Morgunblaðið - 18.08.2018, Side 1

Morgunblaðið - 18.08.2018, Side 1
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Brött Sandra María Jessen er ánægð með niðurstöðuna. Fyrst við fengum eitt af þessum toppliðum var skemmtilegt að fá al- vöru leik á móti einu af bestu lið- unum. Auðvitað hefðum við haft meiri möguleika ef við hefðum fengið veikara lið. En ég held að þetta sé skemmtilegt verkefni og jákvætt að fá svona stórt lið til Ís- lands.“ Fyrri leikurinn verður spilaður á Þórsvelli 12. eða 13. september en sá síðari verður ytra 26. eða 27. september. Sandra segir að mik- ilvægt sé að nýta heimaleikinn vel: „Það er fínt að fá þær fyrst til Ís- lands. Við erum með frábæra FÓTBOLTI Guðjón Þór Ólafsson gudjon@mbl.is Þór/KA dróst gegn Söru Björk Gunnarsdóttur og félögum í Þýska- landsmeisturum Wolfsburg í 32 liða úrslitum Meistaradeildarinnar, en drátturinn fór fram í Nyon í Sviss í gær. Í samtali við Morgunblaðið sagðist Sandra María Jessen hlakka mikið til þess að fá tækifæri til að spila á móti einu besta liði heims: „Þetta er geggjað spenn- andi verkefni sem við erum að fá. stuðningsmenn og það verður full stúka sem verður að styðja við bak- ið á okkur. Ég held að það gæti reynst dýrmætt. Við ætlum að koma þeim á óvart. Þær halda sennilega að þær séu að fara auð- veldu leiðina með því að fá okkur. Þá er bara mikilvægt að nýta heimavöllinn.“ Þekkir Wolfsborg vel Sandra María þekkir vel til Wolfsburg. Hún spilaði á móti lið- inu bæði þegar hún var leikmaður Bayer Leverkusen í þýsku úrvals- deildinni og þegar hún lék með Slavia Prag. Sandra vonast til þess að sú reynsla muni hjálpa til þegar liðin mætast í september: „Ég vona að ég geti nýtt þessa reynslu og þekkingu sem ég hef til að finna hvað hentar okkur best. Hvernig það er best að loka á þær. Og að hafa landsliðsfyrirliðann í hinu liðinu gerir þetta bara enn skemmtilegra. Við þekkjum hana allar. Það er bara fínt og við vitum hverjir styrkleikar þeirra eru og hvernig það er best að loka á þær. En ég held að það sé bara gaman að fá Söru heim til Akureyrar að spila á móti okkur.“ „Gaman að fá Söru heim til Akureyrar“  Þór/KA dróst á móti Wolfsburg í 32 liða úrslitum Meistaradeildarinnar LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2018 Íþróttir mbl.is HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Það er bara góð stemning í hópn- um eins og við má búast eftir sig- urinn. Nú er bara næsta mál að búa sig undir úrslitaleikinn,“ sagði Vikt- or Gísli Hallgrímsson, markvörður íslenska landsliðsins í handknattleik skipuðu leikmönnum 18 ára og yngri, eftir að liðið tryggði sér sæti í úrslitum Evrópumótsins í Króatíu í gærkvöldi. Íslenska liðið vann Kró- ata örugglega, 30:26, eftir að hafa verið með eins til fimm marka for- skot frá upphafi til enda leiksins. Staðan var 13:12 í hálfleik, Íslandi í hag. „Við erum ekki komnir fram úr okkar væntingum með þessum ár- angri. Ég veit ekki hvað aðrir töldu okkur geta gert fyrir mótið,“ sagði Viktor Gísli glaður í bragði spurður hvort sæti í úrslitaleiknum væri ekki framar vonum, ekki síst í ljósi þess að Heimir Ríkarðsson, þjálfari liðsins, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að stefnan hefði verið tekin á að komast í átta liða úrslit og tryggja Íslandi þar með beinan keppnisrétt í næstu lokakeppni EM og HM í þessum aldursflokki. Ætluðu alla leið í úrslit „Auðvitað ætluðum við alla leið í mótinu. Við höfum verið að stríða Þjóðverjum á mótum til þessa. Þeir hafa verið taldir vera með besta liðið í þessum aldursflokki áður en keppnin hófst. Þar af leiðandi fannst okkur ekkert óraunhæft að vera í hópi allra fremstu liðanna á þessu móti. Þetta er alls ekkert óvænt,“ sagði Viktor Gísli, sem reiknaði ekki með mikilli veislu eftir leikinn í gær- kvöldi. „Ætli að við fáum okkur ekki vel að borða