Breiðfirðingur - 01.04.1948, Page 95
breiðfirðingdr
93
ist honum fyrst, að hann vildi leysa livers manns vand-
ræði, þeirra er hans leituðu og gladdist er liann hafði
gert góðan hlut nauðleitarmanns síns, eins og lionum
sjálfum licfði horið iiapp að höndum.
Ég get sjálfur borið um það, af eigin raun, að er ég
hóf búskap að Staðarfelli, sem frumbýlingur, þá voru
mér ráð Magnúsar lieitins og aðstoð lians í verki mikils-
verð. Þessa manns er af reynslu og ráðdeild gat sagl
mér hversu þar skyldi hverju starfi bezt Iiagað og þótt
gustaði nokkuð á vináttu okkar um skeið, fann ég aftur
hina hlýju vinarhönd Magnúsar útrétta, er við höfðum
áttað okkur á þeim misskilningi og mun báðum hafa
verið jafnkært að hittast heilir aftur.. Höfum við Magnús
heitinn nú á síðari árum unnið mikið saman i skólaráði
Staðarfellsskólans og stjórn Búnaðarsambandsins og
var ekki hæg't að kjósa á betri og atorkumeiri samstarfs-
mann en liann.
Magnús fékkst töluvert við ritstörf nú á síðari árum.
Prentað er eftir hann í 25 ára afmælisriti Búnaðarsam-
bands Dala og Snæfellsness saga sambandsins og húnað-
arfélaga á sambandssvæðinu. Hann hefur, eins og áður
er sagt, ritað sögu Vcrzlunarfélags Dalamanna (í hand-
riti) og nú, á allra síðustu árum, hefur hann ritað end-
urminningar sínar, og er nokkur hluti þeirra fúllsam-
inn. Mun þar vera margvíslegur fróðleikur. Hann hefur
einnig skrifað greinar um örnefni í Árbók Fornleifa-
félagsins (Örnefni i Hvammslandi og örnefni í Arnar-
bælislandi).
Magnús hefur ldotið ýms vináttu- og virðingarmerki.
Búnaðarfélag Islands gerði hann að heiðursfélaga, sömu-
leiðis Búnaðarsamband Dala- og Snæfellsness. Afhenti
og sambandið honum eirsteypu af mynd er það hafði
látið Ríkarð Jónsson gera af þeim hjónum. Magnús
hlaut verðlaun úr sjóði Kristjáns konungs IX. fyrir unn-
ar jarðabætur og riddari varð hann Fálkaorðunnar.
Tvær dætur þeirra hjóna eru á lifi. Björg ljósmóðir