Breiðfirðingur - 01.04.1948, Page 177
breiðfirðingur
175
Endurskoðendur voru kosnir:
Ari Thorlacius, lögg. endurskoðandi og
Ólafur Þórarinsson, skrifst.in.
Þessari fyrstu stjórn hlutafélagsins var síðan falið
„að ganga frá kaupsamningum um eignina Skólavörðu-
stíg 4, 6 og 6B á þeim grundvelli, sem liúsnefnd Breið-
firðingafclagsins og stjórn þess félags hafði um samið
vegna væntanlegs hlutafélags. Ennfremur var stjórninni
falið að gera nauðsynlegar breytingar á þessum eignum,
þannig að þær hentuðu þörfum og' tilgangi félagsins."
Samþykktir félagsins eru í VII köflum og 28 greinum.
Þeim liefur ekki verið breytt síðan, að öðru leyti en því,
að stjórn hlutafélagsins var á aukahluthafafundi 22.
sept. 1947 heimilað að auka hlutaféð upp í 800 þús. kr.
Hluta'félagsstjórnin hélt 1. fund sinn 13. júli. Var þar
Iagt fram bréf frá Breiðfirðingafélagsstjórninni, þar
sem hún tilkynnir, að hún hafi kosið Lýð Jónsson aðal-
uiann og Jóhannes Ólafsson varamann lians í stjórn
hlutafélagsins. Á þessum fundi skipti stjórnin þannig
með sér verkum: Jóhannes Jóliannsson var kosinn for-
inaður, Óskar Bjartmarz ritari og Snæbjörn G. Jónsson
gjaldkeri.
A næsta fundi 16. júní var Jóni Guðjónssyni
falið að annast um og slanda fyrir breyting'u og viðgerð
á aðalliúsinu Skólavörðustíg 6B.
Afsal fyrir liúseigninni var útgefið 28. okt. 1945, en
hlutafélagið hafði fengið liana til umráða og afnota 15.
júlí. Seljendur lánuðu félaginu 660 þús. kr. af kaup-
verðinu, 330 þús. kr. til 10 ára gegn 1. veðr. í eigninni,
■’>% % ársvöxtum og afhorgunarlaust fyrstu 5 árin og
330 þús. kr. til 5 ára gegn 2. vcðr., 6% ársvöxtum og 33
þús. ]<r. í afborgun tvisvar á ári. Næsta ár 1946 var svo
tekið 200 þús. kr. sérskuldabréfalán gegn 3. veðr. í eign-
inni til 5 ára með 4% ársvöxtum og tók hrlm. Kristján
Guðlaugsson að sér sölu bréfanna. Sölu þessara bréfa
var ekki lokið fyr en á síðastl. sumri. Auk þessara lána