Breiðfirðingur - 01.04.1948, Page 182
180
liREIÐI'IRÐINGUR
inn Snæbjörn G. Jónsson, varaformaður Einar B. Kristj-
ánsson, ritari Karl Finnsson og gjaldkeri Jón Guðmunds-
son. Á starfsári þcssarar stjórnar var skipt um fram-
kvæmdarstjóra, eins og áður er um getið, safnað liluta-
fé og greiddar lausaskuldir.
Aðalfundur 1947 var haldinn 18. júní. Reiknings-
niðurstöður ársins 1946 reyndust allgóðar eftir atvikum.
Tillaga var samþykkt á fundinum svohljóðandi:
„Fundurinn telur æskilegt ef hluthafar sjá sér
fært, að auka hlutafé sitt um allt að 20% og sömu-
leiðis auka hlutaféð með nýjnm hluthöfum.“
Stjórn félagsins var öll endurkosin og skipti með sér
verkum þannig, að formaður varð Jón Guðjónsson, vara-
formaður Ólafur Jólianncsson, gjaldkeri Snæbjörn G.
Jónsson og ritari Karl Finnsson. Á aðalfundinum voru
þeir kosnir varamenn í stjórnina Ásgeir Ásgeirsson
fyrrv. prófastur og Guðbjörn Jakobsson og endurskoð-
endur sömu og áður.
Hin endurkjörna stjórn lagði nú mikið kapp á að
selja hlutabréf, þvi að enn vantaði meir en % upp á að
allt hlutaféð væri innborgað og auk þess var enn óselt
talsvert af sérskuldabréfum. En salan gekk treglega.
Stjórnin ákvað þvi að stofna til auka hlutliafafundar og
var liann lialdinn 22. sept. um haustið. Þar var mikið
rætt um erfiðan rekstur, er ekki væri viðunandi að
halda áfram með sama sniði. Gjaldkeri kvað fjárhag
félagsins standa höllum fæti og að nauðsyn væri á að
auka hlutaféð verulega. Á fundi þessum fékk stjórnin
fullt og ótakmarkað umboð til þess
1) að auka hlutaféð upp i 800 þús. krr. og
2) að selja eða leigja fastar og lausar eignir félagsins.
Þetta var hvorutveggja samþykkt eftir tillögum frá
stjórninni sjálfri. Auk þess var samþykkt tillaga frá
Ásgeiri Ásgeirssyni varastjórnarnefndannanni þess efn-
is, að skora á Briðfirðingafélagið að veita hlutafélaginu
fjárhagslega aðstoð á þann bátt, að kaupa hlutabréf þess