Morgunblaðið - 29.06.2018, Page 1
Riðlakeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu
lauk í gær. Framundan eru 16-liða úrslit mótsins.
Flautað verður til leiks í fyrstu leikjum 16-liða úr-
slita á morgun en knattspyrnumenn og áhorfendur
fá frí frá leikjum í dag.
Leikmenn Frakklands og Argentínu ríða á vaðið
í 16-liða úrslitum þegar þeir mætast í Kazan á
morgun klukkan 14 að íslenskum tíma. Fjórum
stundum síðar leiða Úrúgvæjar og Portúgalar
saman hesta sína í ólympíubænum Sotsjí við
Svartahaf. Úrúgvæjar hafa leikið vel á mótinu
fram til þessa, tóku m.a. gestgjafa Rússa í kennslu-
stund í lokaumferð riðlakeppninnar fyrr í vikunni.
Á sunnudag verður komið að heimamönnum að
mæta Spánverjum í Moskvu í fyrri leik dagsins.
Síðar á sunnudaginn mætast Króatar og Danir í
Nisní Novgorod.
Búast má við léttleika og tangóveislu í Samara á
mánudaginn þegar Brasilíumenn og Mexíkóar eig-
ast við. Belgar og Japanir taka svo upp þráðinn
síðdegis á mánudaginn í Rostov en þeir síðar-
nefndu komust í 16-liða úrslit í gær á kostnað
Senegala. Lið þjóðanna voru jöfn að stigum og eins
var markatala þeirra eins auk þess sem jafntefli
varð í innbyrðis leik þeirra. Japanir komust hins-
vegar áfram sökum háttvísi en þeir fengu sjaldnar
gul spjöld í leikjum riðlakeppninnar en Afríkubú-
arnir.
Sextán liða úrslitum lýkur á þriðjudaginn þegar
frændur okkar, Svíar, mæta Svisslendingum í
Sankti Pétursborg. Síðasti leikur 16-liða úrslitanna
verður á milli Kólumbíu og Englendinga. Við-
ureignin sú verður háð í Moskvu. iben@mbl.is
AFP
Tilþrif Kólumbíumaðurinn Yerry Mina dró hvergi af sér í leik Kólumbíu og Sengal í gær. Mina og félagar unnu leikinn og leika í 16-liða úrslitum á HM.
Riðið verður á vaðið í Kazan
Riðlakeppni HM í Rússlandi lauk í gærkvöld Landslið 16 þjóða standa eftir
en 16 eru farin heim Ekkert leikið í dag Útsláttarkeppnin hefst á morgun
FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2018
ÍÞRÓTTIR
Knattspyrna Landsliðskonan Fanndís Friðriksdóttir hefur ákveðið að söðla um og ganga til liðs
við Val eftir að hafa leikið með Marseille í Frakklandi síðasta árið. Hún segir gott að breyta til. 4
Íþróttir
mbl.is
FRJÁLSAR
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Íslandsmethafinn í spjótkasti, Ás-
dís Hjálmsdóttir, hóf keppnis-
tímabilið af krafti í gær þegar hún
hafnaði í fyrsta sæti á Sollentuna í
Svíþjóð. Hún kastaði spjótinu
lengst 59,13 metra og var ánægð
með þessa byrjun á kepppnis-
tímabilinu. „Þetta var mjög gott
miðað við hvað ég hef getað kastað
undanfarið. Ég er langánægðust
með að finna ekki til í bakinu svo
að ég fái fleiri tækifæri til að
keppa og taka kastæfingar,“ sagði
Ásdís við Morgunblaðið í gær-
kvöldi að keppni lokinni en hún
hefur fundið til eymsla í baki upp
á síðkastið.
Ásdís slær ekki slöku við um
þessar mundir. Framundan er
keppni á móti í Joensuu í Finn-
landi á miðvikudaginn en á þeim
stað setti Ásdís Íslandsmet sitt
fyrir ári, 63,43 metra. Hún fer því
með góðar minningar til Joensuu
eftir helgina. Eftir mótið í Finn-
landi kemur Ásdís heim til Íslands
og tekur þátt í Meistaramóti Ís-
lands sem fram fer um miðjan júlí.
Aðalmótið hjá Ásdísi í sumar verð-
ur Evrópumeistaramótið sem fram
fer í Berlín snemma í ágúst.
Ásdís hefur tímabilið af
krafti þrátt fyrir eymsli
Kastaði tæpa 60 metra í Sollentuna Næst í Finnlandi
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Dugnaður Ásdís Hjálmsdóttir tekur þátt í EM í Berlín í byrjun ágúst.
Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir
lék á 73 höggum
eða á einu höggi
yfir pari á fyrsta
hring sínum á
KPMG-
meistaramótinu í
golfi í Illinois-
ríki við borgina
Chicago í Banda-
ríkjunum. Mótið
er eitt af fimm risamótum hvers árs
hjá atvinnukylfingum í kvenna-
flokki.
Hún byrjaði vel í gær og var á
tveimur höggum undir pari eftir
aðeins fjórar holur. Hún fékk hins
vegar skolla á bæði áttundu og ní-
undu holu og lék því fyrri níu hol-
urnar á parinu.
Ólafía Þórunn fékk skolla á ell-
eftu holu áður hún lék síðustu sjö
holurnar á pari. Hún er í 82.-105.
sæti af 156 kylfingum. Reikna má
með að Ólafía verði í harðri baráttu
um að komast í gegnum niður-
skurðinn er hún leikur annan
hringinn í dag.
Óstöðugt golf
hjá Ólafíu
Þórunni
Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir
Bjarki Pétursson er efstur þriggja
Íslendinga á Evrópumóti áhuga-
manna í golfi í Haag í Hollandi.
Bjarki lék annan hringinn í gær á
75 höggum eða þremur höggum yf-
ir pari og er hann samanlagt á
tveimur höggum yfir pari og í 51.-
66. sæti.
Gísli Sveinbergsson lék á 73
höggum í gær og er á samanlagt
sex höggum yfir pari og í 97.-108.
sæti. Aron Júlíusson er svo í 128.-
129. sæti á samanlagt tíu höggum
yfir pari. Hann lék á 74 höggum í
gær. Þriðji hringur mótsins fer
fram í dag.
Er á tveimur
yfir parinu