Morgunblaðið - 18.08.2018, Síða 3
Morgunblaðið/Valli
Bikarmeistarar Leikmenn Breiðabliks fagna í leikslok á Laugardalsvelli. Liðið hefur blómstrað í sumar eftir að hafa verið spurningarmerki margra fyrir mót.
KNATTSPYRNA
Pepsídeild karla:
Hásteinsvöllur: ÍBV – Keflavík..............L16
Akureyrarvöllur: KA – KR .....................S16
Grindavíkurv: Grindavík – Stjarnan......S18
Floridana-völlurinn: Fylkir – FH ..........S18
Inkasso-deild karla:
Jáverksvöllurinn: Selfoss – Haukar ......L14
Hertz-völlurinn: ÍR – ÍA............................14
Kórinn: HK – Þór ....................................L16
Grenivíkurvöllur: Magni – Leiknir R. ...L16
Laugardalsvöllur: Fram – Njarðvík.........14
2. deild karla:
Olísvöllurinn: Vestri – Víðir....................L14
Vogabæjarv.: Þróttur V – Leiknir F .....L14
Vivaldivöllurinn: Grótta – Höttur ..........L14
Eskjuvöllur: Fjarðab. –Afturelding ......L14
3. deild karla:
Vopnafjörður: Einherji – KH.................L14
Ólafsfjörður.: KF – Vængir Júpíters.....L14
Samsung-völlur: KFG – Dalvík/Reynir L14
Þorlákshöfn: Ægir – Sindri ....................L14
KR-völlur: KV – Augnablik ....................L16
Inkasso-deild kvenna:
Boginn: Hamrarnir – ÍR.........................L14
Varmár: Afturelding/Fram – Fjölnr .....L14
Sindravellir: Sindri – Þróttur R. ...........L16
2. deild kvenna:
Húsavík: Völsungur – Hvíti Riddarinn .L16
Fagrilundur: Augnablik – F.H.L. ..........S14
Blak
Undankeppni EM karla:
Digranes: Ísland – Moldóva....................S18
Undankeppni EM kvenna:
Digranes: Ísland – Slóvenía ....................S18
UM HELGINA!
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2018
Á HLÍÐARENDA
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Eyjakonur bókstaflega brutu Vals-
konur á Origo-vellinum í gær þegar
liðin mættust í 14. umferð Pepsi-
deildar kvenna, en leiknum lauk með
1:0-sigri ÍBV. Það var Cloe Lacasse
sem skoraði eina mark leiksins á 49.
mínútu eftir aukaspyrnu Sóleyjar
Guðmundsdóttur, en hún fékk allan
tímann í heiminum til þess að athafna
sig í vítateig Valskvenna og setti bolt-
ann óverjandi í hornið fjær.
Valskonur mættu mjög ákveðnar til
leiks og settu mikla pressu á gestina.
Þær sundurspiluðu Eyjakonur í fyrri
hálfleik og fengu þær Elín Metta Jen-
sen og Hlín Eiríksdóttir báðar frábær
færi til þess að koma heimakonum yfir
en Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir,
besti maður vallarins í gær, varði oft á
tíðum meistaralega. Eftir að Valsliðið
lenti undir brotnuðu þær algjörlega og
það var ekki sjón að sjá liðið í seinni
hálfleik. Þá vakti það mikla undrun
blaðamanns að báðir miðverðir Vals,
sem eiga að vera öflugustu skallamenn
liðsins, biðu tilbaka í öllum föstum leik-
atriðum.
Ian Jeffs, þjálfari ÍBV, lagði leikinn
vel upp. Liðið hans var þétt tilbaka,
varðist vel og beitti svo hröðum
skyndisóknum með Cloe Lacasse
fremsta í flokki. Þjálfari Eyjastúlkna
var eflaust ekkert svakalega hrifinn af
sóknarleik liðsins, enda runnu flestar
álitlegar sóknir liðsins út í sandinn, en
honum ef eflaust nákvæmlega sama
enda fór liðið hans heim með öll þrjú
stigin úr leiknum. Það er oft nóg að
skora eitt mark í knattspyrnuleik og
ÍBV gerði það svo sannarlega í gær.
Eyjastúlkur geta hins vegar líka þakk-
að Bryndísi Láru fyrir að vinna leikinn
fyrir þær.
Það eru þrír fastamenn í íslenska
kvennalandsliðinu sem spila með Val
og þær þurfa að fara að sýna það í
leikjum liðsins af hverju þær eru í
landsliðinu. Þá virðist liðið alltaf bogna
í leikjum þar sem það fær alvöru tæki-
færi til þess að brúa bilið á toppliðin.
ÍBV kemur fagnandi, sem aldrei fyrr,
heim til Eyja, enda liðið svo gott sem
sloppið við fallið. Einhverjir spurðu sig
hvort liðið myndi ráða við brotthvarf
Sigríðar Láru Garðarsdóttir, sem
samdi við Lilleström á dögunum, og
þær gerðu það svo sannarlega. Þetta
hefur verið vonbrigðatímabil fyrir
Eyjakonur en þær eru svo sannarlega
að rétta úr kútnum, þótt það sé
kannski heldur seint í rassinn gripið.