á eftir að loknum góð- um teygjuæfingum. Síðan tekur við svefn og undirbúningur á morgun fyrir úrslitaleikinn. Við höldum bara okkar striki,“ sagði Viktor Gísli og var greinilega með báða fætur á jörðinni þrátt fyrir frábæran árang- ur. „Það má segja að leikurinn hafi gengið eins og í sögu,“ sagði Viktor Gísli um sigurleikinn á Króötum í gærkvöldi. „Góður varnarleikur skilaði okkur sigrinum auk þol- inmæði í sókninni. Síðan fengum við hraðaupphlaup til viðbótar og þar skildi á milli. Það er erfitt að stöðva okkur þegar þessi atriði ganga upp,“ sagði Viktor Gísli, sem stóð allan leikinn í marki Íslands og varði vel enda ekki amalegt að vera mark- vörður á bak við sterka vörn ís- lenska liðsins sem hefur farið á kostum í öllum leikjum mótsins. „Við gáfum tóninn strax í upphafi með sterkri byrjun og gáfum aldrei neitt eftir það sem eftir var leiks- ins,“ sagði Viktor Gísli um undan- úrslitaleikinn í gærkvöldi. Haukar fór á kostum Selfyssingurinn Haukur Þrastar- son var markahæstur í íslenska lið- inu í gær eins og oft áður í mótinu. Hann skoraði 10 mörk, Dagur Gautason skoraði 6 mörk, Stiven Tobar Valencia skoraði 4 mörk, Arnór Snær Óskarsson, Einar Örn Sindrason og Tumi Steinn Rún- arsson 3 mörk hver og Þorleifur Rafn Aðalsteinsson eitt. Haukur er markahæsti maður mótsins með 45 mörk í sex leikjum. Hann var valinn maður leiksins í ís- lenska liðinu í leikslok í gærkvöldi. Var þetta í þriðja sinn í mótinu sem Haukur verður fyrir valinu. Svíar skelltu Dönum Íslenska liðið mætir sænska landsliðinu í úrslitaleik á morgun, en liðin áttust við í riðlakeppni mótsins fyrir rúmri viku. Þá hafði Ísland betur, 29:24. „Það er fínt að mæta Svíum aftur. Þá fer minni tími í undirbúning enda skammur tími til stefnu,“ sagði Viktor Gísli. Svíar unnu Dani með nokkrum yfirburð- um í hinni viðureign undanúrslit- anna, 31:22. Heimir varð meistari 2003 Ísland hefur einu sinni orðið Evr- ópumeistari í handknattleik karla í flokki 18 ára og yngri, árið 2003. Þá var Heimir Ríkarðsson þjálfari liðs- ins eins og nú auk þess sem Andrés Kristjánsson var einnig sjúkraþjálf- ari hópsins. Bara alls ekkert óvænt  Ísland leikur á morgun til úrslita við Svía á Evrópumóti karla 18 ára og yngri  Lögðu Króata örugglega í undanúrslitum með fjögurra marka mun í gærkvöld Ljósmynd/Magnús Kári Glaðir Haukur Þrastarson og Viktor Gísli Hallgrímsson voru að vonum brosmildir í leikslok eftir sæti í úrslitaleik EM var í höfn. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Íslandsmeistari í golfi, lék þriðja hringinn á Bos- sey Ladies Championship- mótinu á 75 höggum, fjórum höggum yfir pari. Mótið er í LET-Acess móta- röðinni, næststerkustu mótaröð Evrópu. Guðrún lék fyrri tvo hringina á samtals 140 höggum og er hún á samanlagt tveimur höggum yfir pari eftir þrjá hringi. Hún er í 27. sæti ásamt nokkrum öðrum kylf- ingum fyrir lokadaginn. Guðrún Brá tapaði niður taktinum Guðrún Brá Björgvinsdóttir ÍÞRÓTTIR Fótbolti Eyjakonur unnu góðan útisigur á Val á Hlíðarenda í gær þegar liðin mættust í Pepsi-deildinni í knattspyrnu. Vonir Valskvenna um að elta efstu liðin uppi eru svo gott sem úr sögunni. 3 Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson spil- aði vel á öðrum degi sínum á Nor- dea Masters- mótinu í golfi í gær, en leikið er í Gautaborg í Sví- þjóð. Hann lék hringinn á 70 höggum og var á pari. Í fyrradag var Birgir Leifur á 67 höggum. Mótið er hluti af Evrópumótaröð- inni, þeirri sterkustu í álfunni, en Birgir var nokkuð stöðugur í gær og fékk fjóra skolla og fjóra fugla og tíu pör. Eins og nærri má geta skilaði þessi árangur Birgir Leifi réttu megin við niðurskurðarlínuna. Hann heldur þar með áfram leik í dag og á morgun. iben@mbl.is Birgir Leifur fór í gegnum niðurskurð Birgir Leifur Hafþórsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.