Morgunblaðið - 29.06.2018, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 29.06.2018, Qupperneq 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2018 UNDANKEPPNI HM Guðjón Þór Ólafsson gudjon@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í körfuknatt- leik mætir Búlgaríu í dag og Finnlandi 2. júlí, en leikirnir eru hluti af undan- keppni heimsmeistaramótsins. Báðar viðureignir fara fram ytra og verður flautað til leiks í Botevgrad í nágrenni Sofiu í Búlgaríu klukkan 15 í dag. Fyrir leikina er Ísland í ágætri stöðu. Ísland er sem stendur í öðru til þriðja sæti ásamt Finnum með fjögur stig í F-riðli. Tékkar eru í efsta sæti riðilsins með sex stig en Búlgaría í því fjórða með tvö stig. Þrjú efstu lið rið- ilsins fara áfram í milliriðla og taka með sér stigin úr forkeppnisriðlinum áfram upp í millriðilinn. Sem stendur bendir margt til þess að Bosnía, Frakkland og Rússaland verði and- stæðingar þeirra liða sem fara áfram úr forkeppnisriðli þeim sem íslenska liðið er í. Leikirnir gegn Búlgaríu og Finn- landi eru því gríðarlega mikilvægir. Sigur á Búlgaríu tryggir Íslandi þátt- tökurétt í milliriðlum. Tapi íslenska liðið aftur á móti leiknum í dag þarf það að vinna finnska landsliðið og treysta um leið á að Búlgaría tapi fyrir Tékklandi á sama tíma. Hjálpar að Tryggvi geti æft með Í viðtali við Morgunblaðið áður en haldið var til Búlgaríu sagðist lands- liðsþjálfarinn Craig Pederson vera ánægður með undirbúning landsliðs- ins undanfarna daga. „Undirbúning- urinn hefur gengið vel. Það munar miklu að Tryggvi [Snær Hlinason] æf- ir með okkur í fjóra daga en ekki í tutt- ugu mínútur eins og hefur gerst fyrir undanfarna leiki. Mikilvægt að leik- mennirnir venjist að spila með honum í sókn jafnt sem vörn. Ég held að það muni hjálpa okkur mikið þegar á hólminn verður komið,“ sagði Ped- erson. Þegar Pederson var beðinn um að leggja mat á möguleika íslenska liðs- ins gegn Búlgörum og Finnum sagði hann að verkefnið væri mjög krefj- andi: „Alltaf þegar þú spilar útileiki eins og þessa þarftu að spila vel til þess að vinna. En ég tel að ef við hitt- um á góðan leik þá munum við vinna.“ Pavel Ermolinskij og Jón Arnór Stefánsson verða ekki með að þessu sinni vegna meiðsla. Í þeirra stað komu Haukamennirnir Kári Jónsson og Hjálmar Stefánsson inn í landsliðið. Pederson segir að það sé mikill missir að Jóni og Pavel: „Um er að ræða afar reynda leikmenn. Þeir hafa báðir spil- að erlendis í stórum deildum og tekið þátt í mörgum stórum verkefnum með landsliðinu og félagsliðum. Að sama skapi kemur sá tími einhverntímann þegar aðrir verða að taka við og öðlast reynsluna af því að spila á erfiðum úti- völlum. Eins og ég sagði þá hefði verið gott að hafa þá en þeir eru það ekki þannig að aðrir leikmenn verða að stíga upp og spila vel,“ sagði Ped- erson. Kynslóðaskiptin eru hafin Það er ljóst að sá kjarni sem fór með íslenska landsliðið tvisvar í lokakeppni Evrópumótsins er ekki að yngjast. Jakob Örn Sigurðarson og Logi Gunn- arsson eru hættir með landsliðinu og Hlynur Stefánsson og Jón Arnór eiga ekki mörg ár eftir. Spurður út í þessi kynslóðaskipti sagði Craig að þau myndu gerast fyrr en seinna: „Reyndar er það svo að þessi kyn- slóðaskipti eru þegar farin af stað. Hlutverk Martins Hermannssonar og Hauks Helga Pálssonar hafa stækkað mikið á undanförnum árum og þá er Tryggvi búinn að koma sterkur inn. Núna þurfum við að ná næstu mönn- um inn, byggja þá upp og láta þá öðl- ast reynslu svo þeir geti komið inn í liðið og haft sitt að segja,“ sagði Ped- erson Jón Arnór er ekki hættur Jón Arnór Stefánsson, leiðtogi ís- lenska landsliðsins á undanförnum ár- um og íþróttamaður