Morgunblaðið - 29.06.2018, Síða 3

Morgunblaðið - 29.06.2018, Síða 3
ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2018 HM 2018 Ívar Benediktsson iben@mbl.is Kólumbía og Japan komust áfram í 16-liða úrslit á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu karla í Rússlandi í gær þegar síðasta umferð í H-riðli fór fram. Kólumbía vann Senegal 1:0 á sama tíma og Japan tapaði með sömu markatölu fyrir Pólverjum, sem þegar voru úr leik á mótinu og léku upp á fátt annað en heiðurinn í gær. Kólumbía tók toppsæti riðilsins með sex stig. Miðvörðurinn Yerri Mina skoraði sigurmarkið á 74. mín- útu þegar hann skallaði boltann í mark Senegal af stuttu færi eftir fyr- irgjöf. Jan Bednarek skoraði sigurmark Pólverja í sigrinum á japanska liðinu sem gerði fátt til þess að rétta sinn hlut í leiknum. Úrslitin þýddu að Japan og Senegal enduðu með jafnmörg stig, sömu markatölu og sama árangur innbyrðis. Japan fór hins vegar áfram í 16-liða úrslit þar sem liðið er með færri refsi- stig fyrir gul og rauð spjöld í leikjum riðlakeppninnar en Sengalar. „Svona eru reglurnar. Við verðum að sætta okkur við þær en vissulega hefðum við viljað falla úr keppni á annan hátt,“ sagði Aliou Cissé, lands- liðsþjálfari Senegal, daufur í dálkinn eftir að ljóst varð að næsta verkefni hans manna væri að pakka ofan í tösk- ur og halda heim frá Rússlandi. „Ég er stoltur af liði mínu. Þeir lögðu sig fram í öllum leikjum keppn- innar og undirstrikuðu að mínu mati að framtíðina er þeirra.“ Adnan Januzaj tryggði Belgum sig- ur á Englendingum með eina marki leiksins á 51. mínútu í viðureign lið- anna sem fyrir leikinn voru örugg um sæti í 16-liða úrslitum. Leikurinn var fyrir vikið nokkuð rólegur en fyrir- fram var pískrað um að hvorugt liðið hefði áhuga á að vinna leikinn. Ástæð- an er e.t.v. sú að sigurlið þess riðils á á hættu að mæta liði Brasilíu í átta liða úrslitum komist það klakklaust í gegnum 16-liða úrslitin. Hvað sem þeim vangaveltum líður þá var Gareth Southgate, landsliðs- þjálfari Englendinga, vonsvikinn í leikslok, ekki síst vegna þess að enska liðinu lánaðist ekki að skora þrátt fyr- ir upplagða möguleika. M.a. fékk Mar- cus Rashford ágætt marktækifæri. „Við fengum góð færi í seinni hálfleik en því miður tókst ekki að skora. Það var leiðinlegt að Rashford skoraði ekki. Við viljum vinna alla leiki svo það eru vonbrigði að tapa,“ sagði Sout- hgate sem nú þarf að búa sína menn undir leik við Kólumbíu í 16-liða úr- slitum á þriðjudag í Moskvu. South- gate sagði framundan vera stærsta leik enska landsliðsins í áratug. Túnis vann sinn fyrsta og eina sigur á HM á móti Panama, 2:1, í hinum leik G-riðils. Yessine Meriah kom Panama yfir með sjálfsmarki á 33. mínútu en Ben Youssef og Wahbi Khazri skor- uðu fyrir Túnis og tryggðu sigurinn. Ekkert verður leikið á heimsmeist- aramótinu í dag. Á morgun hefjast 16- liða úrslitin. Senegalar bitu í súra eplið AFP Mark Adnan Januzaj í þann mund sem hann skoraði sigurmark Belga gegn Englendingum á HM í gær.  Japan fékk sæti í 16-liða úrslitum vegna háttvísi  Belgar lögðu Englendinga AFP Áfram Hotaru Yamaguchi og félagar í japanska landsliðinu komust áfram. AFP Gleði Wahbi Khazri og félagar fagna sigurmarki Túnisbúa gegn Panama Jose Pekerman, landsliðsþjálfari Kólumbíu, hefur áhyggjur af stórstjörnunni James Rodríguez sem fór meiddur af velli í 1:0-sigrinum á Senegal á HM í Rússlandi í gær. Með sigr- inum tryggði Kólumbía sér sæti í 16-liða úrslitum eins og kemur fram hér að neðan. „Ég hef mjög miklar áhyggjur því fjarvera Rodríguez getur orðið liði mínu erfið,“ sagði Pekerman um meiðsli miðjumannsins á fréttamannafundi eftir leik. „Ég vil þó ekki velta mér of mikið upp úr meiðslum hans heldur njóta sigurstundarinnar,“ bætti Pekerman við. Rodriguez var ekki í byrjunarliðinu á móti Japan í 1. um- ferð, en kom inn í liðið á móti Póllandi í 2. umferð. Ekki er ljóst hvort fyrri meiðsli hafa tekið