Breiðfirðingur - 01.04.1948, Page 131
breiðfirðingur
129
NOKKUR OEMÞ FRÁ
RITSTJÓRANUM
Breiðfirðingur, (>.—7. hefli, kemur nú fyrir sjónir les-
enda sinna og' er það vonum seinna, þar sem segja má,
að um tveggja ára skeið hafi útgáfa tímaritsins legið
niðri. En allt hefur sínar orsakir og einnig þessi dráttur.
Til skamms tíma hefur verið og er að vísu enn, mjög
erfitt um útvegun pappírs i hvað eina, er gefa skal út.
Er þetta ein orsökin til dráttarins. Nú hefur forstjóri
Eélagsprentsmiðjunnar sýnt tímaritinu þann velvilja,
að sjá því fyrir pappír i þetta hefti, livað svo sem verða
kann um ókomin hefti ritsins.
Þegar núverandi ritstjóri tók við ritstjórninni, stóð
hagur lians þannig, að hann liafði yfir töluverðum frí-
tíma að ráða og liugðist hann nota þann tíma í þágu
ritsins. Þann veg' er aftur á móti högum hans nú komið,
að atvinna lians gefur honum híytnær engan tíma af-
lögu og segja má, að hann sé aðallega hlaðinn störfum,
þegar aðrir mega um frjálst höfuð strjúka, þ. e. um
helgar og á öðrum frídögum. Skal það í lireinskilni ját-
að, að þessar aðstæður hafa fyrst og' fremst orðið þess
valdandi, hvcr dráttur cr á orðinn um útkomu ritsins
og það eina, sem ritstjórinn hefur fram að færa í til-
efni þessa, er einlæg ósk um fyrirgefningu syndanna, af
hálfu lesenda ritsins og félaga lians í Breiðfirðinga-
félaginu.
Hitt er svo annað mál að einnig má rekja orsök hins
leiða dráttar til áhugaleysis og illra undirtekta þeirra,
sem ritstjórinn hefur leitað til um efni í ritið. Leitað
hefur hann til mjög margra og farið þess á leit við ]iá,
9