Breiðfirðingur - 01.04.1948, Síða 67
breiðfirðingúr
65
bautasteina í grafreitnum á Skaröi þá munu þau tvö
gnæfa upp úr mannhafi aldánna á þessum slóSum,
Ölöf rika og Geirmundur landnámsmaður, þó bólin
þeirra séu týnd, — því það lögmál mun rikja að „mynda-
smiðar andans skulu standa.“
Eiginlega var nú komið á leiðarenda, þvi ferðinni
var upphaflega ekki heitið lengra en að Skarði. En
Ágúst formaður átti heimboð að Hvalgröfum, næsta bæ
á Ströndinni austan Skarðs, og þótti þá öllum sjálfsagt
að slást i för með honum þangað.
Hvalgrafir standa fyrir mynni Búðardals fram við
sjó, vestan Búðardalsár. Þaðan er vítt og fagurt útsýni
fram á 'fjörðinn og blasir við fjöldi eyja. — Einu sinni
áður, fyrir mörgum árum, liafði ég komið að Hvalgröf-
um. Þá var þar hrörlegur torfbær og tún lítið og þýft.
Nú er þar öðruvísi um að litast: Tún stórt og slétt, sláttu-
vél á vellinum og kaffi og kökum röðuðum við i okkur
í snoturri sto'fu í nýreistu steinhúsi. — Eftir að hafa
drukkið kaffið og rabbað góða stund við húsráðendur,
héldum við til baka út að Skarði, og gistum þar um
nóttina .
— Frá Hvalgröfum slóst í för með okkur áleiðis að
Skarði Septemborg Gunnlaugsdóttir frá Bjarneyjum.
Hún á nú Iieima á Hvalgröfum, en er gömul húsfreyja
úr Bjarneyjum. Hún hefur marga bratta farið og getur
frá mörgu sagt. — Til þess, að lesendum gefist kostur
á að sjá framan í einliverja síðustu konu í Breiðafirði,
sem róið hefur til fiskjar i opnum bátum, sem full-
gildur háseti, sjá mynd á næstu síðu.
Morguninn eftir héldum við svo frá Skarði, stórum
fróðari um þetta söguríka liöfuðból en þegar við kom-
um þar. — Fyrst var haldið að Geirmundarstöðúm. Þar
bjó Geirmundur, sem fyrr segir, og þar andaðist hann
i hárri elli og er „lagður í skip þar út i skóginn frá
garði“. Eyddur mun nú skógurinn að mestu þar úr ná-
grenninu, en enginn getur þó vísað á leiði Geirmundar
5