Breiðfirðingur - 01.04.1948, Síða 69
kreiðfirðingur
67
Vlð við stafni i Efri-Langey. Þangað er stutt sjóleið frá
Eangeyjarnesi. Sund eitt skilur á milli nessins og eyj-
ai'innar, er fjarar um liverja fjöru.
í Efri-Langey býr Sigurður Sveinbjörnsson, gamall
sveitungi minn úr Vestureyjum. — Hann er dýravinur
Jnikill og átti þarna í túninu lijá sér refabú allgott. Hann
^efur lcngi fengist við þá atvinnugrein og lánast hún
nianna bezt. — Við gengum dálítið um eyna og skoðuð-
11 m liana, en ekki máttum við vera að því, að ganga í
Eeinn og drekka kaffi, þó það væri margboðið.
Efri-Langey er fremur lítil jörð, cn vel mun Sigurð-
lli' búa þar. — Bak við bæinn stóðu gömul uppborin
hey, mosavaxin að mér sýndist, og gott liafi ekki skarfa-
Eál og arfi jmntað á þeim kollinn. — Þar sem svo er
l'eyjað, mun ekki vera svelta í búi.
Skammt út af Efri-Langey liggur Fremri-Langey. Ör-
Kijótt sund er á milli eyjanna, er Krosssund heitir. Þar
fjarar aldrei, en mun þó vætt vöskum mönnum um
stærstu fjörur. Það er fjölfarin bátaleið.
Fremri-Langey er ein af stærstu eyjunum á Breiða-
firði, og stórbýli að fornu og nýju. Henni ætti að gera
sömu skil og Efri-Langey. Stinga þar við stafni og
líta á hana fljótlega, svo liægt væri þó að segja að mað-
11 í' befði komið í Jiessa stóru og merku ey í ferðinni. —
En það fór nú á annan veg. Óðar en samferðafólkið
komst upp úr bátnum liafði Kjartan bóndi Eggertsson
l'ertekið það og leitt lieim til búsa. Það var nú algjört
f'rot á ferðaáætluninni og gerði stórt strik í leiðar-
i'eikninginn. En úr þvi sem komið var, varð ekki við
ncitt ráðið, og ég sá minn kost vænstan i þvi að gera
hið sama — og labbaði mig heim í stofu. En sonur
Kjartans, liálfvaxinn, tólc við bátnum og bélt honum á
floti, svo hann fjaraði ekki í lendingunni og við yrðum
að gista í Langey næstu nótt.. Og þurfti nú ekki að
tíðindum að spyrja. Var nú sezt að kaffidrykkju og alls
kyns fagnaði og stóð það lióf lengi dags svo enginn
5*