sig upp hjá Rodríguez. Kólumbíumenn mæta Englendingum í 16-liða úrslitum á HM á þriðjudaginn Moksvu. Ljóst þykir að Rodríguez verði í kapphlaupi við tímann við að jafna sig fyrir leikinn mikilvæga. sport@mbl.is Er Rodríguez úr leik? James Rodríguez Wayne Rooney hyggst ganga til liðs við bandaríska knatt- spyrnufélagið D.C. United. Hjá félaginu skrifar hann undir þriggja og hálfs árs samning . D.C. United leikur í banda- rísku atvinnumannadeildinni, MLS-deildinni. Höfuðstöðvar félagsins eru í Washington. Félagaskiptin hafa legið í loftinu í talsverðan tíma en eftir að Marco Silva tók við Everton-liðiu voru sumir enskir miðl- ar búnir að gera því skóna Rooney yrði áfram hjá uppeldis- félagi sínu. Hann hefur hins vegar ákveðið að reyna fyrir sér í Bandaríkjunum eftir stutt stopp hjá Everton en hann samdi aftur við félagið síðasta sumar eftir að hafa yfirgefið Man- chester United eftir 13 ára dvöl Rooney er markahæsti leikmaður í sögu Manchester United, sem og enska landsliðsins. Hann byrjaði 27 leiki fyrir Everton í ensku úrvalsdeildinni á síð- ustu leiktíð þar sem hann skoraði tíu mörk og lagði upp önnur tvö. bjarnih@mbl.is Rooney fer til United Wayne Rooney  Handknattleiksmarkvörðurinn Selma Þóra Jóhannsdóttir hefur gengið til liðs við Hauka frá Gróttu, uppeldisfélagi sínu. Hjá Haukum tekur Selma Þóra stöðu annars fyrrverandi markvarðar Gróttu, Elína Jónu Þor- steinsdóttur, sem í vor samdi við danska B-deildarliðið Vendsyssel.  Baldur Þorleifs- son stýrir kvenna- liði Snæfells í körfuknattleik í úr- valsdeildinni á næstu leiktíð. Baldur tekur við liðinu af Inga Þór Steinþórssyni sem hætti á dögunum til þess að taka við karlaliði KR. Baldur hefur verið aðstoðarþjálfari Inga Þórs undanfarin ár. Vladimir Iv- ankovic verður aðstoðarþjálfari Bald- urs en hann var ráðinn þjálfari karla- liðs Snæfells á dögunum. Berglind Gunnarsdóttir, Gunnhildur Gunnarsdóttir, Rebekka Rán Karls- dóttir og Thelma Lund Hinriksdóttir hafa allar framlengt samninga sína við félagið og liðið ætlar sér stóra hluti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.  Enska knattspyrnufélagið Chelsea íhugar nú að leggja fram tilboð í Al- isson, markmann Roma og brasilíska landsliðsins. Alisson hefur verið sterk- lega orðaður við Liverpool og Real Ma- drid að undanförnu en nú hefur Chelsea einnig blandað sér í baráttuna um leikmanninn. Roma vill fá í kringum 70 milljónir punda fyrir markmanninn en það er upphæð sem Liverpool er ekki tilbúið að borga. Samkvæmt fréttum á Ítalíu vill markmaðurinn helst fara til Real Madrid, fari svo að hann yfirgefi Roma. Chelsea er hins vegar tilbúið að borga í kringum 60 milljónir punda fyrir hann sem er meira en bæði Liver- pool og Real eru tilbúin að greiða. Alisson er einungis 25 ára gamall og á því nóg eftir en hann kom til Roma ár- ið 2016 frá Internacional í heimalandinu. Hann á að baki 29 landsleiki fyrir Brasilíu en Thibaut Co- urtois, mark- maður Chelsea, hefur ekki vilj- að skrifa undir nýjan samning við enska fé- lagið og er því að öllum lík- indum á för- um. Eitt ogannað Mjólkurbikar kvenna, 8-liða úrslit: Fylkisvöllur: Fylkir –ÍBV ....................17.30 Valsvöllur: Valur – Grindavík ..............19.15 Jáverkvöllur: Selfoss – Stjarnan..........19.15 1. deild karla, Inkasso-deildin: Eimskipsv.: Þróttur R. – Leiknir R.....19.15 Ólafsvíkurvöllur: Víkingur Ó. – ÍA ......19.15 Hertzvöllurinn: ÍR – Haukar ...............19.15 2. deild karla: Fjarðab.höllin: Leiknir F. – Höttur.....19.15 Vogabæjarv. : Þróttur V. – Afture. .....19.15 Vivaldivöllurinn: Grótta – Víðir ...........19.15 3. deild karla: Fjölnisvöllur: V.Júpíters – Augnablik.19.15 Samsungvöllurinn: KFG – Ægir ..............20 Valsvöllur: KH – Dalvík/Reynir ...............20 Vopnafjarðarvöllur: Einherji - Sindri ......20 2. deild kvenna: Bessastaðarv.: Álftanes – Augnablik ..19.15 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.