Breiðfirðingur - 01.04.1948, Page 64
€2
HREIDFIRÐINGUB
livergi fegurri jarðir á landi liér en þar. — Og aldrei
nýtur fegurðin i Breiðafirði sín betur en undir kvöldið,
þegar sólin sendir, úr liafi, geisla sína inn um liið fjöl-
breytilega og gagnauðuga liérað.
Útsýnið frá Skarði er mikið og fagurt út um sveitina
og fram um Breiðafjörð, en að baki er Skarðsliyrna og
grösugar brekkur og hvammar, er gera umhverfið
undur hlýtt og vinalegt. Silfurtær bergvatnsáin lippast
niður með túninu, og blandar nið sinn fuglakvakinu í
móunum fyrir utan og söng bárunnar við ströndina.
— Og heima á staðnum er fagurt um að litast: Stórt
tún, vel ræktað og grasgefið, nú nær alslegið og liirt.
Steinsteypt fjós og lilaða rétt við traðirnar og upp á
gamla bæjarstæðinu nýlega byggt ibúðarliús úr stein-
steypu, vel vandað og myndarlegt.
Ólafur ijróf. Lárusson telur Skarð elzta óðal landsins.
Vera megi að það bafi verið i eign sömu ættar síðan á
landnámsöld, og með vissu í eign sömu ættar óslitið
s. I. 800 ár (Iðunn 1925). Það eru mikil meðmæli með
einni jörð, og ber vott um að Skarð er ekkert skerlukot.
Geirmundur heljarskinn nam þar land fyrstur manna.
Og ber Landmámabók vitra menn fyrir því, að hann
liafi göfugastur verið allra landnámsmanna á tslandi,
og vellauðugur af lausafé og gangandi gripum. Svín
lians gengu á Svínanesi og sauðir á Hjarðarnesi norðan
megin Breiða'fjarðar en selför Iiafði bann i Bitru norð-
ur — og víðar átti karlinn ítök. — Ekki segir þó Land-
náma að Geirmundur liafi búið á Skarði, heldur „á Geir-
mundarstöðum undir Skarði“. Skarð virðist því ekki
vera landnámsjörð, en byggð upp i landi hinna fornu
Geirmundarstaða, líklega skömmu eftir andlát Geir-
mundar, og ef til vill i fyrstu sem lijáleiga eða sel frá
bæ hans. En vegna mikilla landkosta og stórum fegurra
hæjarstæðis Iiefir bjáleigan svo smámsaman vaxið móð-
urjörðinni yfir höfuð, og þá orðið algjör hausavíxl á