Spanska flugan - 05.04.1920, Síða 1
SPANSKA FLUGAN
I. árg. Es. ísland, 5. apríl 1920. 7. tbl.
Sóitvarnarnefndin.
Ritstjóri „Spönsku flugunnar“ hafði í gær viðtal við ritara sótt-
varnarnefndarinnar. Höfðum vér heyrt svo sundurlausar fregnir um
hvað gera skyldi við farþegana, er á land kæmi, að vér réðum af
að finna ritarann persónulega að máli.
Tók hann mér mjög alúðlega og leysti greiðlega úr spurningum
mínum og fórust honum orð hér um bil á þessa leið:
Sóttvarnamefndin hefir ákveðið, að farþegamir, jafnt sjúkir, sem
heilbrigðir, skuli einangraðir í Kennaraskólanum og slept 7 dög-
um eftir að hiti þeirra allra er kominn niður í 33^.
Flutningur fólks þessa gegn um bæinn fer fram svo sem venja
cr til i lokuðum og loftþéttum kistum og verður gætt sérstakrar
varúðar til að hindra að þessir hættulegu farþegar breiði veikina
út frá sér, þannig verða allar götur, sem ganga yfir götur þær, er
farþegar þessir fara um ,afgirtar m|eð gaddavír.
Lögreglusveit sú, sem sjer um flutninginn verður látin hafa gas-
grimur fyrir andliti og bæjarbúum verður stranglega bannað að
koma undir bert loft þann dag. Brot gegn banni verður refsað með
dauðahegningu. Að horfa út um glugga meðan á flutningnum stend-
ur, varðar æfilöngu fangelsi.
1 Kennaraskólanum hefir alt verið undirbúið, sem unt liefir ver-
ið, þannig hafa allir innanstokksmunir og allir gluggar verið tekn-
ir úr húsinu, svo hreint og svalt loft gæti verið í húsinu, með því
það er talið heppilegast, til að lækna blóðhitann í þessum veslings
farþegum.
Hafi hinir læknisfróðu menn nefndarinnar haldið því fram, að
með nægilegum kulda mætti lækna líkamshitann, þannig væri þess
engin dæmi, að hefrosnir menn hefði mjög háan líkamshita.
pegar þessu hættulega fólki hefir verið hleypt á land verður gufu-
skipið ísland sótihreinsað frá kili til siglutopps og þvi næst lagt 7
vikur í sótikvi úti í miðjum Faxaflóa,