Morgunblaðið - 16.08.2018, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018
Sérfræðingur í
viðskiptatengslum
KOMPÁS Þekkingarsamfélagið leitar eftir markaðs- og þjónustudrifnum einstaklingi til að styrkja KOMPÁS teymið.
Áhersla viðkomandi verður á að virkja og styrkja tengsl við nýja og núverandi þátttakendur í þekkingarsamfélaginu.
Starfið felur í sér markaðssetningu, öflun nýrra þátttakenda, nýta samfélagsmiðla og annað sem eflir ávinning
þátttakenda í þekkingarsamfélaginu. Þörf er á öflugum og fjölhæfum einstaklingi sem vill leggja sitt af mörkum við
eflingu faglegrar stjórnunar og uppbyggingu þekkingarsamfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun er nýtist í starf.
• Viðkomandi búi yfir góðri þekkingu og reynslu á sviði fag-
legrar stjórnunar.
• Markaðs- og sölumál og nýting samfélagsmiðla.
• Mjög góð samskiptahæfni, gott tengslanet og þekking á
atvinnulífinu.
• Góð ritfærni. Íslenska, enska og æskilegt eitt Norðurlandamál.
• Skipulögð og öguð vinnubrögð. Geta unnið sjálfstætt í
krefjandi aðstæðum.
• Góð þekking og reynsla á notkun hugbúnaðar er nýtist í starfi.
Viðkomandi starfsmaður þarf að koma af miklum krafti inn í vax-
andi teymi þar sem oft þarf að vera hægt að ganga í fjölbreytt
störf til að mæta þeim væntingum sem gerðar eru til KOMPÁS
Þekkingarsamfélagsins. Í því getur einnig falist verkefni við
öflun fjármagns til frekari vaxtar, erlend samskipti, starfa með
vinnuhópum og í nánu samstarfi við lykil hagsmunaaðila að baki
KOMPÁS Þekkingarsamfélagsins.
KOMPÁS er samstarfsvettvangur fjölda fyrirtækja, stofnana,
háskóla, fræðsluaðila, stéttarfélaga og fleiri um miðlun hag-
nýtrar þekkingar, sbr. verkferla, eyðublaða, gátlista, vinnulýs-
inga, samninga, reiknivéla, myndbanda og fleira. Í dag eru yfir
2.500 skjöl og myndbönd í verkfærakistu KOMPÁS.
Umsóknir sendist á bf@kompas.is ásamt starfsferilskrá og kynningarbréfi þar sem tilgreint er hvernig hæfileikar viðkomandi nýtast
í starfi og hvað viðkomandi getur gert fyrir þekkingarsamfélagið. Umsóknarfrestur er til 31. ágúst 2018.
Nánari upplýsingar veitir Björgvin Filippusson, bf@kompas.is, s 864 4604.
w w w. k o m p a s . i s
51
57
#
#
Draghálsi 4 - 110
Reykjavík
sími: 535 1300
verslun@verslun.is
Lagermaður
með lyftarapróf
Vinnutími virka daga frá kl 08:00 -17:00
Umsækjandi þarf að hafa reynslu af lagerstörfum eða
sambærilegu starfi, leggjum áherslu á góða þjónustulund,
heiðarleika og stundvísi.
Upplýsingar um umsækjenda,
aldur og starfsferil óskast sendar
á netfangið sht@verslun.is
Myllan óskar að ráða vélvirkja eða einstaklinga
með sambærilega þekkingu til starfa í viðgerðardeild fyrirtæksins.
Upplýsingar um starfið gefur Flóvent Sigurðsson verkstjóri í s. 510 2300
og á netfanginu flovent@myllan.is
Áhugasamir vinsamlega sendið inn umsókn á vef fyrirtækisins www.myllan.is fyrir 10. september nk.
Meðal helstu verkefna:
• Viðhald og viðgerðir á framleiðsluvélum
og búnaði
• Bilanagreining
• Almenn viðgerðarvinna
• Samskipti við framleiðsludeildir
Hæfniskröfur:
• Sveinspróf eða sambærileg menntun æskileg
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Skipulögð vinnubrögð
• Almenn tölvuþekking
Myllan er leiðandi fyrirtæki á íslenskum matvælamarkaði, sem sérhæfir sig í markaðssetningu og framleiðslu á brauðum,
kökum og skyldum vörum fyrir neytendamarkað, hótel og veitingahús, mötuneyti og stofnanir. Myllan stefnir að því að
uppfylla fjölbreyttar þarfir viðskiptavina sinna á sínu sviði með viðeigandi lausnum í hverju tilfelli.
