem nær því frá upphafi með karlalandsliðinu. Hann er nú jafn Guðna Bergssyni í 4.-5. sæti yfir þá leikjahæstu.  Hannes Þór Halldórsson lék sinn 50. landsleik. Hann er þriðji markvörðurinn sem nær þeim áfanga en áður náðu honum Birkir Kristinsson (74) og Árni Gautur Arason (71). og Kára Árnason. Dagskipunin var sú að Kári og Ragnar væru aldrei meira en 10 metrum fyrir aftan Emil og Aron, og þannig var svæðinu fram- an við vítateig Íslands lokað með hengilási og lyklinum fleygt. Þetta tókst nánast fullkomlega. Þeir lokuðu ekki bara á Messi, heldur á alla hina snjöllu framherja og miðjumenn Argentínu sem náðu afar sjaldan að komast í alvöru opin marktækifæri í leiknum þrátt fyrir að þeir væru dansandi með boltann í kringum íslenska víta- teiginn mestallan tímann. Argentínska liðið er hins vegar mjög háð Messi, og þrátt fyrir að ein- staklingsgæðin séu næg virtist allt snúast um að koma boltanum til hans. Þegar það tókst ekki var ráðaleysið algjört og Sampaoli virtist ekki með neinar hugmyndir til að brjóta leikinn upp. Stig sem skiptir gríðarmiklu máli Stigið gegn Argentínu er ekki bara sigur fyrir íslenska landsliðið og staðfesting á því að það sé mætt til Rússlands til að gera meira en bara að vera með í lokakeppni heimsmeistaramótsins í fyrsta skipti. Stigið þýðir líka að sama hvað á gengur í leikjum 2. umferðarinnar á föstudaginn, þá verður leikurinn við Króatíu þriðjudaginn 26. júní alltaf úrslitaleikur um að komast í sextán liða úrslitin. Ósigur, hversu naumur sem hann hefði verið, hefði getað sett Ísland í þá stöðu að vera úr leik ef Nígeríuleikurinn tapast. En ósigur í þeirri við- ureign mun aldrei slá íslenska liðið alveg úr keppni, möguleikinn á öðru sætinu verður alltaf fyrir hendi fyrir lokaumferðina, þótt vonin verði veik ef liðið verður bara með eitt stig þegar að henni kemur. Nú verður allt undir á föstudaginn kemur, fyr- ir bæði Ísland og Nígeríu. Sigurliðið úr þeim leik kemur sér í góða stöðu fyrir síðasta leikdag D- riðilsins. Nígeríumenn eru með bakið upp við vegg eftir tapið gegn Króatíu, 0:2, og vita að með ósigri eru þeir úr leik. Íslensku leikmennirnir hafa frá upphafi talað um að þeir ætli sér upp úr riðlinum og nú er það í þeirra höndum að taka næsta stóra skref. Þá verður ekki síður áhugavert að sjá hver niður- staðan verður úr viðureign Argentínu og Króatíu en þar mun í það minnsta annað liðið tapa mikil- vægum stigum í slagnum um tvö efstu sæti riðils- ins. Lokuðu með hengilás  Besti knattspyrnumaður heims fann engar glufur á íslensku liðsheildinni  Argentínsku stjörnurnar ráðalausar þegar lokað var á Messi  Augu heims- byggðarinnar áfram á Íslandi eftir jafnteflið Lokað Aron Einar Gunnarsson stöðvar Lionel Mess í eitt skiptið af mörgum í leiknum á laugardaginn. Í MOSKVU Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Augu heimsbyggðarinnar eru áfram á íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu. Áhuginn á því fyrir leikinn gegn Argentínu í Moskvu var gríðarlegur og eftir jafnteflið óvænta á Spartak- leikvanginum á laugardaginn, 1:1, er ljóst að at- hyglin mun halda áfram að beinast að Heimi Hallgrímssyni og strákunum hans sem komust á blað í frumraun sinni í lokakeppni heimsmeist- aramóts með því að taka stig af tvöföldum heims- meisturum Argentínu. Enn eina ferðina sýndi íslenska liðið þann mikla karakter og reynslu sem það býr yfir. Enn eina ferðina náði það að svara fyrir sig eftir að hafa lent undir gegn firnasterkum andstæðingi. Argentínumenn gerðu það sama gegn Íslandi og Portúgalar og Englendingar gerðu á EM í Frakklandi og náðu forystunni þægilega snemma leiks með marki frá Sergio Agüero. Það tók Ísland aðeins fjórar mínútur að jafna, Alfreð Finnbogason skoraði fyrsta mark Íslands í loka- keppni HM og það reyndist nóg til að innbyrða stig þrátt fyrir gríðarlega pressu Lionels Messis og félaga nær allan tímann eftir það. Hannes gerði útslagið í vítaspyrnunni Þáttur Hannesar Þórs Halldórssonar var ómetanlegur. Hann varði tvisvar mjög vel í leikn- um og kórónaði frammistöðuna með því að verja vítaspyrnuna frá Messi um miðjan síðari hálfleik – þegar allir héldu að besti knattspyrnumaður heims myndi gera út um leikinn af vítapunkt- inum. Nema Hannes, sem taldi sig vita upp á hár hvar snillingurinn myndi skjóta, og hafði rétt fyr- ir sér. Messi reyndi og reyndi, hann átti ellefu skot að marki íslenska liðsins en náði aldrei að prjóna sig í gegnum þéttan varnarpakkann við vítateiginn. Vítaspyrnan var hans alvörutækifæri. Ljóst var að Heimir og aðstoðarmenn hans höfðu unnið heimavinnuna upp á tíu, lokað var frábærlega á leiðirnar fyrir Messi með skipulögðum hætti þar sem Emil Hallfreðsson og Aron Einar Gunnars- son báru mesta ábyrgðina á að hann slyppi ekki í gegn, í náinni samvinnu við Ragnar Sigurðsson „Að gera jafntefli á móti Argentínu í fyrsta leik Íslands á HM hljóta að vera góð úrslit. Við náðum þessum úrslitum með góðri samstöðu, bar- áttu og trúnni,“ sagði Birkir Bjarnason, landsliðsmaður í knatt- spyrnu, eftir leikinn gegn Argent- ínumönnum. „Liðsheildin var mjög góð hjá okkur og þegar hún er það þá er erfitt að vinna okkur. Við höfðum allir trú á fyrir leikinn að við gætum náð góðum úrslitum. Við erum búnir að spila lengi saman og vitum hvenær við erum bestir. Við vörðumst alveg ótrúlega vel allan leikinn og leikáætlun okkar gekk eiginlega alveg upp. Við féllum kannski fullaftarlega á völlinn í seinni hálfleik en það er erfitt að halda boltanum á móti svona sterku liði.“ gummih@mbl.is Leikáætlun okkar gekk nánast upp

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.