Morgunblaðið/Valli
Fyrirgjöf Hlín reynir að gefa fyrir mark ÍBV en Sóley er til varnar.
ÍBV braut
máttlitla Valsara
Landsliðskonur þurfa að sýna meira
0:1 Cloe Lacasse 49. af stuttufæri úr teignum eftir fyr-
irgjöf Sóleyjar Guðmundsdóttur.
Valskonum mistókst að hreinsa og
Cloe setti boltann í fjærhornið.
I Gul spjöld:Hlín Eiríksdóttir (Val) 66.
(brot).
I Rauð spjöld: Engin.
MM
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir (ÍBV)
Rut Kristjánsdóttir (ÍBV)
M
Cloe Lacasse (ÍBV)
Thelma Björk Einarsdóttir (ÍBV)
Hlíðarendi, Pepsi-deild kvenna, úrslit,
föstudag 17. ágúst 2018.
Skilyrði: 13 stiga hiti, skýjað, nokkrir
sólargeislar og léttur vindur.
Skot: Valur 13 (9) – ÍBV 5 (3).
Horn: Valur 11 – ÍBV 2.
Valur: (4-3-3) Mark: Sandra Sigurð-
ardóttir. Vörn: Málfríður Anna Eiríks-
dóttir, Arianna Romero, Málfríður Erna
Sigurðardóttir, Hallbera Guðný Gísla-
dóttir. Miðja: Thelma Björk Ein-
arsdóttir, Stefanía Ragnarsdóttir
(Dóra María Lárusdóttir 46), Fanndís
Friðriksdóttir. Sókn: Hlín Eiríksdóttir,
Elín Metta Jensen, Crystal Thomas
(Guðrún Karitas Sigurðardóttir 59).
ÍBV: (4-5-1) Mark: Bryndís Lára
Hrafnkelsdóttir. Vörn: Adrienne Jor-
dan, Caroline Van Slambrouck, Júlíana
Sveinsdóttir, Sóley Guðmundsdóttir.
Miðja: Katie Kraeutner (Sesselja Líf
Valgeirsdóttir 76, Birgitta Sól Vilbergs-
dóttir 79), Rut Kristjánsdóttir, Clara
Sigurðardóttir, Ingibjörg Lúcía Ragn-
arsdóttir, Cloé Lacasse. Sókn: Sha-
meeka Fishley.
Dómari: Andri Vigfússon – 4.
Áhorfendur: 90.
Valur – ÍBV 0:1
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er úr
leik á Indy Women in Tech-mótinu í
LPGA-mótaröðinni eftir tvo hringi.
Hún lék hringina tvo á samanlagt einu
höggi undir pari og var tveimur högg-
um frá því að komast í gegnum niður-
skurðinn. Ólafía lék á 71 höggi, einu
höggi undir pari, á fyrri hringnum á
fimmtudag og 72 höggum, eða á pari, í
gær. Hún fékk tvo fugla, tvo skolla og
14 pör á holunum 18 á öðrum hringn-
um.
Ágúst Jóhanns-
son, fyrrverandi
landsliðsþjálfari
kvenna í hand-
knattleik, hefur
verið ráðinn lands-
liðsþjálfari kvenna
í Færeyjum. Samdi
Ágúst til þriggja
ára en verður jafn-
framt þjálfari kvennaliðs Vals sem lék
til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn
síðasta vor. Fyrsta stóra verkefnið hjá
Ágústi verður að stýra Færeyjum í
undankeppni HM um mánaðamótin
nóvember/desember.
Körfuboltamaðurinn Sigurður
Gunnar Þorsteinsson hefur skrifað
undir samning við ÍR og mun hann
spila með liðinu á komandi leiktíð. Sig-
urður lék síðast með Grindavík og
skoraði 13 stig, tók níu fráköst og gaf
þrjár stoðsendingar að meðaltali í leik
síðasta vetur. Sigurður á 54 landsleiki
að baki og hefur hann leikið með
Solna í Svíþjóð og grísku liðunum Dox-
as og AEL, auk Keflavíkur og KFÍ. Hann
varð Íslandsmeistari með Grindavík
árin 2012 og 2013 og bikarmeistari
2014. Karfan.is greindi frá.
Kevin De Bruyne, miðjumaður Man-
chester City, verður frá næstu þrjá
mánuðina vegna meiðsla á hné, en
þetta staðfesti félagið í gær. Er hann
með sködduð liðbönd og þarf að taka
því rólega næstu mánuðina. Mun hann
því missa af leik Íslands og Belgíu í
Þjóðadeildinni á Laugardalsvelli 11.
september og þá verður að teljast
ólíklegt að hann verði klár þegar Ís-
land sækir Belga heim, í sömu keppni,
15. nóvember.
Eitt
ogannað
Agla María Albertsdóttir Var ávallt ógnandi fram
á við og olli vörn Stjörnunnar sífelldum vandræð-
um. Lagði upp bæði mörk Breiðabliks í leiknum
og var greinilega ákveðin í að vinna eftir að hafa
tapað með Stjörnunni í bikarúrslitum í fyrra.
Moggamaður leiksins