Breiðfirðingur - 01.04.1948, Síða 21
BREIÐFIRÐINGUIi
19
Sparisjóður
Dalasýslu
1891-1946
ir óera
eir ^Ji^eisson fijrru. pró^ait í ^JJui
Ásgeir Ásgeirsson, præp. lion., fyrrv. prófastur í Hvammi, hef-
hr, um margra ára skeið, verið cinn mesti og bezti starfsmaður
innan Breiðfirðingafélagsins, að öllum öðrum ólöstuðum. Hefur
hann samið ritgjörð þá, sem liér birtist, sérstaklega fyrir Breið-
firðing, í tilefni af liálfrar aldar afmæli Sparisjóðs Dalasýslu.
Óskar Breiðfirðingur hér með að flytja hinum aldna heiðurs-
manni og ágæta sálusorgara sínar innilegustu þakkir fyrir þá
niiklu vinnu og fyrirhöfn, sem hann hefur lagt i ritsmíð þessa,
ekki sizt í skýrslugjörð þá, sem henni fylgir. Þá hefur höf. og
útvegað allar þær myndir, sem greininni fylgja og er það, eitt
út af fyrir sig, þrekvirki, eins og allir vita, sem við slíkt liafa
fengist.
Þess meiri ástæðu telur ritið til þess að þakka séra Ásgeiri hið
nukla, óeigingjarna starf hans, þar sem þeim virðist æ fækka,
er telja það einhvers virði að leggja á sig nokkurt starf til gagns
°g gengis þessu eina áttliagariti, sem til er á landinu. — Bitstj.
Merkasta stofnun Dalamanna, seni þeir eiga allir
hlutdeild i, er Sparisjóður Dalasýslu. Það er óhætt að
fullyrða, að Dalamenn liafi hvorki fyrr né síðar komið
á fót hjá sér stofnun, sem reynst hefur þeim jafn happa-
sæl til fjársöfnunar og til eflingar nytsömum fram-
kvæmdum í sýslunni allri eins og hann. Með stofnun
sparisjóðsins var lögð traustasta undirstaðan að efna-
2*