Breiðfirðingur - 01.04.1948, Síða 163
BREIÐI'IRÐINGUR
161
Stærsta verkefni félagsins, eins og nú var komið, var
að finna leið til að tryggja félaginu viðunanlegt og var-
anlegt húsnæði fyrir starfsemi sína. Þetta mál var oft
rætt, enda kaliaði það æ meira að, er lengur leið. Verð-
ur saga þess máls eigi rakin nánar hér, þar cð annar
kunnugri og færari hefur um það ritað. Þess skal aðeins
getið, að sumarið 1945 voru fest kaup á hinum miklu
húseignum við Skólavörðustíg 4—6 og 6B. Var stofnað
hlutafélag, er annaðist kaupin, en Breiðfirðingafélagið
er þar langstærsti lilutliafinn. Þótt i mikið væri ráðizt,
eru nú allir hinir mestu erfiðleikar um húsakaupin að
baki, og Breiðfirðingafélagið hefur yfir að ráða glæsi-
legu félagsheimili á einum bezta stað i bænum.
Frásögn um húsakaupin nægir, ein út af fyrir sig, til
þess að sýna þann starfsanda og' stórhug, sem bjó með
félagsmönnum um þessar mundir. En nokkurra ann-
arra atriða má ekki láta ógetið, þótt þau séu ekki eins
stórbrotin. Verður þó aðeins nefnt 'fátt eitt og í örstuttu
máli. Sumarið 1945, um Jónsmessuleytið, fór Breiðfirð-
ingakórinn söngför vestur um Breiðafjarðarbyggðir og
hlaut að vonum ágæta aðsókn og ástúðlegar viðtökur
bvarvetna. Haustið 1945 gaf einn félagsmanna, Sigurður
Sveinsson, garðyrkjuráðunautur, félaginu Iand í Hvera-
gerði, 3 lia. að stærð. Var þar með bætt úr þráðri þörf
félagsmanna um „friðland“ utan bæjarins. Fleiri gjafir
bárust félaginu. Ónefnd hjón gáfu 2000 krónur og ýmsir
aðrir félagsmenn gáfu rausnarlegar gjafir í heimilissjóð.
Félagið gekkst fyrir stofnun „Minningarsjóðs Jóns frá
Ljárskógum“, og nam hann í ársbyrjun 1946 um 5000
krónum. Ákveðið var að semja skipulagsskrá fyrir sjóð-
inn.
Árið 1947 og það sem af er yfirstandandi ári Iiefur
Breiðfirðinga'félagið unnið að hinum sömu verkefnum
sem undanfarin ár, en félagsstarfsemin hefur að sjálf-
sögðu færzt enn í aukana. Stærstu verkefnin þessi ár
voru að koma fjárhag Breiðfirðingaheimilisins í öruggt