Breiðfirðingur - 01.04.1948, Síða 165
breiðfirðingur
163
öllum þeim, sem stutt liafa vöxt þess og viðgang, og
þá fyrst og fremst forustumönnum félagsins fyrr og sið-
ar, er mest starf hafa unnið þar. Á þessu 10 ára tíma-
bili hafa alls 25 menn gegnt stjórnarstörfum í félaginu.
Formaður 'félagsins fyrstu 5 árin var Guðmundur Jó-
hannesson, og síðan Jón Emil Guðjónsson í 3 ár. Snæ-
björn G. Jónsson hefur átt sæti í stjórninni frá upphafi.
Næstur er Óskar Bjartmarz, í 6 ár, þá Sig. Hólmsteinn
Jónsson, 5 ár. Núverandi stjórn félagsins er þannig
skipuð:
Sigurður Hólmsteinn Jónsson, formaður.
Guðmundur Einarsson, varaformaður.
Síra Ásgeir Ásgeirsson, ritari.
Guðbjörn Jakobsson, gjaldkeri.
Bergsteinn Jónsson.
Jóhannes Ólafsson.
Ólafur Jóhannesson.
Ólafur Þórarinsson.
Snæbjörn G. Jónsson.
Stefán Jónsson.
Félagsmenn eru nú full 800 að tölu.
Hér liefur verið farið fljótt yfir sögu Breiðfirðingafé-
lagsins, einkuin um hin síðari ár, þar sem af svo miklu
var að taka. Munu lcunnugir sakna ýmissa atriða, einn
þessa og annar hins, sem átt hefði að geta um. En
vænzt er, að félagsmenn og lesendur almennt virði þá
vöntun á betri veg og líti á það, að höfundur greinar
þessarar hefur ekki sjálfur fylgzt með starfsemi Breið-
firðingafélagsins og hafði nauman tíma til að kynna
sér liana í fundabókum félagsins. En jafnframt skal
uvinnt á, að það var ekki ætlun höfundar að rekja hér
sögu félagsins til hlítar, þótt næg gögn hefðu verið fyrir
hendi og þótt tími og aðrar ástæður hefðu leyft, að svo
væri gert. Ætlunin var öllu fremur sú, að hregða upp
uiyndum úr starfslífi félagsins á hverjum tíma, svo að
lesendur gætu sér nokkra grein gert fyrir því hugarþeli
11*