Morgunblaðið - 21.06.2018, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018
1
ATVINNA
í boði hjá Kópavogsbæ
Ýmis störf
• Verkefnastjóri stefnumótunar
• Frístundaleiðbeinendur í félagsmiðstöðvum
Kópavogs
• Starfsmaður í Þjónustumiðstöð við almenna
þjónustu
Grunnskólar
• Aðstoðarforstöðumaður frístundar í Álfhólsskóla
• Aðstoðarforstöðumaður frístundar í
Hörðuvallaskóla
• Aðstoðarskólastjóri í Kársnesskóla
• Enskukennari í Hörðuvallaskóla
• Frístundaleiðbeinandi í Smáraskóla
• Frístundarstarfsmenn í Vatnsendaskóla
• Íþróttakennari í Álfhólsskóla
• Íþróttakennari í Hörðuvallaskóla
• Kennari í hönnun og smíði í Vatnsendaskóla
• Kennari í hönnun og smíði í Kársnesskóla
• Kennari í leiklist og/eða dans í Álfhólsskóla
• Sérkennari/þroskaþjálfi í Álfhólsskóla
• Skólaliði í Smáraskóla
• Stuðningsfulltrúi í Smáraskóla
• Tölvuumsjónarmaður í Kársnesskóla
• Umsjónarkennari í miðstig í Vatnsendaskóla
• Þroskaþjálfi/sérkennari í Kársnesskóla
Leikskólar
• Deildarstjóri í Baugi
• Deildarstjóri í Fífusölum
• Deildarstjóri í Kópahvol
• Deildarstjóri í Kópasteini
• Deildarstjóri í Læk
• Deildarstjóri í Sólhvörfum
• Leikskólakennari í Arnarsmára
• Leikskólakennari í Álfatúni
• Leikskólakennari í Baug
• Leikskólakennari í Dal
• Leikskólakennari í Grænatúni
• Leikskólakennari í Efstahjalla
• Leikskólakennari í Kópahvoli
• Leikskólakennari í Kópasteini
• Leikskólakennari í Læk
• Leikskólakennari í Núp
• Leikskólasérkennari/þroskaþjálfi í Baug
• Leikskólasérkennari/þroskaþjálfi í Efstahjalla
• Leikskólasérkennari/þroskaþjálfi í Kópasteini
• Leikskólasérkennari/þroskaþjálfi í Marbakka
• Leikskólasérkennari/þroskaþjálfi í Sólhvöfum
• Starfsfólk í Núp
• Þroskaþjálfi/leikskólasérkennari í Álfatúni
MANNAUÐSSTJÓRI
Starfssvið:
• Ábyrgð á þróun og eftirfylgni mannauðsstefnu og þeim
hluta mannréttinda- og jafnréttisstefnu
Hafnarfjarðarkaupstaðar sem snýr að starfsfólki
• Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk í
mannauðsmálum
• Ábyrgð á helstu mannauðsferlum – þróun þeirra,
samræmingu, innleiðingu, þjálfun og umbótum
• Aðkoma að launasetningu, starfsmati, starfslýsingum
og jafnlaunastaðli
• Upplýsingamiðlun, viðhald á innri vef og
mannauðskerfum
• Fræðsla og starfsþróun fyrir stjórnendur og starfsfólk
Hafnarfjarðarkaupstaðar
• Framkvæmd og eftirfylgni vinnustaðagreininga
Hafnarfjarðarkaupstaður leitar að metnaðarfullum og kraftmiklum einstaklingi í starf mannauðsstjóra.