Það eru spennandi tímar framundan hjá Myllunni þar sem fyrirtækið er að flytja á Korputorg með alla sína starfsemi.
Myllan er hluti af ÍSAM ehf.
VÉLVIRKI
Tilboð/útboð
Auglýsing
- Grundartanga, deiliskipulagsbreyting
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti
10. júlí 2018 að auglýsa tillögu að breytingu
á deiliskipulagi iðnaðar- og hafnarsvæðis,
vestursvæði á Grundartanga.
Deiliskipulagstillagan felur í sér útvíkkun á
losunarsvæði núverandi flæðigryfja, sam-
einingu lóða, lagfæringu á númeraröð lóða
við Klafastaðaveg og staðsetningu spenni-
stöðvar við Klafastaðaveg.
Tillagan er sett fram á tveimur uppdráttum
og greinargerð dags. 15. maí 2018.
Tillagan er auglýst samkvæmt 43. gr. skipu-
lagslaga nr. 123/2010.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu
Hvalfjarðarsveitar. Tillöguna má einnig
sjá á heimasíðu sveitarfélagsins
www.hvalfjardarsveit.is frá 15. ágúst
2018 til og með 28. september 2018.
Kynningarfundur verður á skrifstofu
Hvalfjarðarsveitar þriðjudaginn 28.
ágúst 2018 kl. 17:00 til 18:00.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og
berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi
28. september 2018 á skrifstofu Hvalfjarð-
arsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes eða á net-
fangið skipulag@hvalfjarðarsveit.is
Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Hvalfjarðarsveitar
Árskógar Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl.
16.15-17. Opið fyrir úti- og innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45.
Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. S. 535-2700.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Opið hjá okkur alla daga í sumar.
Hádegisverður frá kl. 11.30-12.30 og kaffisala alla virka daga frá kl.
14.30-15.30. Helstu dagskrárliðir eru í sumarfríi fram í miðjan ágúst.
Úti-botsíavöllur verður á torginu í sumar og við minnum á qigong á
Klambratúni alla þriðju- og fimmtudaga kl. 11. Verið hjartanlega
velkomin. Vitatorg, sími 411-9450.
Gjábakki Kl. 20 félagsvist.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13. og eftirmið-
dagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, botsía kl. 10.15, listasmiðjan er opin fyrir alla frá kl. 9-16, síð-
degiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri, nánari upplýsingar í
Hæðargarði 31 eða í síma 411-2790.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30, leikfimi í salnum Skóla-
braut kl. 11, spilað í króknum kl. 3.30, bíóferð á MAMA MIA, farið
verður frá Skólabraut kl. 13.45. Fyrir frekari upplýsingar um ferðina
hafið samband við Thelmu í síma 8663027.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Allir velkomnir.
Síminn í Selinu er 568-2586.
Raðauglýsingar
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Stillholt 17, Akranes, fnr. 210-0450 , þingl. eig. Gígja Garðarsdóttir,
gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður og Orkuveita Reykjavíkur-vatns
sf., miðvikudaginn 22. ágúst nk. kl. 11:00.
Merkurteigur 3, Akranes, fnr. 210-2186 , þingl. eig. Margrét Marta
Ólafsdóttir, gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður og Orkuveita
Reykjavíkur-vatns sf., miðvikudaginn 22. ágúst nk. kl. 10:40.
Garðabraut 1, Akranes, fnr. 210-0719 , þingl. eig. HÆ ehf., gerðar-
beiðandi Tollstjóri, miðvikudaginn 22. ágúst nk. kl. 10:20.
Stafholtsey 3, Borgarbyggð, fnr. 233-4432 , þingl. eig. Pálfríður Bl Sig-
urðardóttir, gerðarbeiðandi Arion banki hf., miðvikudaginn 22. ágúst
nk. kl. 12:30.
Reynigrund 24, Akranes, fnr. 210-2754 , þingl. eig. Jóhanna Baldurs-
dóttir, gerðarbeiðandi Arion banki hf., miðvikudaginn 22. ágúst nk. kl.
10:00.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
15. ágúst 2018
Nauðungarsala
Félagsstarf eldri borgara