Breiðfirðingur - 01.04.1948, Page 92
90
BREIÐFIRÐINGUR
aðarskólann í Ólafsdal og var þar tvö ár. Árið 1887
kvæntist liann Soffiu Gestsdóttur frá Skerðingsstöðumr
hinni ágætustu konu. Hún andaðist 1945. Þau hjónin
reistu fyrst hú að Knararliöfn, en fluttust síðan að Arn-
arbæli. Nokkru eftir aldamótin keypti liann Staðarfell
og bjó þar rausnarbúi nær tuttugu ár, þangað til hana
hætti búskap. „
Þegar í æsku var Magnúsi mjög lialdið til starfa eins-
og þá var títt um sveitadrengi og það þvi fremur er fyr-
irvinnu vantaði, en Magnús, þótt ungur væri, áhuga-
samur, 'fljótur á fæti og ósérlilifinn, og vakti hann þá
þegar athygli á sér fyrir góða fjármennsku og hagsýni
og meðan hann var i Ólafsdalsskóla treysti Torfi hon-
um bezt allra sinna heimamanna til aðdráttarferða, þar
sem reyndi á hvorttveggja snarræði og góða forsjá. Tók-
ust honum slíkar ferðir jafnan giftusamlega, þótt oft
væru það svaðilfarir.
Það sagði Magnús oft, að Torfa í ólafsdal ætti hann
mest að þakka, að maður varð úr sér. í Ólafsdalsskóla
fæddist og dafnaði hinn mikli áhugi hans á ræktunar-
málum. Stóð hann framarlega í þeim málum þegar á
frumbýlingsárum sínum, en þá kom fyrst til varanlegra
framtaka í þeim er hann fluttist að Staðarfelli og hafðí
keypt þá jörð. — Hófst liann þar þegar lianda um túna-
sléttur og þurrkun Iands og húsabætur. Var þar mikiS
verkefni. Sást þá líka fljótt á Staðarfelli, að „þar kló
sá er kunni“. Steinhús mikið reisti liann og vandaðí
mjög til þess. Bar það langt a‘f öðrum íveruhúsum vi5
Breiðafjörð þeim er úr steini voru.
Þegar Búnaðarsamhand Dala og Snæfellsness var
stofnað 1914 var Magnús einn af stofnendum og kosinn
þá í stjórn þess. Á næsta ári tók liann við fötmennsku
þess og var síðan um þrjátíu ára skeið lifið og sálin í
því. Mátti segja að hann réði þar einn öllu. Fórst hon-
um það starf prýðilega úr hendi. Bar hann hag sam-
bandsins meira fyrir brjósti en sinn eigin hagnað. Spar-