Mannauðsstjóri hefur yfirumsjón með mannauðsstefnu bæjarins og leiðir daglegan rekstur, uppbyggingu og þróun
mannauðsmála í samstarfi við stjórnendur. Starfið tilheyrir stjórnsýslusviði. Hjá Hafnarfjarðarkaupstað starfa um
2000 manns. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafía B. Rafnsdóttir, í gegnum netfangið olafia@attentus.is
Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf. Umsóknarfrestur er til og með 27. júní 2018.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi
• Yfirgripsmikil reynsla af stjórnun og sambærilegum
störfum er æskileg
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu og á sviði
vinnuréttar er æskileg
• Leiðtogahæfni og reynsla af breytingastjórnun
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, sjálfstæði og mikil skipulagshæfni
• Þekking og reynsla á úrvinnslu tölfræðilegra gagna
um mannauðsmál og reynsla af H3 er kostur
• Mjög góð íslenskukunnátta í ræðu og riti og góð
enskukunnátta
Nánar á hafnarfjordur.is
585 5500
hafnarfjordur.is
HAFNARFJARÐARBÆR
RÁÐHÚS HAFNARFJARÐAR
STRANDGÖTU 6
ÞJÓNUSTUVER
OPIÐ FRÁ KL. 8.00 – 16.00
ALLA VIRKA DAGA
Læknar sem starfa hjá HSN eru með aðalstarfsstöð á heilsu-
gæslustöð og sinna móttöku sjúklinga og heilsuvernd ásamt
því að sinna vaktþjónustu í héraði skv. vaktaskema hverju
sinni. Starfið felur einnig í sér störf á sjúkra- og hjúkrunarsviði.
Störfin fela í sér þverfaglega samvinnu innan sem og út fyrir
stöðina. Góð reynsla hefur verið af teymis-samstarfi læknis
og hjúkrunarfræðings, sem snýr að móttöku, eftirfylgd og
utanumhaldi.
Næsti yfirmaður er yfirlæknir á starfsstöð.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Almennar lækningar og heilsuvernd
• Vaktþjónusta
• Læknisþjónusta á sjúkra- og hjúkrunarsviði
• Kennsla starfsfólks og nema
• Þróun og teymisvinna
Hæfnikröfur
• Íslenskt lækningaleyfi er skilyrði
• Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni,
óskað er meðmæla
• Áreiðanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Reynsla og hæfileiki til að vinna í teymi
• Sérfræðiviðurkenning í heimilislækninum kostur
• Ökuleyfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og
efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilsskrá ásamt afriti eða
staðfestingu á Íslensku lækningaleyfi. Kostur er að stofnuninni
berist staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf
og vísinda- og rannsóknarstörf ásamt staðfestu afriti af opin-
beru starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum
gögnum, meðmælum og viðtölum við umsækjendur. Aðgengi
að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða.
Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast í tvíriti til
mannauðsstjóra HSN, Hafnarstræti 99, 600 Akureyri.
Starfsstöðin á Húsavík sinnir Húsavík og nágrenni.
Unnið er í teymisvinnu í nánu samstarfi hjúkrunarfræðings
og læknis.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.07.2018
Nánari upplýsingar veita
Unnsteinn Ingi Júlíusson,
unnsteinn.ingi.juliusson@hsn.is - 464 0500.
Örn Ragnarsson,
orn.ragnarsson@hsn.is - 455 4000.
Læknir á Húsavík
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Húsavík óskar eftir að ráða læknir
til starfa. Gott húsnæði í boði.
Á Húsavík búa um 2.400 manns, helstu atvinnugreinar eru iðnaður, þjónusta við ferðamenn, sjávarútvegur og verslun. Leik-, grunn- og
framhaldsskólar eru í héraðinu. Í héraði heilsugæslunnar í S-Þingeyjarsýslu búa um 4.500 manns, bæði í blómlegri sveit og í þéttbýli í
Mývatnssveit og Húsavík. Náttúra og menning er lifandi og fjölbreytileg og atvinnuuppbygging í fullum gangi.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands tók til starfa þann 1. október 2014 við sameiningu heilbrigðisstofnana á Norðurlandi annarra en
Sjúkrahússins á Akureyri og nokkurra hjúkrunar- og dvalarheimila. Þær heilbrigðisstofnanir sem mynduðu Heilbrigðisstofnun
Norðurlands voru eftirfarandi stofnanir:
Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, Heilsugæslan á Akureyri, Heilsugæslan á Dalvík, Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð, Heilbrigðisstofnunin
Sauðárkróki og Heilbrigðisstofnunin Blönduósi.
Starfsemi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands nær því frá Blönduós í vestri til Þórshafnar í austri. Á upptökusvæðinu búa um 35.000 manns
og starfsmannafjöldi er rúmlega 520 talsins. Heildarvelta HSN er um ríflega 5,3 milljarðar króna. Heilbrigðisstofnun Norðurlands veitir
heilsugæsluþjónustu, sjúkrahúsþjónustu auk öldrunarþjónustu í formi hjúkrunar- og dvalarrýma.