ársins 2014, er ekki hættur að leika með íslenska landsliðinu. Það staðfesti Hannes S. Jónsson í samtali við Morgunblaðið en Jón hafði sjálfur gefið það út að leik- irnir gegn Búlgaríu og Finnlandi að þessu sinni yrðu síðustu leikir hans fyrir íslenska landsliðið. „Jón Arnór er meiddur þessa stund- ina og tekur ekki þátt í leikjunum gegn Búlgaríu og Finnlandi. Hann mun hins vegar vera með í leikjunum í milliriðlakeppninni í september, ef af þeim verður,“ sagði Hannes S. Jóns- son, formaður Körfuknattleikssam- bands Íslands. Alltaf nauð- synlegt að leika vel á útivelli Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Driffjöður Martin Hermannsson leikur stórt hlutverk í íslenska landsliðinu.  Mikilvægur leikur í Búlgaríu í dag „Kæru stuðningsmenn! Við erum jafnvonsviknir og þið,“ seg- ir í yfirlýsingu sem þýska landsliðið í knattspyrnu sendi frá sér í gær eftir að liðið féll úr leik í riðlakeppninni á HM í Rússlandi. Þjóðverjar eru ríkjandi heimsmeistarar og er þetta í fyrsta sinn í sögunni sem þeim mistekst að komast í útsláttarkeppni heimsmeistaramótsins. „Heimsmeistarakeppnin er einungis á fjögurra ára fresti og við vorum með háleit markmið. Okk- ur þykir leitt að hafa ekki spilað eins og sannir heimsmeist- arar. Það gerðum við hins vegar ekki og við erum réttilega úr leik í ár. Stuðningur ykkar var frábær, bæði í Þýskalandi og í Rússlandi. Við fögnuðum saman í Ríó 2014. Það er hins vegar hluti af íþróttum að kunna að tapa og við viðurkennum fúslega að andstæðingar okkar í Rússlandi voru betri en við. Við viljum óska Svíþjóð og Mexíkó til ham- ingju með áfangann og Suður-Kóreu með sigurinn í gær. Við viljum líka þakka Rússum fyrir gestrisnina,“ segir í yfirlýsingu leikmannanna. sport@mbl.is Þýskir báðust afsökunar Joachim Löw Atvinnukylfingurinn Axel Bóasson átti ansi skrautlegan fyrsta hring á Made in Denmark-mótinu sem fram fer í Danmörku næstu daga og hófst í gær. Axel lék fyrsta hringinn í gær á 74 höggum eða þremur höggum yfir pari vallarins. Axel fékk þrjá tvöfalda skolla, þrjá skolla og sex fugla. Hann fékk því aðeins sex pör á fyrsta hringnum. Axel er sem stendur í 100.-122. sæti mótsins, en 70 efstu kylfingarnir fara í gegnum niðurskurðinn eftir að leik lýkur á öðrum hring í dag. Ljóst má vera að það verður við ramman reip að draga hjá Axel að verða í hópi þeirra. Joachim Hansen og Mark Haastrup frá Danmörku eru efstir ásamt Marco Iten, frá Sviss, á sjö höggum undir pari. Mótið er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu sem Axel hefur leikið tals- vert á í vor og í sumar. sport@mbl.is Litríkur hringur hjá Axel Axel Bóasson Inkasso-deild kvenna Fjölnir – Haukar.......................................0:4 Hildigunnur Ólafsdóttir 2., Sigurrós Eir Guðmundsdóttir 32., Hildur Karítas Gunn- arsdóttir 53., Þórdís Elva Ágústsdóttir 90. ÍA – Sindri ...............................................11:0 Unnur Ýr Haraldsdóttir 4., 8., 23., 42., 47., Heiðrún Sara Guðmundsdóttir 16., Bergdís Fanney Einarsdóttir 29., 89., Maren Leós- dóttir 52., Unnur Elva Traustadóttir 80., Erla Karitas Jóhannesdóttir 90. Staðan: Keflavík 5 4 1 0 15:4 13 Haukar 6 4 1 1 12:4 13 Fylkir 5 4 0 1 13:4 12 ÍA 7 4 0 3 17:10 12 Þróttur R. 5 3 1 1 8:7 10 ÍR 6 2 1 3 6:8 7 Aftureld./Fram 7 1 3 3 7:11 6 Hamrarnir 5 1 2 2 8:11 5 Fjölnir 7 1 0 6 9:18 3 Sindri 5 0 1 4 4:22 1 2. deild kvenna Einherji – Völsungur ...............................0:2 Staðan: Grótta 5 4 1 0 24:13 13 Augnablik 5 4 0 1 20:4 12 Tindastóll 4 3 0 1 13:3 9 Völsungur 6 3 0 3 10:12 9 Fjarð./Hött./Leikn. 