Breiðfirðingur - 01.04.1948, Page 156
154
BREIÐFIRÐINGUR
til, að fclagið liéldi „basar“ til ágóða'fyrir starfsemi sína.
Var það samþykkt, og níu konur kosnar til að undirbúa
framkvæmd málsins.
í sumarferðum á vegum félagsins 1941 tóku þátt 150
manns. Ferðirnar voru þrjár: ein til Stykkishólms, hin-
ar i Fljótshlíð og Mýrdal.
Veturinn 1941—42 voru lialdnir 5 félagsfundir, aulc
ársmóts og vormóts, sem siðar verður getið. Fundar-
staðir voru Oddfellow-húsið, framan a'f vetri, en siðan
Alþýðuhúsið. Fundarsókn var enn mjög góð, mörg mál-
efni rædd og skemmtiefni nægileg. Fjárhagur félagsins
var enn þröngur. Sjóðir þess í árslok 1941 námu um 900
krónum. En úr rættist, þegar leið á vetur. „Bazar“ sá, er
konur félagsins gengust fyrir, gaf rúmlega 550 krónur í
ágóða og ágóði ársmótsins varð rúmar 1900 krónur. Var
hvortveggja upphæðin lögð í 'framkvæmdasjóð. Enn var
í ágóðaskyni lialdið vormót 9. mai í Oddfellow-húsinu,
og urðu lireinar tekjur af því 1000 krónur.
Nokkur skriður var nú kominn á Rcykhólamálið hjá
ríkisstjórn og Búnaðarfélagi Islands. Hafði Búnaðarfé-
lagið látið gera athugun um stærð ræktanlegs lands
þa r og gert tillögur til ríkisstjórnar um skiptingu lands-
ins og um liitaréttindin. Málinu liafði verið vísað til um-
sagnar Búnaðarsambands Vestfjarða. Fór Jón Hákonar-
son um vorið á aðalfund Búnaðarsambandsins, á veg-
um Breið’firðingafélags. Fékk málið einhuga stuðning
fulltrúa sambandsins.
Ein nýjung i starfsemi félagsins var tekin upp vorið
1942, og Jiefur hún siðan haldizt á liverju ári. Félagið
bauð Breiðfirðingum 60 ára og eldri til kaffidrykkju 10.
maí. Stóð liófið frá kl. 2—7 siðdegis og fór liið bezta
fram. Skemmtiefni voru söngur (B.F.-kórinn) og upp-
lestur. Af boðgestum fluttu ræður þau síra Böðvar
Bjarnason frá Rafnseyri, frú Ingibjörg Jónasdóttir frá
Árnesi og Guðjón Jónsson frá Litlu-Brekku. Hafa þessar