4 2 1 1 16:8 7 Álftanes 4 1 2 1 10:10 5 Einherji 5 0 0 5 4:19 0 Hvíti riddarinn 5 0 0 5 2:30 0 4. deild karla A KFR – KB ..................................................0:2 Berserkir – Snæfell/UDN ........................4:3 Staðan: Hamar 6 4 2 0 9:4 14 Ýmir 6 4 1 1 18:6 13 Berserkir 6 4 0 2 15:10 12 Snæfell/UDN 6 3 0 3 13:8 9 Björninn 6 2 1 3 7:11 7 Stál-úlfur 6 2 1 3 9:14 7 KB 6 1 1 4 4:15 4 KFR 6 1 0 5 5:12 3 4. deild karla B Hvíti riddarinn – Elliði .............................0:4 Reynir S. – Skallagrímur..........................3:2 Bandaríkin Utah Royals – Seattle Reign ...................0:0  Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan leikinn með Utah Royals. KNATTSPYRNA G-RIÐILL: England – Belgía ......................................0:1 Adnan Januzaj 51. Panama – Túnis ........................................1:2 Yassine Meriah 33. (sjálfsm.) – Fakhredd- ine Ben Youssef 51., Wahbi Khazri 66. Lokastaðan: Belgía 3 3 0 0 9:2 9 England 3 2 0 1 8:3 6 Túnis 3 1 0 2 5:8 3 Panama 3 0 0 3 2:11 0  Belgía og England fara í 16-liða úrslit. H-RIÐILL: Japan – Pólland ........................................0:1 Jan Bednarek 59. Senegal – Kólumbía .................................0:1 Yerry Mina 74. Lokastaðan: Kólumbía 3 2 0 1 5:2 6 Japan 3 1 1 1 4:4 4 Senegal 3 1 1 1 4:4 4 Pólland 3 1 0 2 2:5 3  Kólumbía og Japan fara áfram í 16-liða úrslit. Leikir í 16-liða úrslitum: Laugardagur 30. júní: Frakkland – Argentína ............................. 14 Úrúgvæ – Portúgal ................................... 18 Sunnudagur 1. júlí: Spánn – Rússland...................................... 14 Króatía – Danmörk ................................... 18 Mánudagur 2. júlí: Brasilía – Mexíkó....................................... 14 Belgía – Japan ........................................... 18 Þriðjudagur 3. júlí: Svíþjóð – Sviss ........................................... 14 Kólumbía – England ..................................18 Leikir í 8-liða úrslitum: Föstudagur 6. júlí: Úrúgvæ/Portúgal – Frakkl./Argentína... 14 Brasilía/Mexíkó – Belgía/Japan............... 18 Laugardagur 7. júlí: Spánn/Rússland – Króatía/Danmörk ...... 14 Svíþjóð/Sviss – Kólumbía/England ......... 18 Leikir í undanúrslitum: Þriðjudagur 10. júlí: Sigurliðin í föstudagsleikjunum............... 18 Miðvikudagur 11. júlí: Sigurliðin í laugardagsleikjunum ............ 18 Leikur um bronsverðlaun: Laugardagur 14. júlí: Taplið undanúrslita í Pétursborg ............ 14 Úrslitaleikur: Sunnudagur 15. júlí: Sigurlið undanúrslita í Moskvu................ 14 HM2018 Íslensku U16 og U18 ára landslið karla og kvenna leika um þessar mundir á Norður- landamótinu í körfuknattleik í Finnlandi. Öll fjög- ur íslensku liðin mættu finnsku liði í gær og svo fór að U16 ára lið drengja vann sinn leik, en hin þrjú lið- in töpuðu. U16 ára lið drengja vann æsispenn- andi leik, 97:95. Gabríel Bama var stigahæstur í íslenska liðinu með 18 stig og þeir Ástþór Atli Svalason og Sveinn Búi Birgisson skoruðu 16 stig hvor. Íslenska U18 ára landslið karla þurfti að sætta sig við grátlegt 77:75 tap þar sem Hilmar Pétursson skor- aði 18 stig og Dúi Jónsson 12. U18 ára lið kvenna tapaði 97:72. Birna Valgerður Benonýsdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með 15 stig og Kamilla Sól Viktorsdóttir, Anna Ingunn Svansdóttir og Hrund Skúla- dóttir skoruðu 10 stig hver. Loks þurfti U16 ára lið stúlkna að sætta sig við stórt 88:48-tap. Natalía Jenný Lucic Jónsdóttir var stigahæst með 14 stig og Helga Sóley Hreið- arsdóttir gerði níu stig. Mótið heldur áfram í dag og mæta íslensku liðin þá liðum frá Eistlandi. sport@mbl.is Einn sigur og þrjú töp í Finnlandi Birna Valgerður Benónýsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.